Bæjarins besta - 07.01.2004, Blaðsíða 16
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
Fréttasíminn er 456 4560 · www.bb.is – daglegar fréttir á netinu
Bylgjan
mótmælir
Á aðalfundi skipstjóra-
og stýrimannafélagsins
Bylgjunnar á Vestfjörðum
sem haldinn var á gamlárs-
dag var samþykkt að mót-
mæla harðlega áformum
fjármálaráðherra að fella
niður sjómannaafslátt. Í
samþykkt félagsins er bent
á að sjómannaafslátturinn
hafi verið mikið skertur
frá því hann var upphaf-
lega settur á. Einnig bendir
félagið á að sjómenn einir
stétta greiði skatt af fæðis-
peningum sínum meðan
aðrar stéttir launþega sem
fá dagpeninga greidda
þurfi ekki að greiða skatta
af þeim. – hj@bb.is
Áramótin voru tíðinda-
lítil á sjúkrahúsinu á Ísa-
firði að sögn Þorsteins Jó-
hannessonar yfirlæknis.
Aðspurður um hvort
brunasár eða áverkar af
völdum skotelda hafi kom-
ið inn á borð hjá starfsfólki
sjúkrahússins segir hann
að sem betur fer virðist
menn vera orðnir varkár-
ari við áramótagleðina.
„Áramótin voru mjög ró-
leg. Menn eru greinilega
farnir að fara betur með
þessa hluti eins og við höf-
um lengi beðið um“, sagði
Þorsteinn. – kristinn@bb.is
Engin slys
Flugeldasala gekk mjög
vel fyrir áramótin að sögn
Jóhanns Bærings Pálma-
sonar hjá Björgunarfélagi
Ísafjarðar en félagið stóð
ásamt Björgunarsveitinni
Tindum fyrir flugeldasölu
á Ísafirði. „Salan er með
því mesta sem við höfum
séð og við erum afskaplega
þakklátir bæjarbúum fyrir
stuðninginn.“ sagði Jóhann
Bæring. Félögin voru með
flugeldasýningu við ára-
mótabrennurnar í Hnífs-
dal og á Ísafirði og gengu
þær mjög vel. – hj@bb.is
Góð flug-
eldasala
Einar Kristinn Guðfinsson, þingsflokksformaður Sjálfstæðisflokksins
Sjávarútvegsmálin rædd í aukn-
um mæli samhliða byggðaþróun
„Ég spái því að umræðan
um sjávarútveg verði miklu
meira áberandi samhliða um-
ræðu um byggðaþróun“, segir
Einar K. Guðfinnsson, þing-
maður í Norðvesturkjördæmi
og þingflokksformaður Sjálf-
stæðisflokksins, aðspurður um
átakalínur í stjórnmálunum á
næsta ári.
„Sú umræða sem fram fór í
haust um línuívilnun og sú um-
ræða sem núna fer fram vegna
áforma um að selja sjávarút-
vegshluta Eimskips sýnir að
alls staðar er mönnum ljóst
samhengi sjávarútvegsins,
fiskveiðiréttarins og byggða-
þróunar. Jafnvel í öflugum
byggðum eins og Akureyri,
sem styðst við margbrotna at-
vinnustarfsemi og er kvóta-
sterkasta byggðalag landsins,
þar er mönnum ljós þýðing
öflugs sjávarútvegs fyrir bygg-
ðina þar“, segir Einar Kristinn.
Hann segir alþingskosning-
ar í nýju kjördæmi síðasta vor
vera minnisstæðar. Kosninga-
baráttan hafi verið nýstárleg
og á margan hátt mjög erfið
vegna landfræðilegs umfangs.
„Baráttan var mjög spennandi
og átakamikil í okkar kjör-
dæmi sem m.a. helgaðist af
því að það var mjög tekist á
um sjávarútveginn. Út af fyrir
sig er það ekki nýtt fyrir vest-
firska þingmenn en sú umræða
varð meiri en flestir ætluðu í
upphafi.
Ég tel að kosningarnar hafi
undirstrikað andstöðu við
fyrningarleiðina en um leið að
fiskveiðistjórnun í landinu
verði að taka mið af hagsmun-
um byggðanna. Að mörgu
leyti hefur fram ákveðið upp-
gjör varðandi þær spurningar
sem fyrningaleiðin vakti og
mönnum er ljóst að sú leið
dugði a.m.k. ekki fyrir byggð-
irnar í landinu.“
Einar segir mjög spennandi
Einar Kristinn Guðfinnsson.
tíma framundan þar sem þjóð-
in sé á hraðri leið í mikla lífs-
kjarasókn. „Það er að verða
gríðarleg uppbygging í stór-
iðju í landinu, í fyrsta sinn
fjarri höfuðborgarsvæðinu. Í
tengslum við stækkun álvers-
ins á Grundartanga jafnframt,
sem skiptir gríðarlega miklu
máli fyrir suðurhluta hins nýja
Norðvesturkjördæmis, þá
reynir auðvitað heilmikið á
hagstjórnina í landinu. Miklu
máli skiptir að við nýtum þá
uppsveiflu til hagsbótar fyrir
allt landið og ekki síst norð-
vesturhornið sem er augljós-
lega afskipt í þeirri beinu inn-
spýtingu fjármagns sem verð-
ur í tengslum við stóriðjuupp-
bygginguna.
Á okkar svæði eru auðvitað
til staðar heilmiklir möguleik-
ar, ekki síst í grundvallarat-
vinnuvegunum og í ferðaþjón-
ustu svo dæmi séu tekin. Ég er
þeirrar skoðunar að það lag
sem skapast með aukinni
þenslu og fleiri störfum eigi
að nota til að færa opinber
störf út á landsbyggðina og þá
sérstaklega á svæðin sem ekki
njóta fjárfestinga í stóriðju.
Þegar uppsveiflan hefst fyrir
alvöru og fleiri störf verða til
m.a. á höfuðborgarsvæðinu
verður auðveldara en ella að
færa til opinber störf og það
eigum við hiklaust að gera.
Þannig beitum við ríkisvald-
inu, stærsta vinnuveitanda
landsins, með beinum hætti
til atvinnusköpunar á þeim
svæðum sem sérstaklega þurfa
á því að halda“, sagði Einar
Kristinn. – kristinn@bb.is
Áramótin
fóru vel fram
Áramótin fóru vel fram í
byggðum Vestfjarða sam-
kvæmt upplýsingum
blaðsins. Áramótabrenn-
ur voru víðast hvar í
byggðum á norðanverð-
um Vestfjörðum, m.a. á
Langeyri við Súðavík, í
Hnífsdal, á Þingeyrar-
odda, við gamla flugvöll-
inn í Bolungarvík og við
Hauganes í Skutulsfirði
og var fjölmenni á þeim
flestum. Ljósmyndari
blaðsins tók meðfylgjandi
myndir á áramótabrenn-
unni á Hauganesi sem og
þegar nýja árið gekk í
garð. Bæjarins besta
óskar lesendum sínum
nær og fjær, gleðilegs árs
með þakklæti fyrir það
liðna.
Siglingasamband Íslands
útnefndi fyrir áramótin, Bol-
víkinginn Sveinbjörn Hrafn
Kristjánsson sem ræðara árs-
ins. Útnefningin fór fram á
Grand Hótel í Reykjavík sam-
hliða kjöri íþróttafréttamanna
á íþróttamanni ársins 2003.
Að þessu sinni voru veittar
viðurkenningar í 28 íþrótta-
greinum innan Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands.
Sveinbjörn Hrafn er vel að við-
urkenningunni kominn en
þrátt fyrir að vera aðeins tví-
tugur að aldri er hann þegar
kominn í fremstu röð kajak-
ræðara landsins.
Sveinbjörn Hrafn var út-
nefndur íþróttamaður Bolung-
arvíkur fyrir árið 2002 og var
meðfylgjandi mynd tekin við
það tækifæri.
Sveinbjörn Hrafn útnefndur ræðari ársins
Sveinbjörn Hrafn Kristjáns-
son, ræðari ársins að mati
Siglingasambandsins.
01.PM5 12.4.2017, 09:0016