Bæjarins besta - 07.01.2004, Side 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
Miðvikudagur 7. janúar 2004 · 1. tbl. · 21. árg.
Rekstur bílaverkstæðis Sig-
urðar og Stefáns á Ísafirði og
hluti af rekstri Bifreiðaþjón-
ustu FMG hefur verið sam-
einaður. Að sögn Guðna Geirs
Jóhannessonar hjá FMG, hóf
hið sameinaða fyrirtæki rekst-
ur í húsakynnum FMG að
Sindragötu 3 um áramótin.
„Við byrjum á að fella sam-
eiginleg verkefni fyrirtækj-
anna, sem eru stórbílaviðgerð-
ir, undir einn hatt en síðan
munum við smátt og smátt
renna þeim saman þegar líður
á árið“, segir Guðni. Aðspurð-
ur um ástæður sameiningar-
innar segir hann menn sjá fyrir
sér að betra sé að reka eitt
öflugt fyrirtæki en tvö minni.
„Við fórum í þessar viðræð-
ur á þeim forendum að við
yrðum sterkari sameinaðir“,
segir Guðni. – kristinn@bb.is
Rekstur bíla-
verkstæða
sameinaður
Ísafjörður
49 börn fæddust á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Ísafirði á
síðasta ári. Á sjúkrahúsinu á
Patreksfirði fæddust tvö börn.
Þrátt fyrir að aðeins tvö börn
hafi fæðst þar innanhúss voru
20 börn í ungbarnaeftirliti á
svæðinu sem þýðir að 18 fædd-
ust annars staðar.
Af 49 fæddum börnum á
Ísafirði voru drengir 24 og
stúlkur 25. Árið 2002 fæddust
62 börn á Ísafirði og árið 2000
50 börn. – kristinn@bb.is
49 börn komu í
heiminn á FSÍ
Ísafjörður
Nýbúabraut við Menntaskólann á Ísafirði
Færri komust að en vildu
Menntaskólinn á Ísafirði
býður á vorönn 2004 upp á
svokallaða nýbúabraut. Hún
hefur það markmið að undir-
búa þá nýbúa fyrir framhalds-
skólanám, sem ekki uppfylla
öll inntökuskilyrði eða eru
óráðnir um námsval.
Fjörutíu nemendur hafa nú
verið innritaðir á brautina en
umsækjendur voru fleiri en
skólinn getur tekið við og því
þurfti að setja einhverja þeirra
á biðlista til næsta skólaárs.
Kennt verður í kvöldskóla
fyrstu önnina og verður boðið
upp á fjóra áfanga: íslensku
fyrir byrjendur og lengra kom-
na, samfélagsfræði, ensku og
tölvunotkun.
Menntamálaráðuneytið hef-
ur veitt skólanum 400.000
króna styrk til þess að undirbúa
verkefnið og verkefnisstjóri er
Valdimar J. Halldórsson.
– kristinn@bb.is Menntaskólinn á Ísafirði.
Gleðilegt ár!
Fjárnámsbeiðnum og nauð-
ungarsölum hjá Sýslumann-
inum á Ísafirði fjölgaði á milli
áranna 2001 og 2002 sam-
kvæmt ársskýrslu embættis-
ins. Nýjar fjárnámsbeiðnir
voru 499 á árinu 2001 en 594
árið eftir og nemur aukningin
því tæpum fimmtungi.
Beiðnir um nauðungarsölur
á fasteignum og skipum voru
121 á árinu 2001 en 145 árið
eftir og fjölgar því álíka mikið
hlutfallslega. Alls voru seldar
18 eignir á árinu 2001 en 28 á
árinu 2002. Fjárnámsbeiðnir í
lausafé voru 9 á árinu 2001 en
8 árið eftir. – kristinn@bb.is
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði
þar sem sýslumannsem-
bættið er til húsa.
Nauðungarsölum fjölgar
01.PM5 12.4.2017, 09:001