Bæjarins besta - 26.05.2004, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 20044
Fegurðardrottning með bíladellu
Ungfrú Vestfirðir árið
2004 er tvítug Önundar-
fjarðarmær, Margrét Magn-
úsdóttir, dóttir hjónanna
Magnúsar Hrings Guð-
mundssonar og Ebbu Jóns-
dóttur á Hóli. Að þessu sinni
tóku 9 yngismeyjar þátt í
keppninni, sem fram fór á
Ísafirði um miðjan síðasta
mánuð. Þær þóttu hver ann-
arri glæsilegri enda ákvað
dómnefnd að senda ekki
einn heldur þrjá fulltrúa til
keppni um titilinn Ungfrú
Ísland. Margrét er nemandi á
fjórða ári í Menntaskólanum
á Ísafirði og stefnir á að
ljúka stúdentsprófi við lok
næstu haustannar. Hún gerði
reyndar hlé á bóknáminu um
tíma og lauk prófi í blóma-
skreytingum frá dönskum
skóla. Óhætt er að kalla
Margréti hörkukvendi. Víst
er hún gullfalleg og fáguð í
framkomu en gefur staðal-
myndinni um fegurðardrottn-
inguna langt nef. Hún er öll-
um hnútum kunnug á mynd-
arlegu kúabúi fjölskyldunnar
og segir það ekki ganga hjá
sér að safna nöglum. Það
færi illa saman við sveita-
störfin. Þá er hún mikil bíla-
áhugakona og ráku karlkyns
skólafélagar hennar upp stór
augu þegar hún fékk sér for-
ljóst að ekki yrði slegið af
við líkamsrækt og göngu-
æfingar fyrir keppnina um
titillinn Ungfrú Ísland sem
haldin verður á Broadway í
Reykjavík 29. maí. Reyndar
gerði Margrét smáhlé á
æfingum fyrstu dagana eftir
Vestfjarðakeppnina en fór
fljótlega af stað á ný.
– Er ekki óhætt að segja
að þátttakan í keppninni hafi
verið mikil törn hjá ykkur
stelpunum? Þurfti ekki að
æfa heilmikið fyrir stóra
kvöldið?
„Undirbúningurinn fór
rólega í gang. Við fengum
hver og ein dagskrá um það
sem við áttum að leggja
áherslu á í líkamsræktinni og
síðan þegar keppniskvöldið
nálgaðist bættust við göngu-
æfingar.“
– Hvernig gengur að
samræma námið og undir-
búning og þátttöku í fegurð-
arsamkeppni þegar þetta ber
upp á prófatímann?
„Að minnsta kosti er ljóst
að maímánuður er anna-
samur og þá gildir að skipu-
leggja tímann vel – maður
verður að púsla þessu tvennu
saman. Að auki er þetta
líflegur tími í sveitinni með
sauðburði og tilheyrandi
stússi.“
– Fyrirfram er álitið að
fegurðardrottningar séu
frekar fínar píur en þú
gengur í sveitaverkin af
fullri hörku...
„Já, auðvitað, það þýðir
ekkert annað – það er ekki
hægt að sitja inni eins og
pempía heldur tekur maður
þátt í búrekstrinum með
fjölskyldunni eins og alltaf.“
– Svo þú getur ekkert ver-
ið að safna nöglum á fing-
urna, eða hvað?
„Nei, ég væri fljót að rífa
þær af.“
Komin á jeppa
– Það vakti víst mikla
eftirtekt á sínum tíma þegar
þú varst nýkomin með bíl-
próf og keyptir þér Mercedes
Benz. Ertu áhugamanneskja
um bíla?
„Já, það er óhætt að segja
það.“
– Ertu jafnvel með bíla-
dellu?
„Já, mikla bíladellu.
Bensinn var fyrsti bíllinn
sem ég eignaðist og ég var
löngu búin að ákveða að fá
mér þannig bíl. Pabbi hvatti
mig til að setja mér takmark
og safna fyrir honum svo að
það var unnið og unnið þar
til hann var í höfn. Frændi
minn hefur verið að flytja
inn bíla svo ég fékk hann á
góðu verði.“
– Áttu Bensinn ennþá?
„Nei, við unnusti minn átt-
um bæði bíla sem við seld-
um og fengum okkur Toyota
LandCruiser jeppa í staðinn.
Þó að færðin hafi verið mjög
góð og lítill snjór að undan-
förnu, þá finnst mér hentugra
að vera á jeppa. Bensinn
mátti sín lítils þegar byrjaði
að snjóa þó að það hafi verið
mjög ánægjulegt að aka
honum þess á milli.“
Vill fást við sköpun
Anna Fríða Magnúsdóttir,
systir Margrétar, býr í Dan-
mörku og það varð kveikjan
að því að Margrét hélt utan
til náms í blómaskreyting-
um.
„Mér fannst ég farin að
missa tengslin við Önnu
Fríðu og vildi fara í lýðhá-
skóla í Danmörku og vera
nálægt henni. En síðan var
mér bent á blómaskreytinga-
skóla sem vinkona hennar
láta drossíu af gerðinni Mer-
cedes Benz. Þátttakendur í
fegurðarsamkeppni Vest-
fjarða lögðu hart að sér við
undirbúninginn og strax var
21.PM5 12.4.2017, 10:114