Bæjarins besta - 05.11.2003, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 13Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Ég og starfið
Framrás – nám fyrir skrifstofufólk
Þriðjudaginn 11. nóvember hefst Framrás 1 á Ísafirði. Framrás,
sem er nám fyrir skrifstofufólk, er í þremur sjalfstæðum hlutum.
Nám þetta hefur notið mikilla vinsælda á höfuðborgarsvæðinu.
Dagskrá:
Þriðjudagurinn 11. nóvember kl. 11:30 - 17:30
Samskipti, ágreiningur og liðsheild.
Eyþór Einarsson.
Miðvikudagurinn 12. nóvember kl. 08:30 - 15:30
Tilfinningagreind, sjálfstraust og starfsánægja.
Eyþór Einarsson.
Þriðjudagurinn 25. nóvember kl. 11:30 - 17:30
Starfsþróun, starfsframi, vinna og einkalíf.
Ingrid Kuhlman.
Miðvikudagurinn 26. nóvember kl. 08:30 - 12:00
Að takast á við breytingar.
Ingrid Kuhlman.
Miðvikudagurinn 10. desember kl. 08:30 - 15:30
Streita og álag.
Marteinn Steinar Jónsson.
Námskeiðsgjald er kr. 25.000.- á þátttakanda. Starfsmennt greiðir
námskeiðsgjald fyrir starfsmenn ríkisstofnana, aðrir starfsmennta-
sjóðir styrkja sína félaga.
Athugið að þótt námið sé hugsað fyrir skrifstofufólk er fyrsti hlut-
inn almennur og á erindi til allra. Þess vegna eru allir velkomnir.
Skráning er hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða, sími 456 5025.
Netfang: frmst@frmst.is. Veffang: www.frmst.is
Fræðslumiðstöð Vestfjarða.
Starfsstúlkur FSÍ nutu
heimboðs Jóa Júl
Glatt var á hjalla á heimili hins aldna athafnamanns
Jóhanns Júlíussonar á Ísafirði þegar starfsstúlkur Fjórð-
ungssjúkrahússins þáðu heimboð hans kvöld eitt í síð-
ustu viku. Jóhann hefur oft notið góðrar þjónustu starfs-
fólksins FSÍ þegar hann hefur sótt sér lækningar þar á
undanförnum árum og þótti ánægjulegt að fá að veita í
þetta sinn. Stúlkurnar skemmtu sér vel með Jóa Júl, eins
og kappinn er jafnan kallaður, en hann hafði á orði að
það væri ekki á hverjum degi sem 91 árs maður hefði á
fjórða tug kvenna í kringum sig. – kristinn@bb.is
Jóhann Júlíusson ásamt starfsstúlkum Fjórðungssjúkra-
hússins á Ísafirði.
Bolungarvík: Ágúst og
Flosi buðu lægst
Opnuð hafa verið tilboð í breytingar á leikskólanum í
Hlíðarstræti í Bolungarvík. Alls bárust fimm tilboð í
verkið og var lægsta tilboðið frá Ágúst og Flosa ehf., á
Ísafirði, rúmar 9,4 milljónir króna. Önnur tilboð sem
bárust voru frá Trésmiðjunni hf. í Hnífsdal að upphæð
rúmar 10,9 milljónir, Múrkraftur bauð rúmar 11,5
milljónir, Spýtan ehf., 12 milljónir og hæsta tilboðið
barst frá F.B. Festingu að upphæð rúmar 12,1 milljónir
króna. Kostnaðaráætlun var 10,5 milljónir króna og var
því lægsta tilboð um 90% af áætlun. – hj@bb.is
Högni kvaddur með 200 radda
söng eftir tuttugu ára starf
Krakkarnir færðu Högna innrammað ljóðið í kveðjuskyni.Högni í barnaskaranum á föstudag.
Högni Marsellíusson lét
af störfum sem skólaliði
hjá Grunnskólanum á Ísa-
firði á föstudag eftir tutt-
ugu ára starf sem skólaliði.
Nemendur í 1.-4. bekk, um
200 talsins, sungu kveðju-
brag fyrir Högna sem sam-
inn var af Þóru Karlsdótt-
ur kennara við lag Atla
Heimis Sveinssonar „Snert
hörpu mína himinborna
dís“. Börnin höfðu æft lag-
ið dagana á undan, bæði á
laun heima hjá sér og í
skólanum. Mikil leynd
hvíldi yfir fyrirætlunum
kórsins enda var söngnum
ætlað að koma Högna á
óvart. Að lokum færðu
krakkarnir Högna kveðju-
ljóðið innrammað. Ekki
fór á milli mála að Högni
fann mikið til söngs barn-
anna enda ekki allir sem
uppskera slíkar kveðjur
við starfslok. – kristinn@bb.is
Verslanir í miðbæ Ísafjarðar
Enginn samræmd-
ur afgreiðslutími
Ýmsir hafa kvartað yfir mis-
munandi afgreiðslutíma versl-
ana í miðbæ Ísafjarðar á laug-
ardögum. Samkvæmt könnun
blaðsins er ljóst að afgreiðslu-
tíminn er nánast eins misjafn
og verslanirnar eru margar og
virðist engin samræming ríkja.
Ef marka má frásagnir við-
skiptavina virðist sem sumar
verslanir hafi stundum ekki
einu sinni opið á auglýstum
afgreiðslutíma á laugardögum.
Fyrsta verslunin er opnuð
klukkan sjö að morgni laugar-
dags en það er Gamla bakaríið.
Síðan er verið að opna versl-
anir hverja af annarri til há-
degis, þær sem eru opnaðar á
annað borð á laugardögum, en
svo er ekki um allar. Fyrstu
versluninni er síðan lokað
klukkan tólf á hádegi og eftir
það er hverri af annarri lokað
fram til kl. 23:30 þegar Hamra-
borg er lokað.
Að sögn kaupmanna kemur
umræðan um samræmdan
afgreiðslutíma upp annað slag-
ið. Síðast var stórt átak gert
um verslunarmannahelgina en
þá lengdu verslanir afgreiðslu-
tíma sinn vegna Landsmóts
UMFÍ sem haldið var á Ísa-
firði.
Engin formleg samtök
kaupmanna í miðbænum eru
starfandi og því enginn form-
legur vettvangur þar sem þessi
umræða getur farið fram. Í
samtölum við kaupmenn kom
fram að þeir eru flestir hlynntir
því að setjast niður og reyna
að móta einhverja heildar-
stefnu. Þarna virðist þó sagan
um litlu gulu hænuna endur-
taka sig og hver bendir á ann-
an. Sumir kaupmenn telja hins
vegar að afgreiðslutími versl-
ana sé kominn út í öfgar. Leng-
ri afgreiðslutími þýði bara
hærra vöruverð á endanum.
Einn kaupmaður fullyrti t.d.
að aldrei gæti borið sig að
hafa opið á laugardögum.
Flestir telja þó að slíkt sé ein-
faldlega krafa nútímasamfé-
lags sem kaupmenn verði að
uppfylla, hvort sem þeim líkar
það betur eða verr.
Hvort hinn ríki vilji til sam-
ræmingar á afgreiðslutíma í
miðbæ Ísafjarðar ber ávöxt
mun tíminn leiða í ljós.
– hj@bb.is
44.PM5 18.4.2017, 11:5713