Bæjarins besta - 27.11.2002, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Hef til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Atvinna
Óskum eftir rafmagnstæknifræðingi eða
rafvirkja til starfa. Þarf að hafa reynslu í
hönnun og forritun á plc-stýringum.
Óskum einnig eftir vönum stálsmiðum til
starfa.
Upplýsingar gefur Jóhann Jónasson í
síma 456 5079 eða á staðnum.
Frestur til að skila inn umsóknum rennur
út 4. desember.
Hátíð íslenskrar tungu í Grunnskólanum á Ísafirði
Verðlaun veitt fyrir
ljóð og sögur nemenda
Dagur íslenskrar tungu var
haldinn hátíðlegur í Grunn-
skólanum á Ísafirði á föstu-
daginn fyrir viku enda lítið
um skólastarf á hinum eigin-
lega hátíðisdegi sem var á
laugardaginn. Deginum var
m.a. fagnað með því að veita
verðlaun fyrir þau verk sem
þóttu skara fram úr í Smá-
sagna- og ljóðasamkeppni
skólans í síðasta mánuði.
Keppnin var haldin í fyrsta
sinn á síðasta ári og þótti tak-
ast með ágætum og stefnt er
að því að hún verði árlegur
viðburður í skólastarfinu
framvegis.
Allir nemendur skólans, að
undanskildum fyrsta bekk,
geta tekið þátt í keppninni.
Þátttakan var mjög góð í öllum
árgöngum nema hjá ungling-
unum í 8.-10. bekk. Eflaust
eru ýmsar skýringar á dræmri
þátttöku þeirra, aðrar en skort-
ur á hæfileikum. Menn bera
við annríki, feimni og ýmsu
fleiru sem vonast er til að unn-
inn verði bugur á fyrir næstu
keppni.
Allir sigurvegararnir fengu
veglega bók að launum eins
og telja má við hæfi. Að sjálf-
sögðu var tækifærið notað til
að hampa öðrum sigurvegara
úr annarri rithöfundakeppni,
því að margir verðlaunahaf-
arnir fundu í pakkanum sínum
bókina Ferðin til Samiraka
eftir Hörpu Jónsdóttur sem er
kennari við Grunnskólann á
Ísafirði og handhafi Íslensku
barnabókaverðlaunanna árið
2002.
Í smásagna- og ljóðakeppn-
inni litu dagsins ljós mörg
frambærileg verk, sem að-
standendur keppninnar telja
vel eiga erindi á prent, og verð-
ur úrval þeirra ásamt verð-
launaverkunum gefið út í kveri
sem innan skamms verður fá-
anlegt í Bókhlöðunni á Ísa-
firði. Slíkt kver var gefið út á
síðasta ári og er enn fáanlegt í
skólanum fyrir 300 krónur.
Andvirði kversins rennur
óskipt í verðlaunasjóð, sem
einnig er fjármagnaður með
styrkjum frá fyrirtækjum. Að
þessu sinni styrktu Sparisjóð-
ur Vestfirðinga og Íslands-
banki verðlaunasjóðinn.
Í Grunnskólanum á Ísafirði
er mikið keppnisfólk. Um leið
og Smásagna- og ljóðasam-
keppninni lauk í dag var Stóra
upplestrarkeppnin sett en hún
nær til allra nemenda í 7. bekk.
Grunnskólinn á Ísafirði tekur
nú þátt í henni í fjórða sinn en
hún fer fram um allt land.
Keppnin hefst ævinlega á
Degi íslenskrar tungu og þar
með hefst undirbúningur og
þjálfun. Í lok janúar fer fram
upplestrarkeppni innan hvers
skóla og í mars munu Ísfirð-
ingar keppa við jafnaldra sína
frá Flateyri, Suðureyri, Þing-
eyri, Súðavík og Bolungarvík.
Þá verða valdir þrír sigurveg-
arar sem hljóta peningaverð-
laun.
Markmiðið með Stóru upp-
lestrarkeppninni er að allir
sem einn leggi rækt við góðan
upplestur og skýra framsögn,
efli þannig sjálfsöryggi og búi
fólk undir að flytja mál sitt
fyrir hópi fólks. Á undanförn-
um árum hafa nemendur
Grunnskólans á Ísafirði náð
ótrúlega góðum árangri í þeirri
íþrótt. Afrakstursins var notið
á hátíðinni á föstudag, því að
nemendur sem sköruðu fram
úr í upplestrarkeppninni á síð-
asta ári lásu verðlaunaverkin
í Smásagna- og ljóðasam-
keppninni fyrir skólasystkini
sín og gerðu það með miklum
sóma.
Á myndinni sem hér fylgir
eru verðlaunahafarnir Guðrún
Arnardóttir, Haukur Ingi-
bjartsson, Andrés Hjörvar Sig-
urðsson, Anna María Stefáns-
dóttir, Linda Kristín Grétars-
dóttir, Áslaug Aðalsteinsdótt-
ir, Jóhanna María Sigmunds-
dóttir, Hjörtur Ólafsson, Arnar
Ingi Einarsson og Fjóla Aðal-
steinsdóttir. Í hópinn vantar
nokkra af verðlaunahöfunum
en sumir voru veikir heima en
aðrir farnir í íþróttatíma eða
annað þegar myndin var tekin.
Nöfn allra verðlaunaverka og
verðlaunahafa eru hins vegar
hér:
Ljóðið Sólin eftir Guðrúnu
Arnardóttur, 2.I. Sagan Spori
eftir Hauk Ingibjartsson, 2.I.
Ljóðið Sokkarnir eftir Andrés
Hjörvar Sigurðsson, 3.Á.
Sagan Konan og álfadrengur-
inn eftir Önnu Maríu Stefáns-
dóttur, 3.H. Ljóðin Fugla-
söngur eftir Agnesi Ósk Marz-
ellíusardóttur, 4.M, og Norð-
urljós eftir Hermann S.
Hreinsson, 4.M. Sagan Kalli
á seglbretti eftir Snorra Sig-
björn Jónsson, 4.B. Ljóðin
Ljóð eftir Lindu Kristínu Grét-
arsdóttur, 5.H, og Gulur penni
eftir Daníel Örn Kristjánsson.
Sagan Skrítni maðurinn eftir
Áslaugu Aðalsteinsdóttur.
Ljóðið Elding eftir Jóhönnu
Maríu Sigmundsdóttur, 6.HG.
Sagan Erfiður fjallgöngudag-
ur eftir Hjört Ólafsson, 6.HG.
Ljóðið Skaginn eftir Arnar
Inga Einarsson, 7.B. Sagan
Með ofurkrafta í einn dag eftir
Fjólu Aðalsteinsdóttur, 7.S.
Ljóðið Að eldast eftir Baldur
Þ. Sigurlaugsson, 8.L. Ljóðið
Lífið eftir Hildi Dagbjörtu
Arnardóttur 10. MM. Sagan
Blátt eftir Hildi Dagbjörtu
Arnardóttur, 10. MM.
Engin verðlaun voru veitt í
9. bekk enda var þátttaka lítil
í þeim árgangi.
Kátir krakkar í Grunnskólanum á Ísafirði með viðurkenningarnar sínar.
Fjárfrekar lagfæringar á Þingeyrarkirkju
Sóknarnefnd Þingeyrar-
sóknar hefur leitað til bæjar-
yfirvalda í Ísafjarðarbæ eftir
fjárframlagi til endurbygg-
ingar Þingeyrarkirkju. Upp-
hæð er ekki tiltekin en „vís-
að til hliðstæðu við framlög
til Ísafjarðarkirkju undan-
farin ár, að teknu tilliti til
aðstæðna“. Í greinargerð
með málaleitan sinni til bæj-
aryfirvalda segir sóknar-
nefndin:
„Eins og háttvirtri bæjar-
stjórn mun vera kunnugt
voru á síðasta ári hafnar
viðamiklar endurbætur og
viðgerðir á sóknarkirkjunni
á Þingeyri... Um nokkurt
árabil hafa staðið til við-
gerðir á kirkjunni, en ekki
þótti fært að hefja þær fyrr
en nokkurt fé lægi fyrir eða
loforð um styrki. Klæðning
sem sett var á kirkjuna fyrir
rúmum áratug reyndist end-
ingarlaus. Þak kirkjunnar,
turn og klukknaport reynd-
ust þarfnast gagngerðrar
viðgerðar. Einnig er knýj-
andi að fara að huga að end-
urbótum innanhúss.
Á árinu 2001 var ráðist í
endurbætur utanhúss. Í sam-
ráði við Húsafriðunarnefnd
var smíðuð ný turnspíra á
kirkjuna, ásamt trékrossi
eins og var á henni í upphafi.
Kostnaðurinn kominn
yfir 20 milljónir króna
Skipt var um þakjárn á henni,
einangrun í þaki endurnýjuð
og ný viðarklæðning sett. Í
klukknaporti voru nokkrir
burðarviðir endurnýjaðir og á
það sett ný viðar- og járn-
klæðning. Gluggar í því end-
urnýjaðir. Hin gallaða klæðn-
ing á veggjum kirkjunnar fjar-
lægð og kirkjan múruð upp á
nýtt í upphaflegri gerð.
Að lokum skal þess getið,
að í fárviðri sem gekk yfir á
síðasta hausti skóf rokið svo
grjót úr götunni, að göt komu
á nær 30 rúður í gluggum á
suðvesturhlið kirkjunnar, þar
sem á götuna var ekki þá kom-
ið bundið slitlag. Aðeins
bráðabirgðaviðgerð hefur far-
ið fram á þeim. Það er sam-
dóma álit sérfræðinga Húsa-
friðunarnefndar ríkisins, sem
og sóknarinnar, að vel hafi
tekist til og kirkjan nú eins lík
sinni upphaflegu gerð og kost-
ur er.
Kostnaður við þessa endur-
byggingu er orðinn veru-
legur og mun meiri en áætl-
að var í upphafi. Ljóst er að
svo fámennur söfnuður sem
Þingeyrarsöfnuður verður
lengi að greiða hann upp.
Þrátt fyrir góða styrki frá
Húsafriðunarsjóði og Jöfn-
unarsjóði kirkna er söfnuð-
urinn með umtalsverða
skuld.
Framkvæmdum er heldur
engan veginn lokið. Ólokið
er að ganga frá umhverfi
kirkjunnar og skipta um gler
í gluggum. Þá stendur fyrir
dyrum að huga að viðhaldi
innanhúss, sem þó verður
ekki farið í fyrr en áður-
nefndar skuldir eru upp-
greiddar. Á árinu 2001 var
viðgerðarkostnaður kr.
20.870.324, auk þess komu
nokkrir reikningar á árið
2002, sem ekki er búið að
taka saman.“
Undir erindið rita, auk sr.
Guðrúnar Eddu Gunnars-
dóttur, sóknarprests, þau
Sigríður Helgadóttir, Ragn-
ar Ólafur Guðmundsson,
Sigurða Pálsdóttir, Þorbjörg
Gunnarsdóttir og Bergur
Torfason.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
fjallaði um ofangreint erindi
sóknarnefndar á fundi sín-
um í síðustu viku.
Þingeyrarkirkja.