Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.05.2004, Page 12

Bæjarins besta - 26.05.2004, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 200412 STAKKUR SKRIFAR Kjarni byggðar Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Smáauglýsingar Til leigu er 3ja herb. íbúð á eyr- inni á Ísafirði. Upplýsingar í síma 694 6810. Miðill á Ísafirði! Valgarður Ein- arsson miðill verður á Ísafirði frá 27. maí til 1. júní. Tímapantan- ir í síma 456 4245. Hefur þú séð Trek hjólið mitt? Því var stolið fyrir utan Mennta- skólann á Ísafirði fyrir u.þ.b. tveimur vikum. Það er silfrað og blátt með hnakki sem virðist vera í lausu lofti. Mjög sérstakt í útliti. Uppl. í símum 866 5312 eða 866 9552. Til sölu er vel með farin stafræn myndavél af Canon G3 gerð 4 Mega pixla. Fín vél á góðu verði. Uppl. í síma 895 5326. Óska eftir konu til að þrífa í heimahúsi hálfsmánaðarlega. Uppl. í símum 456 4088 eða 861 8228 eftir kl. 15. Til sölu er Mercedes Benz 190E árg. 1990, ekinn 230 þús. km. Bíllinn er í góðu standi miðað við aldur. Uppl. í síma 848 3428. Til sölu er nýleg kommóða með baði og skiptiborði. Upplýsingar í síma 899 0774. Til sölu eru fjögur lítið slitin 14" sumardekk. Verð kr. 10.000 fyrir öll dekkin. Upplýsingar í síma 894 4372. Vegna flutnings verður bílskúrs- sala að Fagraholti 1 á föstudag og laugardag frá kl. 13-17. Til sölu er VW Golf árg. 1999, ekinn 113 þús. km. Verð kr. 950 þús. Uppl. í síma 892 1955. Myndir af bílnum má sjá á heima- síðunni www.nh.is/basi/golf Til leigu er 4-5 herb. íbúð á besta stað á eyrinni á Ísafirði. Er í góðu standi. Uppl. gefur Axel Eiríksson í símum 861 3321 eða 553 2434. Til sölu er Kia Sportage árg. 01, ekinn 50 þús. km. Fjögur sumar- og nagladekk fylgja. Upplýsingar í síma 895 2922. Til sölu er MMC Lancer árg. 90, ekinn 173 þús. km. Upplýsing- ar í síma 662 4994. Foreldrar og forráðamenn! Kom- ið og kíkið á óskilamuni í Sund- höllinni sem fyrst. Til sölu er lítil trilla með 10 hest- afla vél. Tilboð óskast. Uppl. í síma 869 4849, Ábyrgan ungan mann vantar her- bergi til leigu á sanngjörnu verði í sumar. Upplýsingar í símum 456 5250 eða 695 3636. Til sölu er borðstofuborð og sex stólar. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 456 7266. Til sölu eru ýmsir tölvuhlutir á mjög góðu verði. Upplýsingar í símum 848 3435 eða 456 3470. Grímur Daníelsson. Ókeypis morgunverður, fræðsla fyrir foreldra og kannski frí frá vinnu Opið bréf til foreldra og atvinnurekenda þeirra Í fyrravor gerði Vá Vest- hópurinn tilraun með að standa fyrir klukkustundar löngum fyrirlestrum kl. 08:00 þrjá föstudagsmorgna. Allir fyrir- lestrarnir voru sérstaklega sniðnir fyrir foreldra barna og unglinga. Skemmst er frá því að segja að þessi tilraun mælt- ist mjög vel fyrir og hyggst Vá Vesthópurinn svara kallinu og halda aftur þrjá slíka fundi nú í vor. Margir atvinnurek- endur gáfu starfsmönnum sín- um frí á launum umrædda klukkustund, þ.e.a.s. meðan umræddir fundir stóðu yfir. Slíkt er að sjálfsögðu til fyrir- myndar og sýnir að viðkom- andi fyrirtæki eða stofnun ber hag starfsmanna sinna, sem foreldra sér fyrir brjósti. Hér mætti vísa til fjölskyldustefnu, sem ætti að vera hjá hverju fyrirtæki eða stofnun. Nú á næstu vikum verða haldnir þrír morgunverðar- fundir, eins og áður sagði, og allir á Hótel Ísafirði. Sá fyrsti hefst kl. 08:00 föstudaginn 28. maí nk. og lýkur honum eigi síðar en kl.09:00. Fundar- menn, sem fá að fara á fundinn úr vinnunni, ættu að vera mætt- ir til vinnu fljótlega uppúr kl. 09:00. Vá Vesthópurinn hefur fengið Huldu Karlsdóttur, hjúkrunarfræðing í Bolungar- vík, og nýjan liðsmann hóps- ins, til að flytja erindi um át- röskunarsjúkdóma á þessum fyrsta fundi. Hulda sem hefur öðlast þekkingu á þessum sjúkdómum, bæði sem fag- manneskja og einnig vegna ná- komins ættingja sem fékk þennan sjúkdóm. Föstudaginn 4. júní nk., kl. 08:00, munu starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar halda erindi undir yfirskriftinni „Árangur- sríkar leiðir í samskiptum for- eldra og barna“. Föstudaginn 11. júní nk., kl. 08:00, mun síðan lögreglan á Ísafirði verða með erindi um algengustu fíkniefni sem not- uð eru á Íslandi í dag, útlit þeirra, einkenni neytenda og fleira gagnlegt fyrir foreldra. Vá Vesthópurinn nýtur dyggs stuðnings SKG veitinga vegna þessara morgunverða- funda og hefur þannig náð góðum samningi um veitingar, sem Vá Vesthópurinn býður öllum fundargestum að þiggja meðan á fundunum stendur. Hér er kjörið tækifæri fyrir alla foreldra, barna sem ungl- inga, til að breyta til, fá leyfi úr vinnu, þiggja veglegan morgunverð hjá SKG og hlýða á fróðleg erindi sem ættu að styrkja foreldra. Rétt er að ítreka að aðgangseyrir er eng- inn og Vá Vesthópurinn gefur morgunmatinn. Vá Vesthópurinn hvetur alla áhugasama foreldra til að leita eftir stuðningi atvinnurekenda sinna til að fá að sækja fyrir- lestrana og sömuleiðis vill hópurinn hvetja atvinnurek- endur til að gefa starfsmönnum sínum þetta svigrúm, ef hægt er að koma því við. Verið er að leggja drög að nýjum göngustíg frá Stakkanesi og inn að Tunguá í Skutulsfirði. Um- hverfisnefnd Ísafjarðarbæj- ar hefur samþykkt að stígur- inn verði lagður um Selja- landsveg fyrir innan Grænagarð. Stendur til að gönguleiðin verði fullbúin og malbikuð um mitt sum- ar. Sigurður Mar Óskarsson, bæjartæknifræðingur Ísa- fjarðarbæjar, segir hönnun göngustígsins að fara í gang og sé miðað við að upphaf stígsins verði við Miðtúns- brekku og hann nái alla leið yfir Tunguá, nánar tiltekið að verslun Bónuss. Tillagan verður lögð fyrir bæjar- stjórn á næstunni og göngu- stígurinn jafnframt settur í grenndarkynningu. – thelma@bb.is Gerð göngu- stígs í bígerð Ný sumarhúsabyggð í Tunguskógi í Skutulsfirði Óskað álits Skipulagsstofnunar Stefán Brynjólfsson, bygg- ingarfulltrúi Ísafjarðarbæjar, hefur ritað Skipulagsstofnun bréf þar sem óskað er eftir áliti stofnunnarinnar á því að skipulögð verði ný sumarbú- staðabyggð í Tunguskógi í Skutulsfirði, norðan núverandi sumarbústaða. Í bréfi Stefáns kemur fram að árið 1999 hafi verið óskað álits stofnunar- innar á stækkun sumarbú- staðalandsins í Tunguskógi og hafi hún þá lagst gegn hug- myndunum. Í bréfinu kemur fram að Ísa- fjarðarbær taki málið upp að nýju í ljósi reglugerðar frá ár- inu 2000 um hættumat vegna ofanflóða, sem kveður á um að staðaráhætta sé metin á ann- an hátt en áður hefur verið gert og miðist mið notkun húss. Nær allir sumarbústaðirnir í Tunguskógi eyðilögðust í mannskæðu snjóflóði árið 1994. Þá var enduruppbygging svæðisins heimiluð en ívera í húsunum takmarkast við tíma- bilið frá 16. apríl til 15. des- ember ár hvert. Nú er sumar- bústaðalandið í Tunguskógi nær fullbyggt og hefur orðið talsverð umræða um þörf á nýjum sumarbústaðalóðum í sveitarfélaginu. – kristinn@bb.is Horft út Tungudal. Núverandi sumarbústaðabyggð í Tunguskógi sést á vinstri hönd en óskað er álits Skipulagsstofnunar á uppbyggingu handan hennar. Of lengi hefur ráðamönnum á Íslandi verið ofviða að ákveða framtíð byggðar á Íslandi. Byggðin hefur þó ráðið sér sjálf á suðvesturhorninu. Í Reykjavík og allra næsta nágrenni búa nú um 165.000 manns. Þá er ekki talið á Reykjanesi, Akranesi og í Árnessýslu. Íslendingar eru rúmlega 290.000. Minni hlutinn býr utan stórborgarinnar í Seltjarnarneshreppi hinum gamla og utan Kjósarsýslu. Vestfirðingar vega æ minna á vogarskál íslensku þjóðarinnar. Þá er að vísu ein- ungis verið að tala um þá sem á Vestfjörðum búa. Það skýtur skökku við að nú sé kominn nýr skilningur um byggðarkjarna á Vestfjörðum. Ekki skal lengur miðað við Ísafjörð heldur taka inn Bolungarvík og Súðavík. Sameining sveitarfélaga hefur verið mikið rædd í tengslum við eflingu byggðar. En sem fyrr er skammsýni ríkjandi og sjá menn lítt til framtíðar. Þess hefur áður verið getið að 1987 var mikil ráðstefna á Selfossi á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Byggðastofnunar um byggðaþróun. Fram komu gagnlegar og greindarlegar hugmyndir um ákveðna kjarna á landsbyggðinni. Þær fengu ekki hljómgrunn þeirra fjölmörgu sem höfðu umboð frá litlum sveitahreppum eða stýrðu fámennum þorpssamfélögum. Engu að síður hefur nokkuð gengið eftir í þeim efnum að mynda kjarna. Má nefna bæði Akureyri og Egilsstaði og verður einkar fróðlegt að sjá hver hlutur Egilsstaða verður í tengsl- um við hina stórkostlegu virkjun á Austurlandi og fylgjandi stóriðju. Víst má telja að allir Austfirðingar njóti góðs af, misjafnlega þó. Vestfirðir hafa sérstöðu. Um er að ræða fámennasta gamla kjördæmið, sem sameinaðist öðrum. Íbúar Vestfjarða eru orðnir innan við átta þúsunda íbúa markið. Að auki bætist, að ekki hefur tekist að ná nægilega mikilli samstöðu íbúanna, meðal annars vegna erfiðra samgangna, sem hafa þó tekið stórstígum framförum síðustu árin. Strandasýsla og Barðastrandasýslur hafa eðli málsins sótt samskipti við íbúa utan Vestfjarða, einkum íbúar Austur Barðastrandarsýslu og sunnaverðrar Strandasýslu. En ætla mætti að íbúar Ísafjarðarsýslna hefðu átt mikla samleið. Svo virðist þó stundum ekki vera. Er þá ekki verið að vísa til þess er íbúar Nauteyrarhrepps vildu ekki lengur eiga samleið með öðrum Djúp- verjum. Öllum má ljóst vera að löngu er orðið tímabært að efla samkennd byggðanna við Ísafjarðardjúp. Betur gekk að sameina sveitarfélög Vestur Ísafjarðarsýslu og Ísafjarðarkaupstað en Djúpverja. Tímabært er að sameina Bolungarvík, Ísafjarðarbæ og Súðavíkurhrepp. Meginrökin eru þau, að efla styrk íbúanna á norðanverðum Vestfjörðum. Þá kemur boðskapur þingmanna að byggðarkjarni skuli dreifast um marga staði. Nú skal tekið fram að þjónusta verður til staðar þar sem íbúar eru þótt sameinað sé, en hjá hinu verður aldrei litið að gæta verður sparnaðar og aðhalds, ekki síst þegar íbúum fækkar jafnt og þétt. Kannski hafa menn lesið rangt í skilaboð fyrsta þingmanns Vestfjarða, en þau má auðveldlega skilja svo að verið sé að ýta undir óbreytt ástand. Ekki gleyma tvennu. Íbúarnir ráða mestu um sameiningu. Hitt kann að gerast að ráðin verði tekin af þeim. Sameinaður vilji heimamanna er betri kostur. 21.PM5 12.4.2017, 10:1112

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.