Bæjarins besta - 26.05.2004, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 3
Birgitta ráð-
in til bæjarins
Birgitta Baldursdóttir,
íþróttafræðingur og bókari,
hefur verið ráðin í starf full-
trúa á fjármálasviði Ísafjarð-
arbæjar. Tveir sóttu um stöð-
una, Birgitta og Pálína Garð-
arsdóttir sem gegndi áður
stöðu gjaldkera hjá Ísafjarð-
arbæ en henni var sagt upp
störfum í vetur og gjaldkera-
starfinu breytt. Umrædd
staða komst mjög í fréttir í
vetur þegar hún var auglýst
og í hana ráðinn starfsmaður
sem síðar upplýstist að hafði
enga starfsreynslu. Í kjölfar-
ið var öllu vinnulagi við
mannaráðningar hjá Ísafjarð-
arbæ breytt.
Sverrir verði
ráðinn
Fræðslunefnd Ísafjarðarbæj-
ar leggur til við bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar að Sverrir
Kristinsson verði ráðinn í
stöðu skólastjóra Grunnskóla
Önundarfjarðar. Þetta kom
fram á fundi fræðslunefndar
nú fyrir skemmstu. Tvær
umsóknir bárust um stöðuna
frá Sverri sem verið hefur
skólastjóri Brúarárskóla og
Finni Magnúsi Gunnlaugs-
syni, kennara á Akureyri.
Vigdís Garðarsdóttir sem
verið hefur skólastjóri
Grunnskóla Önundarfjarðar
síðustu ár sagði upp í vetur.
Fær 100 þús-
und í styrk
Ísafjarðarbær hefur veitt
Skíðafélagi Ísafirðinga 100
þúsund króna styrk í tilefni
af 70 ára afmæli félagsins.
Ákvörðun þess efnis var til-
kynnt á fundi bæjarráðs fyrir
stuttu. Skíðafélag Ísfirðinga
var stofnað árið 1934 og hef-
ur tímamótanna verið minnst
með margvíslegum hætti.
Skíðaíþróttin hefur gegnt
veigamiklu hlutverki í bæj-
arlífinu allan þann tíma og
hefur félagið alið af sér
marga afreksmenn, m.a. fjöl-
marga ólympíufara og Ís-
landsmeistara.
Keppni í þriðju deild
Íslandsmótsins í knattspyrnu
hófst um liðna helgi þegar
lið ÍH kom vestur, lék tvo
leiki og vann þá báða. Á
laugardag léku lið ÍH og lið
Boltafélags Ísafjarðar og
lauk leiknum með sigri ÍH
sem skoraði tvö mörg gegn
einu marki heimamanna. Á
sunnudag mættust síðan
Bolvíkingar í UMFB og ÍH
og lauk leiknum með sigri
ÍH sem skoraði fimm mörg
gegn tveimur mörkum
Bolvíkinga.
Tap í fyrstu
leikjum BÍ
og UMFBStaðarkirkja í Aðalvík er100 ára. Kirkjan var byggð
árið 1904 en þá var torfkirkja
sem reist var á milli 1850-
1860 orðin illa farin og hálf-
hrunin. Síðasti sóknarprestur
Sléttuhreppinga var séra Finn-
bogi L. Kristjánsson. Hann lét
af störfum árið 1945 og sjö
árum seinna lagðist hreppur-
inn í eyði.
Kirkja hefur verið í Aðalvík
frá því á miðöldum og í ka-
þólskri tíð var hún helguð Mar-
íu guðsmóðir og Pétri postula.
Til er máldagi kirkjunnar frá
1282 sem Árni biskup setti og
á 15. öld mun kirkjujörðin hafa
verið í eigu Vatnsfjarðar-
Kristínar. Andrea Harðardótt-
ir, sagnfræðingur, segir lítið
vitað um kirkjuhúsin sjálf í
gegnum tíðina en í Vatnsfjarð-
arannál er minnst á torfkirkj-
una að Stað árið 1651.
Laugardaginn 26. júní ætla
átthagafélög Sléttuhrepps í
Reykjavík og á Ísafirði, að
halda upp á 100 ára afmæli
kirkjunnar. Messað verður kl.
tvö þennan dag og að athöfn
lokinni verður kirkjukaffi á
prestssetrinu, sem séra Runólf-
ur Magnús Jónsson lét reisa
árið 1909 og var nýlega gert
upp. Um kvöldið verður svo
dansað í skólanum að Sæbóli.
– thelma@bb.is Staðarkirkja í Aðalvík.
Staðarkirkja í Aðalvík 100 ára
SUMARSTARF HJÁ FUNA
Á gámasvæði við Funa vantar starfs-
mann til afleysinga í sumar. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í síma 894 5959.
Þorskafjarðarheiðin hef-
ur verið opnuð bílaumferð
eftir að mokað var í gegn-
um snjóskafla á heiðinni í
gær. Að sögn Jóns Harðar
Elíassonar, rekstrarstjóra
Vegagerðarinnar á Hólma-
vík, er ástand hennar
furðugott miðað við árs-
tíma. „Á næstu dögum
munum við reyna að hefla
yfir stærstu holurnar og
eftir það verður hún
þokkalega fær en fyrst um
sinn verður fimm tonna
öxulþungatakmörkun á
veginum“, segir Jón Hörð-
ur. Þorskafjarðarheiði er
sem kunnugt er fjölfarinn
sumarvegur og víst að
margur ferðalangurinn
kætist við opnun hennar
þrátt fyrir að hún verði
seint talin með betri vegum.
Þorskafjarðarheiði opnuð
Kvikmyndaleikari fær andlits-
lyftingu í tilefni þrítugsafmælis
Einn af fallegustu bílum Ísa-
fjarðar hefur að undanförnu
verið tekinn í gegn í tilefni
þess að hann er orðinn þrjátíu
ára gamall. Um er að ræða
Mercedes Benz 280 SE í eigu
fyrirtækis Magnúsar Hauks-
sonar. Jónas Skúlason í Súða-
vík hefur að undanförnu unnið
við að sprauta bílinn og er
hann nú sem nýr.
Á þrjátíu árum hafa eigend-
ur bílsins aðeins verið þrír.
Björgvin Vilmundarson, þá-
verandi bankastjóri Lands-
banka Íslands, keypti bílinn
nýjan. Árið 1977 seldi Björg-
vin bílinn til Ásgeirs Guð-
bjartssonar, skipstjóra, sem
átti bílinn til ársins 2000 þegar
fyrirtæki Magnúsar eignaðist
hann. Bíllinn hefur aðeins ver-
ið ekinn um 150.000 km og
þar af einungis 50.000 km á
núverandi vél.
Segja má að bíllinn hafi
öðlast mikla frægð þegar hann
„lék“ sem leigubifreið í kvik-
Eins og sjá má er bílinn glæsilegur eftir fegrunaraðgerðina.
myndinni um Nóa albínóa sem
tekin var á Vestfjörðum. Í bíln-
um er bensínvél en þar sem
flestir leigubílar eru með die-
selvélar var hljóðrás myndar-
innar breytt svo bíllinn hljóm-
aði sem dieselbíll.
Magnús Hauksson segir
bíllinn einstaklega skemmti-
legan í akstri eins og títt er um
bíla af þessari gerð. „Hann
líður um þjóðvegina og það er
eins og maður sitji á töfra-
teppi“, sagði Magnús þegar
hann lýsti bílnum. Eins og áður
sagði hafa aðeins þrír átt bílinn
frá upphafi en nú er útlit fyrir
að sá fjórði bætist í hópinn því
Magnús segir bílinn falan fyrir
rétt verð.
„Nú þegar hann er orðinn
sem nýr finnst mér rétt að fleiri
fái hans notið og því er hann
falur.“ – hj@bb.is
Magnús Hauksson undir stýri á glæsibifreiðinni.
Tilboð í uppgræðslu snjóflóðavarna hagstætt
Framkvæmdasýsla ríkis-
ins metur tilboð Vesturvéla
ehf. á Ísafirði í uppgræðslu
snjóflóðavarnargarða við
Seljaland í Skutulsfirði hag-
stætt. Fram kemur í bréfi
Framkvæmdasýslunnar til
Ísafjarðarbæjar að eftir at-
hugun á fjárhagsstöðu og reyn-
slu Vesturvéla ehf. hafi ekkert
komið í ljós sem mæli gegn
fyrirtækinu sem verktaka við
framkvæmdirnar.
Tilboð Vesturvéla hljóðaði
upp á kr. 24.979.525 og er það
um hálfu prósentustigi yfir
kostnaðaráætlun verkkaupa
sem hljóðaði upp á kr.
24.836.500. Þrír verktakar
skiluðu inn tilboði í verkið og
voru þau opnuð hjá Ríkiskaup-
um 4. maí. Af innsendum til-
boðum reyndist Ásel ehf. á
Ísafirði vera lægst með kr.
17.544.300 eða 70,6% af
kostnaðaráætlun og næst læg-
stir voru Hólmar Guðmunds-
son í Mosfellsbæ og Jarðkraft-
ur ehf. í Kópavogi sem buðu
kr. 19.062.250 eða 76,7% af
kostnaðaráætlun. Tilboðin
töldust hins vegar bæði ógild.
Um er að ræða uppgræð-
slu á 650 metra löngum
garði, samsvarandi flóðafar-
vegi og 14 keilum auk upp-
græðslu raskaðs svæðis, alls
um 15 hektara.Verkinu skal
lokið fyrir 1. september árið
2006. – kristinn@bb.is
21.PM5 12.4.2017, 10:113