Bæjarins besta - 24.07.2002, Side 1
Sitja við ritstörf í ver-
búð Norðurtangans
– sjá viðtal við hjónin Hrafn Jökulsson
og Guðrún Eva Mínervudóttir í miðopnu
Miðvikudagur 24. júlí 2002 • 30. tbl. • 19. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Veffang: www.bb.is • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
ISSN 1670 - 021X
Vestfirðir
Sjö sækjast
eftir skatt-
stjórastólnum
Sjö umsóknir bárust um
stöðu skattstjóra Vest-
fjarðaumdæmis en um-
sóknarfrestur um stöðuna
rann út þann 14. júlí sl.
Umsækjendur eru Álf-
heiður D. Gunnarsdóttir,
Björn Jóhannesson, Guð-
rún Björg Bragadóttir, Ól-
afur Páll Gunnarsson, Pét-
ur Björnsson, Valdimar
Tómasson og Þórir Jó-
hannesson.
Fjármálaráðherra mun
skipa í stöðuna um næstu
mánaðarmót til fimm ára
frá og með 1. september.
Bolungarvík
Ólafur ráðinn
fram á haust
Ráðningarsamningur
Ólafs Kristjánssonar bæj-
arstjóra Bolungarvíkur
hefur verið framlengdur til
31. október . Þetta var sam-
þykkt samhljóða á fundi
bæjarstjórnar Bolungar-
víkur þann 10. júní sl. að
tillögu Elíasar Jónatans-
sonar, forseta bæjarstjórn-
ar.
Þar kom fram að Ólafur
hefur lýst sig reiðubúinn
til að starfa með nýjum
bæjarstjóra og setja hann
inn í starfið sé þess óskað.
Fundurinn var sá síðasti
fyrir sumarfrí bæjarstjórn-
ar, en á meðan á því stend-
ur hefur bæjarráð umboð
bæjarstjórnar. Næsti reglu-
legi fundur bæjarstjórnar
er fyrirhugaður 29. ágúst.
Fjárskaði að Hólum í Dýrafirði
Tæplega 70 lömb fæddust
andvana á bænum Hólum í
Dýrafirði í maí. Ástæða fjár-
skaðans er rakin til smits frá
köttum. Nokkur fjöldi katta
hafði verið á bænum fram að
þessu en þeir fengu fljótlega
að hverfa eftir að smitið kom
upp.
Friðbert Jón Kristjánsson,
bóndi á Hólum, segir að katt-
arsmit hafi komið upp víðar
og valdið fjárskaða. „Kettirnir
hafa verið á bænum í nokkurn
tíma en þetta hefur aldrei kom-
ið upp áður hjá mér. Mér skilst
að smitið sé í öllum köttum
og það hafi líka fundist í
mannfólki“, segir Friðbert.
Skaði Friðberts er mikill þar
sem tryggingar ná ekki til fjár-
skaða af þessu tagi. Hann
hyggst þó athuga með styrk
úr Bjargræðasjóði.
Tæplega sjötíu lömb fæddust
andvana vegna kattarsmits