Bæjarins besta - 13.05.2015, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 13
Gæðastjórnun
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. óskar eftir að
ráða starfsmann til að sinna gæðamálum og
tengdum verkefnum. Helstu verkefni eru yfir-
umsjón með gæðakerfi og aðstoð við verk-
stjórn. Lipurð og hæfni í mannlegum samskipt-
um ásamt almennri tölvu- og enskukunnáttu
er æskileg. Háskólapróf í sjávarútvegsfræðum,
matvælafræði eða álíka menntun er kostur.
Nánari upplýsingar veita Kristján G. Jóakims-
son og Sveinn K. Guðjónsson í síma 450 4600.
Umsóknir sendist á kgj@frosti.is fyrir 19. maí
næstkomandi.
Innan skamms verður gefinn
út tvöfaldur geisladiskur sem
inniheldur einvörðungu vest-
firska tónlist. Það er Patreksfirð-
ingurinn Sævar Árnason sem
stendur fyrir útgáfunni. „Það var
þvílík þátttaka að það hálfa væri
nóg. Þetta endar í tvöföldum diski
hjá okkur með 36 til 40 lögum,“
segir Sævar sem er búsettur í
Garðabæ. Á disknum verða lög
sem hafa komið út áður og eru
vel þekkt í bland við efni sem
aldrei hefur heyrst áður.
„Þarna eru hljómsveitir eins
og BG, Grafík og ÝR. Rúnar
Þór, Þórunn og Halli, Gummi
Hjalta og Rúnar Þóris eru með
lög og Jón Kr. og Rósi Sigurðsson
er með lag en hann er einn besti
gítarleikari sem Vestfirðingar
hafa átt. Snillingurinn hann Villi
Valli er með lag. Á disknum
verða eldri perlur og mikið af
nýju efni sem aldrei hefur verið
gefið út“ segir Sævar.
Hann stefnir á að koma diskn-
um út fyrir sjómannadag og stefn-
verið CD Vest. „Ætli hann heiti
það ekki bara áfram,“ segir Sæ-
var. – smari@bb.is
ir á aðra útgáfu síðar. „Þetta er
svo flottur hópur að það er alveg
á hreinu að þetta er fyrsta útgáfa,
það kemur annar diskur.“ Eins
og áður segir er Sævar frá Patr-
eksfirði og spilaði með hljóm-
sveitum í sinni heimabyggð. „Svo
var ég í nokkur ár á Ísafirði og
var í hljómsveitinni Rokk&Co
með Hólmgeiri, Halla Engilberts
og Árna og Gumma Hjalta.“
Aðspurður um heiti á plötunni
segir Sævar að vinnuheitið hafi
Grafík er meðal hljóm-
sveita á safnplötunni.
Tvöföld safnplata með
vestfirsku tónlistarfólki
Eigið fé Náttúrstofu Vest-
fjarða í Bolungarvík er nei-
kvætt um 30,2 milljónir
króna og rekstrartap síðasta
árs nam 3,3 milljónum króna
að því er segir í fundargerð
ársfundar Náttúrstofunnar
sem haldinn var á Hólmavík
15. apríl. Rekstrarvandi
Náttúrstofunnar er ekki nýr
af nálinni og fékk stofnunin
viðbótarframlög og í fyrra
og í ár fær stofnunin viðbót-
arframlög frá sveitarfélög-
unum á Vestfjörðum upp á
20 milljónir króna.
Á fundinum voru ræddar
leiðir til að rétta af fjárhaginn
og bæta rekstur stofunnar
svo hann verði sjálfbær.
Stjórn Náttúrustofunnar var
endurkjörin og er Daníel
Jakobsson formaður og Elías
Jónatansson og Þórir Sveins-
son meðstjórnendur.
– smari@bb.is
Rekstrar-
vandi hjá
Náttúru-
stofunni
Götur í Ísafjarðarbæ koma sums-
staðar illa undan vetri og margar
verið í bágu ástandi í lengri tíma.
Í júlí eru áætlaðar malbikunar-
framkvæmdir og segir Brynjar
Þór Jónasson, sviðsstjóri um-
hverfis- og eignasviðs Ísafjarðar-
bæjar, að þær götur sem verst
eru farnar séu efstar á verkefna-
listanum. Þangað til eru fyrir-
hugaðar hefðbundnar holuvið-
gerðir. Aðspurður hvaða götur
séu verst farnar segir Brynjar Þór
þær vera allnokkrar. „Þetta eru
allnokkrar götur sem eru í yfir-
lögn, listinn er ekki endanlegur,
en ofarlega á blaði eru til dæmis
Skólagata, Skeiði og restin af
Seljalandsvegi á Ísafirði. Sætún
á Suðureyri, Túngata á Flateyri,
og Sjávargata Þingeyri,“ segir
Brynjar Þór.
Miklar gatnaframkvæmdir eru
framundan í sumar á Ísafirði og
Flateyri. Á Ísafirði verður endur-
gerð Hlíðarvegs kláruð og á Flat-
eyri verður farið í víðtækar fram-
kvæmdir við Ránargötu og Unn-
arstíg. Tjón vegna ástands gatna-
kerfisins í Reykjavík voru tals-
vert í fréttum fyrr á árinu. Torfi
Einarsson, útbússtjóri Sjóvar á
Ísafirði, hefur ekki hert af viðlíka
tjónum á Ísafirði síðustu misseri.
„Munurinn er kannski sá að hér
ekki keyrt innanbæjar á öðru
hundraðinu. Eðli málsins sam-
kvæmt þá getur ekki orðið stórt
tjón þegar fólk er að keyra á 30
km hraða,“ segir Torfi.
Verst förnu göturnar
malbikaðar í sumar