Bæjarins besta - 27.11.2002, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 27. nóvember 2002 • 48. tbl. • 19. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Veffang: www.bb.is • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
100 ára afmælis vélvæðingar í fiskibátaútgerð á Íslandi minnst
Sexæringurinn Stanley var
fyrsti íslenski vélbáturinn
Hátíðarhöld voru á Ísafirði
á laugardag í minningu þess,
að öld er liðin frá því að fyrst
var sett vél í bát á Íslandi. Það
var einmitt gert á Ísafirði og
telst sá atburður marka ein-
hver merkustu þáttaskil sem
orðið hafa í íslenskri útgerðar-
og atvinnusögu. Báturinn var
sexæringurinn Stanley en vél-
in dönsk af gerðinni Møllerup.
Fyrir hátíðarhöldunum stóðu
Byggðasafn Vestfjarða og
Vélstjórafélag Íslands, en
þessi atburður fyrir einni öld
markar upphaf vélstjórastétt-
arinnar á Íslandi.
Vélin í Stanley kom til Ísa-
fjarðar 5. nóvember 1902 en
báturinn fór sína fyrstu ferð
með vélarafli 25. nóvember.
Formaður á Stanley var Árni
Gíslason, sem átti hann í fé-
lagi við Sophus J. Nielsen,
verslunarstjóra Tangsverslun-
ar á Ísafirði. Meðal gesta á
Ísafirði við hátíðarhöldin á
laugardag var Þorsteinn Páls-
son, sendiherra í Lundúnum
og fyrrum sjávarútvegsráð-
herra, en Árni Gíslason var
langafi hans. Þar var einnig
afkomandi J.H. Jessens vél-
fræðings, sem fylgdi fyrstu
vélinni til Íslands og markaði
síðan varanleg spor í sögu Ísa-
fjarðar.
Í tilefni af þessum tímamót-
um var á laugardag opnuð
sögusýning í Byggðasafni
Vestfjarða í Neðstakaupstað
á Ísafirði. Þar getur meðal ann-
ars að líta Møllerup-vél smíð-
aða 1902, sem hugsanlegt er
að sé einmitt sama mótorvélin
og knúði Stanley fyrir hundrað
árum.
Sjá nánar á bls. 8.
Finnbogi Bernódusson, Pétur Sigurðsson, Jón Ólafur Sigurðsson og Guðmundur Einarsson
skoða Møllerup-vélina frá 1902 á sýningunni í Byggðasafninu á Ísafirði.
Skoðanakönnun DV meðal kjósenda í Norðvesturkjördæmi
Einar K. Guðfinnsson, fyr-
sti þingmaður Vestfirðinga,
nýtur mests álits af stjórn-
málamönnum í Norðvestur-
kjördæmi meðal kjósenda í
kjördæminu, samkvæmt
skoðanakönnun DV sem gerð
var í síðustu viku. Annars veg-
ar var spurt um þann stjórn-
málamann í kjördæminu sem
fólk hefði mest álit á og hins
vegar þann sem fólk hefði
minnst álit á. Flestir nefndu
Einar Kristin sem þann sem
þeir hefðu mest álit á. Hins
vegar komst hann naumast á
blað í hópi þeirra sem fólk
hafði minnst álit á.
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra var sá stjórn-
málamaður í kjördæminu sem
flestir kváðust hafa minnst álit
á. Vilhjálmur Egilsson er um-
deildastur samkvæmt könn-
uninni en hann lenti í öðru
sæti bæði hvað vinsældir og
óvinsældir varðar. Ekki mun-
aði miklu á honum og Einari
Kristni í vinsældum en hins
vegar var hann langt frá Sturlu
Böðvarssyni í óvinsældum.
Á eftir Einari Kristni (D)
og Vilhjálmi (D) á vinsælda-
listanum komu, í þessari röð:
Magnús Stefánsson (B), Einar
Oddur Kristjánsson (D),
Sturla Böðvarsson (D), Jón
Bjarnason (V), Guðjón Guð-
mundsson (D) og Kristinn H.
Gunnarsson.
Flestir hafa mest álit á Einari K.
Flateyri
Bókasafnið á Flateyri
var opnað að nýju nú um
helgina. Safnið hefur verið
lokað undanfarin misseri
vegna óvissu í húsnæðis-
málum þess við hlið gömlu
hreppsskrifstofunnar við
Hafnarstræti. Nú hefur
hins vegar verið ákveðið
að safnið verði áfram á
sama stað. Bókasafnið hef-
ur verið endurskipulagt og
töluverðu af gömlum og
úreltum ritum hefur verið
komið fyrir í geymslum.
Nú eru aðgengileg rit í
útlánasalnum um sex þús-
und og öll aðstaða töluvert
betri en áður var. Pétur Þor-
kelsson sem sinnti bóka-
safninu á Flateyri um árabil
hefur tekið að sér bóka-
vörsluna áfram.
Bókasafnið
opnað á ný
Vestfirðir
86 manns at-
vinnulausir
Fyrir helgina voru 86
manns skráðir án atvinnu
á Vestfjörðum. Þetta jafn-
gildir 2,1% atvinnuleysi í
fjórðungnum. Atvinnu-
leysi hefur aukist nokkuð
síðustu vikur eins og
venjulega á þessum árs-
tíma. Í október mældist at-
vinnuleysi á Vestfjörðum
1,2% að meðaltali. Það
jafngildir því að 49 hafi
verið atvinnulausir á degi
hverjum, 29 karlar og 25
konur.
Atvinnuleysi á Vest-
fjörðum er sem fyrr tölu-
vert minna en á landsvísu.