Bæjarins besta - 07.01.2004, Side 15
15MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
> SkjárEinn: 8. janúar kl. 21:00
Bandarískir gamanþættir
um sendibílstjórann Doug
Heffernan, Carrie eiginkonu
hans og Arthur, hinn stór-
furðulega tengdaföður hans.
Stutt er í miðskólamót hjá
Doug. Hann hefur þungar
áhyggjur af því að hárgreiðsla Carrie sé of bókasafnsvarð-
arleg, því hann vill sýna bekkjarfélögunum fyrrverandi
hvað Carrie er flott.
The King of Queens
Sælkeri vikunnar
Arndís Hjartardóttir og Finnbogi
Bernódusson í Bolungarvík
Saltfiskur,
gellur og
gervirjúpa
Sportið í beinni
Sjónvarpið:
Föstudagur 9. janúar:
Kl. 20:10 – Landsleikur í
handbolta: Ísland - Sviss.
Laugardagur 10. janúar:
Kl. 13:50– Íslandsmótið í
handbolta kvenna:
Haukar – Stjarnan.
Kl. 15:50 – Landsleikur í
hanbolta: Ísland – Sviss.
Sýn:
Miðvikudagur 7. janúar:
Kl. 19:45 – Enski boltinn:
Chelsea – Liverpool.
Laugardagur 10. janúar:
Kl. 20:20 – Spænski bolt-
inn: Leikur óákveðinn.
Kl. 22:35 – NFL-deildin:
Leikur óákveðinn.
Sunnudagur 11. janúar:
Kl. 13:45 – Enski boltinn:
Leicester – Chelsea.
Kl. 15:50 – Enski boltinn:
Man. United – Newcastle.
Kl. 18:00 – NBA karfan:
Toronto – Portland.
Kl. 21:00 – NFL - deildin:
Leikur óákveðinn.
Stöð 2:
Laugardagur 10. janúar:
Kl. 14:45 – Enski boltinn:
Arsenal – Middlesbrough.
Canal+ Norge:
Miðvikudagur 7. janúar:
Kl. 20:00 – Enski boltinn:
Chelsea – Liverpool.
Laugardagur 10. janúar:
Kl. 15:00 – Enski boltinn:
Arsenal – Chelsea.
Sunnudagur 11. janúar:
Kl. 14:00 – Enski boltinn:
Leicester – Chelsea.
Canal+ Zap:
Laugardagur 10. janúar:
Kl. 15:00 – Enski boltinn:
Liverpool – Aston Villa.
Sunnudagur 11. janúar:
Kl. 14:00 – Enski boltinn:
Leicester – Chelsea
TV Danmark 1:
Laugardagur 10. janúar:
Kl. 18:30 – Spænski boltinn:
Albacete – Valencia.
Kl. 20:30 – Spænski boltinn
Þrjár námsmeyj-
ar fengu styrki
Dagrún Matthíasdóttir
og Saga Sigurðardóttir
fengu fyrir áramótin af-
hentan styrk úr Minning-
arsjóði Gyðu Marías-
dóttur. Dagrún er nemi
við Listaskólann á Akur-
eyri og Saga hefur fengið
inngöngu í listdansskóla í
Hollandi. Þá hlýtur Sunn-
eva Jasmín Bernharðs-
dóttir, nemandi við al-
þjóðlegan menntaskóla í
Hong Kong, styrk en hún
var fjarstödd. Gyða Marí-
asdóttir veitti Húsmæðra-
skólanum Ósk á Ísafirði
forstöðu frá 1924 og til
dauðadags árið 1936.
Gamlir nemendur Gyðu
stofnuðu sjóð til minning-
ar um hana á fimmtíu ára
afmæli skólans árið 1962.
Í fyrstu var hlutverk sjóðs-
ins að styrkja stúlkur frá
Ísafirði eða nærsveitum til
náms í heimilisfræðum
eða skyldum greinum en
nú er markmið hans að
veita vestfirskum konum
námsstyrki og styrkja
starfsemi á sviði menning-
ar og lista. Formaður sjóðs-
stjórnar er Sigrún Guð-
mundsdóttir, kennari á
Ísafirði, tilnefnd af Kven-
félaginu Ósk, en aðrir í
stjórn eru Brynjólfur Þór
Brynjólfsson, útibússtjóri
Landsabankans á Ísafirði
og Ólína Þorvarðardóttir
skólameistari. Afhend-
ingin fór fram í Faktors-
húsinu á Ísafirði.
– kristinn@bb.is
Ólína Þorvarðardóttir, Saga Sigurðardóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir
og Brynjólfur Þór Brynjólfsson við styrkveitinguna.
Arndís og Finnbogi bjóða
upp á kræsilega rétti úr þjóð-
legu hráefni með alþjóðlega
skírskotun. Saltfiskurinn
hefur verið verðmætur út-
flutningsvarningur í áraraðir
og gellurnar hagstæður heim-
iliskostur. Vestfirskar úrvals-
krásir gerast vart betri en
svartfugl með íslenskum
kryddjurtum. Að lokum er
boðið upp á gómsætan eftir-
rétt með kaffinu. Uppskrift-
irnar eru fyrir 4-6.
Allt í einum potti að
hætti húsbóndans
8-10 kartöflur
1 pakki sérútvatnaður salt-
fiskur
2 rauðlaukar
1 lítill púrrulaukur
1 rauð paprika (lítil)
1 græn paprika (lítil)
1 gul paprika (lítil)
svartur mulin pipar
smjör til að steikja upp úr
Kartöflurnar eru brytjaðar
í ræmur og steiktar í smjöri
segir húsbóndinn, síðan ann-
að grænmeti. Saltfiskurinn er
skorinn í ræmur og settur síð-
ast útí. Myljið svartan pipar
út á eftir smekk.
Borðið með heimabökuðu
rúgbrauði.
Gellur í sparikjól
750 g gellur
250-500 g brokkolí
1 askja púrrulauks smurostur
Sojamjólk eða rjómi
jurtasalt og sítrónupipar
ostur
Setjið gellur og brokkolí í
eldfast mót og kryddið með
jurtasalti og sítrónupipar.
Hrærið smurostinn með soja-
mjólk eða rjóma eftir hvað hver
vill. Hellið yfir gellurnar í mót-
ið, setjið rifin ost yfir og bakið
í ofni í 200°C í 30 mínútur eða
eftir þörfum.
Berið fram með híðishrís-
grjónum, speltbrauði og salati.
Rjúpa í plati (svartfugl)
4-8 stk svartfuglsbringur
marineraðar í 1-2 sólahringa
Marinering
Smá ólífuolía og sesamolía
örlítil skvetta balsamedik
2-2½ msk af blönduðum
vestfirskum kryddjurtum
(blóðbergi, rjúpnalaufi,
bláberja- og krækiberjalyngi)
sítrónupipar og jurtasalt
1 msk bláberjasulta eða
krækiberjasulta
Búið til sósuna úr soði
af beinunum, villikrafti,
bláberjasultu og afgangi af
marineringunni, maizena-
mjöli og rjómaskvettu.
Snöggsteikið bringurnar á
pönnu og látið þær bíða
smá stund.
Berið fram með sykur-
brúnuðum kartöflum og
waldorfsalati.
Eftirréttur með kaff-
inu – Suðræn sæla
Setjið jarðaber, banana,
kíví(eða þá ávexti sem ver-
ið er með hverju sinni) í
mót. Myljið makkarónu-
kökur saman við setjið smá
skvettu af grand marnier
út á.
Þekið með þeyttum
rjóma og stráið súkkulaði
yfir. Setjið inn í frysti og
berið fram hálffrosið.
Verði ykkur að góðu.
Við skorum á villimann-
inn hann Hafþór Gunnars-
son í Bolungavík að færa
okkur uppskriftir næstu
viku.
Fimmtugur
Sunnudaginn 11. janúar
nk. verður Kristján G.
Jóhannsson 50 ára. Í
tilefni af því tekur hann og
eiginkona hans, Inga S.
Ólafsdóttir á móti gestum
laugardaginn 10. janúar
frá kl. 19 í sal Frímúrara á
Ísafirði.
Til sölu!
Til sölu er falleg 3ja herb. íbúð á 3. hæð að
Stórholti 13 á Ísafirði. Gott útsýni yfir bæinn.
Áhvílandi húsbréf kr. 3 milljónir. Íbúðin er laus.
Verð: Tilboð.
Upplýsingar í símum 567 4547 og 895 2702
01.PM5 12.4.2017, 09:0015