Bæjarins besta - 07.01.2004, Side 11
11MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
Ómar Már Jónsson,
sveitarstjóri í Súðavík.
er stórframkvæmd á mæli-
kvarða lítils sveitarfélags og
ég vona að hún muni auka
íbúum hér kjark og þor og trú
á sveitarfélagið til framtíðar.
Þar að auki vona ég að sam-
göngur batni enn á árinu en
sannleikurinn er sá að íbúar
Reykhólahrepps eru í ótrúlega
slæmu vegasambandi við aðra
hluta Vestfjarða. Þetta er
merkileg staðreynd, ekki síst í
ljósi þess að Reykhólar eru
ekki útkjálki. Þvert á móti er
enginn þéttbýlisstaður á Vest-
fjörðum nær höfuðborgar-
svæðinu en Reykhólar (að
Borðeyri við Hrútafjörð e.t.v.
einni undanskilinni!).
Ólafur M. Birgisson,
sveitarstjóri
Tálknafjarðarhrepps
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum á inn-
lendum vettvangi á árinu sem
er að líða?
Undirritaður var samningur
við ríkið um verkefni í dreif-
mennt í V.- Barðastrandasýslu
sem sveitarfélögin binda mikl-
ar vonir við. Uppbygging vega
um Klettsháls og Bröttu-
brekku, algjör bylting í sam-
göngumálum. Uppbyggingin
á Austurlandi, sýnir hvað hægt
er að gera í byggðamálum ef
áhugi er fyrir hendi, frábært
að sjá Austurland vera að
blómstra. Alþingiskosningar-
nar voru ansi skrautlegar og
yfirboðin mörg. Einhvern veg-
inn fannst mér skynsemin í
málflutningi allra framboða
fara út í veður og vind þegar
nálgaðist kjördag.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum af er-
lendum vettvangi á árinu sem
er að líða?
Írak stríðið hefur sett stór-
ann svip á árið sem er að
líða. Það var orðið nauðsyn-
legt að ná Saddam til að missa
ekki alveg tökin í stríð-
inu. Manchester United varð
enskur meistari sem er alltaf
jafn frábær tilfinning (ótrúlegt
hvað skapið getur sveiflast
með gengi liðsins).
Hvað er eftirminnilegast á
árinu hvað þig sjálfa(n) varðar
á árinu sem er að líða?
Það stendur uppúr að
við hjónin eignuðumst stúlku
6. september, algjör gullmoli,
er að ganga í gegnum erfið
veikindi en brosir alltaf sínu
blíðasta. Einnig er vert að geta
þess að Púkarnir, sem er „old
boys“ knattspyrnulið hér í
Tálknafirði, vann sinn fyrsta
sigur á Pollamóti Þórs á Akur-
eyri og það í fjórðu tilraun (í
árum talið).
Hvaða væntingar berð þú
til ársins 2004?
Það eru miklir umbrotatímar
í sveitarstjórnamálum t.d.
sameiningar sveitarfélaga. Þar
verða að fara að liggja fyrir
einhverjar línur fyrir framtíð-
ina. Þetta hangir yfir enda-
laust án þess að búið sé að
setja fram með sterkum rök-
um hverju eigi að ná fram. Ég
vona að aðstæður útgerða og
fiskvinnslu verði betri árið
2004 heldur en 2003, það er
grundvallar atriði fyrir sveit-
arfélag eins og Tálknafjarðar-
hrepp. Að Vestfirðingar detti
í lukkupottinn varðandi at-
vinnurekstur sem gæti verið
akkeri með fiskveiðum og
vinnslu. Að Englendingar
verði Evrópumeistarar í fót-
bolta (óskhyggja). Að lokum
óska ég Vestfirðingum og öðr-
um landsmönnum gleðilegs
nýs árs og þakka fyrir sam-
skiptin á liðnum árum.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum á inn-
lendum vettvangi á árinu sem
er að líða?
Það var margt eftirminnilegt
sem bar upp á, á nýliðnu ári. Á
landsvísu er einna minnisstæð-
ast þegar síðastliðið sumar
byrjað var á virkjunarfram-
kvæmdum á hálendi Austur-
lands, sem eiga eftir að hafa
miklar og jákvæðar breytingar
í för með sér fyrir sveitarfé-
lögin og íbúa þess á Austur-
landi og munu efla þá sýn
þjóðarinnar á að landsbyggðin
geti verið eftirsóknarverður og
öflugur búsetustaður. Einnig
er minnisstætt þær uppstokk-
anir og eignahaldsbreytingar
sem áttu sér stað á fyrirtækjum
og stofnunum hér á landi. Oft
stórtæk, innskiljanleg inngrip
og afskipti fjármálastofnana
inn í íslenskt atvinnulíf og
samhliða því hefur verið at-
hyglisvert að fylgjast með hug-
takinu ,,siðferði í viðskiptum”
sem mér finnst oft á tíðum
hafa farið halloka og skemmt
fyrir mörgum góðum fyrir-
tækjum og stofnunum. Það
verður verkefni næsta árs og
ára að móta nýjar og skerpa á
eldri leikreglum sem virðist
vera orðið mikilvægt í því
samfélagi sem við lifum í.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum af er-
lendum vettvangi á árinum
sem er að líða?
Á erlendum vettvangi eru
þung mál minnisstæðust, fyrst
ber að nefna innrásina í Írak
sem gerð var í mars og þess
ástands sem þar ríkir nú og
ekki er séð fyrir endann á.
Morðið á Önnu Lindh utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar í sept-
ember síðastliðnum og síðast
en ekki síst sá hörmulegi at-
burður sem átti sér stað í Íran
í desember þar sem hátt í 40.
þúsund manns létust í jarð-
skjálftanum. Þar sáum við
enn og aftur hvað náttúruöflin
geta verið óvægin og hvað við
Ómar Már Jónsson,
sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps
megum okkur lítils á slíkum
stundum.
Hvað er eftirminnilegast á
árinu hvað þig sjálfa(n) varðar
á árinu sem er að líða
Hvað mig varðar er það
einna eftirminnilegast að fá
Ester dóttir mína til landsins
og kynnast henni en ég hafði
ekki séð hana í 17 ár þar sem
hún hefur búið erlendis, en
við höfum ætíð haldið síma-
sambandi og síðustu ár einnig
netsambandi. Ester, sem er 19.
ára var hjá okkur í fimm vikur
og ferðuðust við, fjölskyldan
með henni þvert og endilangt
um landið á þeim tíma og er
óhætt að segja að þar hafi okk-
ur einnig gefist tækifæri á að
kynnast landinu frá öðru sjón-
arhorni, þar sem við settum
okkur í nánd við landið eins
og hægt er að ímynda sér að
erlendir ferðamenn geri þegar
þeir sækja landið heim. Einnig
er minnisstætt á árinu, ánægju-
legt og árangursríkt samstarf
með starfsmönnum Súðavík-
urhrepps og allra íbúa sem ég
hef átt samskipti við á árinu.
Er ég lít til baka er ekki annað
hægt en að vera sáttur við þann
árangur sem við höfum náð í
sveitarfélaginu, þó alltaf megi
gera meira og betur, en það
verður á verkefnalista fyrir
árið 2004.
Hvaða væntingar berð þú
til ársins 2004?
Ég ber mikilar væntingar til
ársins 2004. Sjálfur mun ég
leggja mig fram um að vanda
mig og gera betur á nýju ári,
bæði í einkalífi og starfi. Í
mínu sveitarfélagi sé ég fram-
undan mörg krefjandi og
áhugaverð verkefni til að vinna
að og fylgja öðrum eftir sem
þegar eru komin af stað.
Ég trúi því að á árinu munum
við fara að stíga upp úr þeim
tímabundna öldudal sem við
höfum verið í hér á Vestfjörð-
um, út frá atvinnu og búsetu-
legum skilningi séð. Við erum
komin inn í nýtt hagvaxtar-
skeið sem á eftir að eflast á
árinu og leiða af sér ný og
áhugaverð sprotafyrirtæki og
efla önnur. Ég vænti þess að
tímabili fólksfækkunar á Vest-
fjörðum sé nú að mestu lokið
og framundan sé hæg en örugg
fjölgun íbúa. Þetta er háleit
en raunhæf sýn, og það
skemmtilega við þetta er að
það er undir okkur komið
hvernig til tekst.
Einar Pétursson,
bæjarstjóri
í Bolungarvík
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum á inn-
lendum vettvangi á árinu sem
er að líða?
Það eru nokkur atriði sem
koma upp í hugann og þá sér-
staklega miklar breytingar á
fjármálamarkaði. Þar ber hæst
sala ríkisbankanna, sameining
Kaupþings og Búnaðarbanka
og nú hugsanlega Spron.
Launamál Kaupþingsmanna
voru áberandi og þau viðbrögð
sem urðu við því sem kallað
hefur verið sjálftaka launa.
Gríðarlegar breytingar urðu á
eignarhaldi stærstu fyrirtækja
landsins og sér ekki fyrir end-
ann á þeim. Alþingiskosningar
eru líka eftirminnilegar og það
vakti athygli hvað sjávarút-
vegsmálin voru áberandi í um-
ræðunni og einnig hvað Evr-
ópumálin voru lítið til um-
ræðu. Á vettvangi íþróttanna
er árangur knattspyrnulands-
liðanna mér ofarlega í huga
og ásamt afar skemmtilegu
unglingalandsmóti sem fram
fór á Ísafirði.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum af er-
lendum vettvangi á árinum
sem er að líða?
Stríðið í Írak er ofarlega í
huga og tel ég mjög mikilvægt
að Saddam hafi náðst þó seint
væri. Mikið hefur verið um
sjálfsmorðsárásir og hriðju-
verk sem ég er hræddur um að
eigi eftir að verða yfirvofandi
vá um ókomin ár. Morðið á
Önnu Lind var ógeðfellt og
vakti athygli á þeirri hættu sem
stjórnmálamenn geta verið í
vegna sinnar vinnu. Náttúru-
hamfarir settu svip sinn á árið
og voru jarðskjálftar þar fyrir-
ferðamiklir, gríðarlegt mann-
fall í jarðskjálftanum í Íran er
óhuggulegt og mér ofarlega í
huga.
Hvað er eftirminnilegast á
árinu hvað þig sjálfa(n) varðar
á árinu sem er að líða?
Það er að sjálfsögðu nýtt
starf mitt sem bæjarstjóri og
flutningur fjölskyldunnar til
Bolungarvíkur. Í vor útskrifað-
ist svo Aníta eiginkona mín
sem rekstrafræðingur frá Við-
skiptaháskólanum á Bifröst og
tók við nýju starfi og sonurinn
Ólafur Atli byrjaði í nýjum
skóla. Við fórum í skemmti-
legar útilegur á ættarmót, fót-
boltamót og unglingalandsmót
en annars var lítið um frí á
árinu.
Hvaða væntingar berð þú
til ársins 2004?
Í starfi vona ég að mér og
mínu samstarfsfólki takist að
ná sem flestum markmiðum
okkar er varða hagsmuni Bol-
ungarvíkur og ég láti gott af
mér leiða í starfi mínu. Í einka-
lífinu held ég að árið eigi eftir
að verða fjölskyldunni gleði-
og hamingjuríkt. Markmiðið
er að reyna að komast í betra
frí en síðasta ár og hafa meiri
tíma fyrir fjölskylduna og
áhugamálin. Ég er bjartsýnn á
að árið 2004 verði gæfuríkt
ár.
lendum vettvangi á árinu sem
er að líða?
Eftirminnilegustu atburðir-
nir af innlendum vettvangi eru
Íslandsmeistaratign KR í
knattspyrnu karla, sem ætíð er
fagnaðarefni og samningur um
dreifmenntarverkefni í V-
Barð.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum af er-
lendum vettvangi á árinum
sem er að líða?
Af erlendum merkisatburð-
um ber einnan helst að Swartz-
enegger var kjörinn ríkisstjóri
í Kaliforníu - og Keikó drapst
við Noregsstrendur.
Hvað er eftirminnilegast á
árinu hvað þig sjálfa(n) varðar
á árinu sem er að líða?
Eftirminnilegast hvað sjálf-
an mig varðar árið 2003:
óvenjulega lélegt veiðiár. Að-
eins ein stutt veiðiferð á Arn-
arvatnsheiðina - og Siv lokaði
á rjúpnaveiðina (hafi Siv þakk-
ir fyrir).
Hvaða væntingar berð þú
til ársins 2004?
Þó ekki sé liðnir nema tæp-
lega tveir dagar af árinu 2004
er ljóst að það verður fyrirsjá-
anlega betra ár en 2003, í alla
staði.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum á inn-
Brynjólfur Gíslason,
bæjarstjóri
í Vesturbyggð
Gerist áskrifendur
í síma 456 4560
Ertu orðinn
áskrifandi?
01.PM5 12.4.2017, 09:0011