Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.01.2004, Side 12

Bæjarins besta - 07.01.2004, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004 STAKKUR SKRIFAR Fækkun og framtíðin Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. smáar Til sölu er Nissan Micra árg. 96, 5 dyra. Bifreiðin lítur mjög vel út og er ekin 91 þús. km. Uppl. í síma 868 2664 og 477 1041. Til sölu eða leigu er 3ja herb. íbúð á eyrinni á Ísafirði. Öll til- boð skoðuð. Upplýsingar í síma 690 2100. Til sölu er 2ja herb. íbúð að Urð- arvegi 78. Uppl. í símum 456 3928 eða 456 4323. Óska eftir að taka á leigu 4-5 herb. íbúð, helst í Holtahverfi. Á sama stað óskast geislaspilari. Uppl. í síma 893 4857. Til sölu er vínrauður Subaru Leg- acy ST, árg. 2000, sjálfskiptur, ekinn 33 þús. km. Uppl. í síma 456 6158 eftir kl. 17. Til sölu er Nissan patrol SE 2,8, árg. 1998, breyttur fyrir 35", ekinn 100 þús. km., hvítur að lit, vetrar- og sumardekk. Uppl. í síma 862 7826. Hvolpar fást gefins. Upplýsingar í síma 456 3184. Til sölu er 4ra herb. blokkaríbúð á eyrinni á Ísafirði. Mikið uppgerð Uppl. í síma 661 5042. Nú hefur komið í ljós að Vestfirðingum hefur fækkað um 95 á liðnu ári. Svo segir Hagstofan og notar tímabilið 1. desember 2002 til jafnlengdar 2003. Ýmislegt fleira fróðlegt kom í ljós, þar á meðal að Vestfirðingar eru samkvæmt þessu 7.835 og tveir þriðju hlutar þeirra búa á norðanverðum Vestfjörðum. Þriðjungurinn dreifist því um Strandasýslu og Barðastrandarsýslur. Það dregur nokkurn mátt úr mönnum að sjá hve fækkun íbúa á Vestfjörðum er stöðug. Þá kemur einnig í ljós að á liðnu ári fæddust alls 49 börn á Ísafirði á móti 62 árið 2002. Á Patreksfirði fæddust aðeins tvö börn, en þar komu 20 til ungbarnaeftirlits og ætla má að 18 nýir Vesturbyggðungar hafi fæðst annars staðar. Ljóst er að börn fæðast í auknum mæli syðra, væntanlega á Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Valið verður framvegis í þá veruna að börn fæðist á fullkomnari sjúkrahúsum. Það er skiljanlegt, en skilar sennilega ekki fullkomnari börnum. Fróðlegt væri að sjá tölur um fæðingar barna sem eiga foreldra í Ísafjarðabæ, Bolungarvík og Súðavíkurhreppi, en hafa komið í heiminn annars staðar. Mest fækkaði í Vesturbyggð, um 47 og um 26 í Ísafjarðarbæ. Í fyrrnefnda sveitarfélaginu búa innan við 1.100 manns og í því síðar nefnda ríflega 4.100 íbúar, rúmur helmingur Vestfirðinga. Hvað um framtíðina? Vonir okkar um viðsnúning sýnast ekki rætast samkvæmt þessu. Þróunin hefur verið stöðug fólksfækkun, brottflutningur og færri fæðingar. Ekki hillir undir ný tækifæri á vinnumarkaði. Sjávarútvegurinn hefur verið lífæðin, en innan hans skiptast menn í fylkingar með og á móti línuívilnun, eins glöggt hefur komið fram í ummælum Einars Vals Kristjánssonar framkvæmdastjóra Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. Hann sér lítið gagn af því að taka aflaheimildir frá einum og færa til annars með þeim fyrirsjáanlegu afleiðingum að atvinna minnki hjá þeim sem af er tekið, í þessu tilviki HG. Deilt er um hugmyndina að háskóla á Vestfjörðum, sem er af góðum rótum sprottin, en getur reynst erfið í framkvæmd og nýtur að því er best verður séð ekki velvilja hins fjársvelta háskólasamfélags á Íslandi. Hugsunin að baki háskóla, sem flestir munu ætla stað á Ísafirði tekur ekki mið af aðstæðum. Íbúar á Vestfjörðum eru fáir, færri en í Garðabæ og leita margir suður eftir þjónustu nú þegar. Svo áhrifin dygðu til fjölgunar er nauðsynlegt að fá nemendur og kennara inn á svæðið eins og sagt hefur verið hér áður. Ferðaþjónusta er góðra gjalda verð en til þess að hún skili sér í umtalsverðri aukningu atvinnu þarf að ná miklu fleiri ferðamönnum til Vestfjarða og þá vantar meiri gistirými, sem kostar fé að byggja upp. Sá galli fylgir gjöf Njarðar að nýting gistirýmis yfir veturinn er ekki nógu góð og hvað þá er gistiplássum fjölgar að mun. Kjarni málsins er þó sá að auka þarf atvinnu, trú Vestfirðinga á framtíðina og efla mönnum bjartsýni byggða á raunhæfum grunni. Nýja Vest- fjarðaáætlun vantar. Ekki á að sjóða hana saman í hendingu heldur byggja á því sem fyrir er og bæta við nýju eftir fremsta megni. Megi nýbyrjað ár verða Vest- firðingum frjósamt og gott. Snilldarréttir, dans, söngur og flugeldar Nýársfagnaður SKG- veitinga var haldinn á Hótel Ísafirði á laugar- dagskvöldið að viðstöddu fjölmenni. Veislustjóri var Kristrún Lind Birgisdóttir frá Flateyri og sá söngtríó- ið Eyrarrósirnar um að skemmta gestum. Mat- reiðslumenn SKG-veitinga töfruðu fram hvern snilld- arréttinn á fætur öðrum. Á miðnætti var síðan flug- eldasýning og loks stiginn dans við undirleik Baldurs og Margrétar. Ljósmynd- ari bb.is tók meðfylgjandi myndir á fagnaðinum. Fleiri myndir munu birtast á svipmyndum á bb.is í vikunni. – hj@bb.is Netheimar ehf. Vinningshaf- ar í jólaleik Þrír heppnir Vestfirðingar hafa verið dregnir út í jólaleik tölvuþjónustunnar Netheima á Ísafirði. Í fyrsta vinning er MP3 spilari að verðmæti kr. 11.999 sem kom á miða nr. 216. Annar vinningur, DVD spil- ari að verðmæti kr. 9.999 kom á miða nr. 1067 og þriðja vinn- inginn, þráðlausa mús að verð- mæti kr. 4.999, hlýtur handhafi miða nr. 1792. Vinningshafar geta vitjað vinninga hjá Net- heimum í Aðalstræti 18 á Ísa- firði. Framvísa verður dreifibréfi með útdregnu númeri til að vinningur teljist gildur. – kristinn@bb.is Gerist áskrifendur í síma 456 4560 01.PM5 12.4.2017, 09:0012

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.