Bæjarins besta - 30.07.2015, Page 23
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2015 23
Lausn á síðustu krossgátu
Sudoku þrautir
Þjónustuauglýsingar
Útboð vegna byggingafram-
kvæmda í Mjólkárvirkjun
Orkubú Vestfjarða ohf. óskar eftir tilboðum í verkið „Mjólká IA“. Um
er að ræða byggingaframkvæmdir vegna endurnýjunar á vélbúnaði í
stöðvarhúsi Mjólkárvirkjunar í Arnarfirði. Verkið mun hefjast í haust og
ljúka haustið 2016. Verkið felst meðal annars í jarðvinnu og uppsteypu
utandyra og múrbroti, uppsteypu og niðurrekstri stálþilja innandyra.
Verktími er áætlaður um 12-13 mánuðir.
Helstu magntölur eru áætlaðar eftirfarandi:
Gröftur (opin gryfja) 120 rúmmetrar
Mótaflötur 150 fermetrar
Járnabending 5.500 kg.
Steinsteypa 85 rúmmetrar
Múrbrot (gólf og veggir) 90 fermetrar
Múrbrot (gamlar vélaundirstöður) 30 rúmmetrar
Niðurrekstur stálþilja 5 stk. Lengd: 5,1 m.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi
1, Ísafirði frá og með 11. ágúst nk. Hægt er að panta gögnin á netfangi
orkubu@ov.is eða gg@ov.is. Tilboðum skal skila á sama stað þann 1.
september 2015 kl. 14:00, þar sem þau verða opnuð og lesin upp.
Búið er að bjóða út vegagerð
um Bjarnarfjarðarháls, alls um
7,35 km leið frá vegamótum utan
við Hálsgötugil við Steingríms-
fjörð að Svanshóli í Bjarnarfirði.
Þar á að endurleggja Strandaveg
(643). Verkinu skal að fullu lokið
eigi síðar en 1. september 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá
Vegagerðinni Borgarbraut 66
Borgarnesi og Borgartúni 7 í
Reykjavík. Skila skal tilboðum
á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 11. ágúst og verða
þau opnuð sama dag. Vegurinn
verður 7 metra breiður með
bundnu slitlagi og jafnframt
stendur til að byggja nýja tví-
breiða brú á Bjarnarfjarðará.
Verkið er það stærsta sem
verður boðið út í vegagerð á
Vestfjörðum á þessu ári. Í sam-
gönguáætlun Alþingis 2015-
2018 er gert ráð fyrir samtals
650 milljónum króna til verks-
ins, 200 milljónum í ár og 450
milljónum á næsta ári.
Vegagerð um
Bjarnarfjarðar-
háls boðin út
smáar
Nýr trillubátur til sölu. Tilboð
óskast. Uppl. í síma 456 3842
eða 899 3842.