Bæjarins besta - 05.11.2003, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
ÚTGÁFAN
ISSN 1670 - 021X
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður
Sími 456 4560,
Fax 456 4564
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson,
sími 892 5362, bb@bb.is
Blaðamenn:
Kristinn Hermannsson
sími 863 1623
kristinn@bb.is
Halldór Jónsson
sími 892 2132
hj@bb.is
Ritstjóri netútgáfu:
Hlynur Þór Magnússon
sími 892 2240
hlynur@bb.is
Ljósmyndari:
Halldór Sveinbjörnsson
sími 894 6125,
halldor@bb.is
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjörnsson
RITSTJÓRNARGREIN
Er ekki tímabært að losa um handtakið?
bb.is
pú
lsi
nn
fy
rir
ve
sta
n
Sölustaðir á Ísafirði:
Hamraborg, Hafnarstræti
7, sími 456 3166. Flug-
barinn, Ísafjarðarflugvelli,
sími 456 4772. Bónus,
Ljóninu, Skeiði, sími 456
3230. Bókhlaðan, Hafn-
arstræti 2, sími 456 3123.
Bensínstöðin, Hafnarstræti,
sími 456 3574. Samkaup,
Hafnarstræti 9-13, sími 456
5460. Krílið, Sindragata 6,
sími 456 3556.
Lausasöluverð er kr. 250
eintakið m.vsk. Áskriftarverð
er kr. 215 eintakið. Veittur
er afsláttur til elli- og
örorkulífeyrisþega. Einnig
sé greitt með greiðslukorti.
Umboðsaðilar BB:
Eftirtaldir aðilar sjá um
dreifingu á blaðinu á þétt-
býlisstöðum utan Ísa-
fjarðar: Bolungarvík:
Sólveig Sigurðardóttir,
Hlíðarstræti 3, sími 456
7305. Súðavík: Sólveig
Gísladóttir, Arnarflöt 7, sími
456 4106. Suðureyri:
Deborah Anne Ólafsson,
Aðalgötu 20, sími 898
6328. Flateyri: Gunnhildur
Brynjólfsdóttir, Brimnesvegi
12a, sími 456 7752.
Þingeyri: Anna Signý
Magnúsdóttir, Hlíðargötu
14, sími 456 8233.
Þetta árið eru sauðfjárbændur vandamálið. Offramboð á kjöti, lækkandi afurðaverð
og birgðasöfnun. Afkoma bænda er skelfileg. Úrræði stjórnvalda: Skylduútflutningur
á lambakjöti á spottprís. Nefnd sett í málið til að meta í alvöru vandann sem nú steðjar
að sauðfjárbændum. Ráðherrafundur Alþjóða viðskiptastofnunarinnar -WTO- sem
haldinn var í Mexíkó fór út um þúfur. Verndartollar hins ,,frjálsa markaðar“ munu því
áfram standa í vegi fyrir því að þróunarríkin komi landbúnaðarvörum sínum á fram-
færi. Enn einn gálgafresturinn fyrir íslenska landbúnaðarstefnu. Fyrr en seinna munu
þó höggvin skörð í verndarmúra gegn frjálsri sölu á landbúnaðarvörum landa á milli.
Og hvað gera íslenskir bændur þá eftir að hafa verið bundnir á klafa ofstjórnar áratug-
um saman? Bændur sem hafa sýnt tilburði til að rísa upp gegn kerfinu hafa verið litnir
horn-auga. Ekki komist upp með neitt múður.
,,Okkar Íslendinga bíður að búa íslenskan landbúnað undir breytt rekstrarumhverfi
(frjáls viðskipti á heimsmarkaði) á næstu árum. Afleiðingin verður sú að hagræða þarf
í íslenskum landbúnaði svo hann geti tekist á við aukna erlenda samkeppni.“ ,,Við
verðum að treysta á það að stjórnvöld leiði íslenskan landbúnað í gegnum ferlið (sem
kæmi í kjölfar væntanlegra samninga innan WTO) þannig að hann standi sterkari á
eftir.“ Tilvitnanir af þessu tagi í ummæli nýgræðinga í íslenskum stjórnmálum á haust-
dögum 2003, benda ekki til mikilla vatnaskila í íslenskum landbúnaði. Hafa ekki
stjórnvöld verið að ,,leiða íslenskan landbúnað“ í gegnum hin og þessi kerfi lengur en
elstu bændur muna? Nei, vatnaskila er fyrst að vænta þegar bændur taka málin í eigin
hendur. Losa sig við óþarfa milliliði. Taka að bera ábyrgð á framleiðslu og sölu afurða
sinna.
Bændagisting hefur rutt sér til rúms og mun almennt vel þokkuð. Bændur er gott
heim að sækja. Frelsi þeirra til að gera vel við gesti sína er þó takmarkað, að minnsta
kosti þá sem vilja neyta ósnortinna afurða, líkt og spenvolgrar mjólkur, sem áreiðanlega
er heislusamlegri en obbi þeirrar rotvarnarfylltu verksmiðjuframleiðslu, sem fyllir hill-
ur stórmarkaða og vegasjoppa. Slíkt er með öllu bannað. Mjólkin skal fyrst hristast í
tönkum tugi kílómetra aksturs í mjólkursamlagið og síðan aftur til bóndans í pappaum-
búðum. Þá fyrst má hún vera á borðum fyrir gesti bóndans! Er hægt að hugsa sér öllu
meiri vitleysu? Og nú á eina ferðina enn að bjarga bændum af alvöru með hagræðingu
og aðlögun og með því að stjórnvöld að haldi í hendina á þeim líkt og verið hefur!
Er ekki tímabært að bændur losi um handtakið? s.h.
Flutningabíll og fólks-
bíll lentu saman á veginum
í Súðavíkurhlíð milli Ísa-
fjarðar og Súðavíkur á
sjötta tímanum á mánu-
dag.
Ökumennina sakaði
ekki en fólksbíllinn hafn-
aði mikið skemmdur utan
vegar. Flutningabíllinn
skemmdist hins vegar lítið.
Áreksturinn varð þegar
ökumaður flutningabílsins
var að taka fram úr fólks-
bílnum. Lélegt skyggni var
þegar óhappið varð, snjó-
koma og laus snjór á veg-
inum. –bb.is
Árekstur á
Súðavíkurhlíð
Vestfirðir
Ísafjörður
Arabískt
kvöld og
magadans
Arabískt kvöld verður í
Edinborgarhúsinu á Ísa-
firði á laugardagskvöldið,
8. nóvember. Að kvöldinu
standa Menningarmið-
stöðin Edinborg, Fjöl-
menningarsetur, Rætur,
samtök áhugafólks um
menningarfjölbreytni, og
Ísafjarðardeild Rauða
krossins. Gestur kvöldsins
verður Amal Tamimi. Hún
mun flytja erindi um Pal-
estínu, boðið verður upp á
arabískan mat og gestum
gefst tækifæri til að kynn-
ast magadansi.
Dagskráin hefst kl 19.30
og kostar kr. 2.000 en þar
er matur innifalinn. Miða-
pantanir eru í síma 456
4453, 456 5444 og 864
2998. Nánari upplýsingar
veita Amal í síma 899 2301
og Elsa í síma 450 3090.
– hlynur@bb.is
Þingeyri
Tónlisarkennari
tekur til starfa
Nú í vikunni er hafin á
nýjan leik langþráð tónlistar-
kennsla á Þingeyri. Eistlend-
ingurinn Olavi Körre er kom-
inn vestur ásamt fjölskyldu
sinni og tekur strax til starfa.
Olavi er fjölhæfur tónlist-
armaður og getur leikið á
fjölda hljóðfæra, auk þess
sem hann er mikill söngmað-
ur, segir á Þingeyrarvefnum.
Hann hefur sérhæft sig í
þjóðlagatónlist, einkum síns
heimalands og svo frá Grikk-
landi, og hefur sungið og
leikið slíka tónlist inn á
geisladiska. Hann mun einn-
ig starfa sem organisti.
Mestur kvóti var leigður frá
Akureyri á árunum 2001-2003
og mest leigt til Grindavíkur.
Á Vestfjörðum var mest leigt
til Flateyrar en mest leigt frá
Bíldudal. Útgerðarfélag Akur-
eyringa leigir frá sér mestan
kvóta en Þorbjörn-Fiskanes
leigir til sín mest.
Sjávarútvegsráðherra, Árni
M Mathiesen (D) hefur svarað
á Alþingi fyrirspurn Jóhanns
Ársælssonar þingmanns (S)
um flutning veiðiheimilda
fiskveiðiárin 2001/2002 og
2002/2003 í botnfisktegund-
um. Í svari hans kemur fram
að mest aflamark þ.e. kvóti
innan árs var á þessu tímabili
leigt frá Akureyri eða 9.196
þorksígildistonn. Í öðru sæti
yfir sveitarfélög voru Vest-
mannaeyjar en þaðan voru
leigð 6.116 tonn, þá Ólafs-
fjörður en þaðan voru leigð
3.347 tonn og frá Skagaströnd
voru leigð 2.519 tonn.
Mest aflamark þ.e. kvóti
innan ársins var leigt til
Grindavíkur eða 5.833 tonn. Í
Garðinn voru leigð 3.798 tonn,
í Hafnarfjörð 2.716 tonn og til
Ólafsvíkur voru leigð 2.221
tonn á þessum árum.
Af sveitarfélögum á Vest-
fjörðum má nefna að mest var
leigt til Flateyrar eða 1.978
tonn, til Patreksfjarðar voru
leigð 1.217 tonn, í Bolungar-
vík voru leigð 983 tonn og
871 tonn voru leigð á Tálkna-
fjörð. Til Ísafjarðar voru leigð
179 tonn, til Suðureyrar voru
leigð 151 tonn og til Súðavíkur
4 tonn. Frá Bíldudal voru hins-
vegar leigð 382 tonn á tíma-
bilinu og vekur það athygli
vegna frétta þaðan að undan-
förnu. Frá Hnífsdal voru leigð
290 tonn á þessum árum.
Ef litið er á einstök fyrirtæki
leigði Útgerðarfélag Akureyr-
inga frá sér mestan kvóta á
þessu tímabili eða 5.637 tonn,
Útgerðarfélagið Tjaldur ehf.
leigði 5.624 tonn, Vinnslu-
stöðin hf. leigð frá sér 4.784
tonn, Útgerðarfélagið Hjalt-
eyrin 3.098 tonn og Þormóður
Rammi-Sæberg leigði frá sér
2.842 tonn.
Þorbjörn - Fiskanes hf. í
Grindavík leigði mestan kvóta
til sín á þessum árum eða 3.626
tonn, Grandi hf. leigði 2.833
tonn, Nesfiskur hf. í Garði
leigði til sín 2.330 tonn, Har-
aldur Böðvarsson 1.920 tonn
og Flói ehf. 1.818 tonn. Vestri
ehf., á Patreksfirði leigir mest-
an kvóta til sín eða 1.207 tonn
og Útgerðarfélagið Ós í Bol-
ungarvík 1.031 tonn.
Það skal áréttað að hér er
um að ræða botnfiskveiði-
heimildir og þær eru reiknaðar
í þorskígildum.
– hj@bb.is
Flateyringar keyptu mestan kvóta
Bílddælingar leigðu frá sér mestan kvóta á árunum 2001-2003
Húsafriðunarnefnd ríkisins
23 styrkir til
verkefna á
Vestfjörðum
Húsafriðunarnefnd ríkisins
veitti 23 styrki til margvíslegra
verkefna á Vestfjörðum á
þessu ári, samtals að fjárhæð
liðlega 22 milljónir króna.
Hæstu framlögin voru til Vatn-
eyrarbúðar á Patreksfirði, 7
milljónir, og Gamla félags-
heimilisins við Brekkugötu á
Hólmavík, 5 milljónir. Til
húsakannana á Patreksfirði og
Bíldudal annars vegar og í
Bolungarvík hins vegar var
veitt 750 þúsund krónum á
hvoru svæði.
Veitt var fé til sex friðaðra
kirkna á Vestfjörðum. Hæsta
upphæðin eða 2 milljónir renn-
ur til Þingeyrarkirkju en fjár-
hæðir á bilinu 100 þúsund til
600 þúsund renna til bæna-
hússins í Furufirði, Sauðlauks-
dalskirkju, Patreksfjarðar-
kirkju, Saurbæjarkirkju á
Rauðasandi og Hólskirkju í
Bolungarvík.
Önnur viðfangsefni á Vest-
fjörðum sem fengu styrki frá
Húsafriðunarnefnd eru Fakt-
orshúsið í Hæstakaupstað á
Ísafirði, Gunnlaugshús í Flat-
ey, Aðalstræti 8 á Ísafirði,
Riis-hús á Borðeyri, Ásgarður
í Flatey, Flateyjarkirkja, prest-
sbústaðurinn á Brjánslæk,
Smiðjan á Bíldudal, Strand-
gata 6 á Bíldudal, Hrafnabjörg
í Arnarfirði, Tangagata 4 á Ísa-
firði, gamli hjallurinn í Ögri
við Ísafjarðardjúp og Kollsá I
í Bæjarhreppi í Strandasýslu.
Styrkir til verkefna á landinu
öllu eru 118, samtals að fjár-
hæð rétt liðlega 100 milljónir
króna. Umsóknir um styrki
voru 237. – hlynur@bb.is
Þingeyrarkirkja.
44.PM5 18.4.2017, 11:572