Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.12.2003, Síða 4

Bæjarins besta - 02.12.2003, Síða 4
4 Að skreyta trén með alls kyns pappírsskrauti er þekkt þegar á 17. öld en náði fyrst verulegri útbreiðslu á þeirri 18. og þá fyrst og fremst í Þýskalandi þar sem jólatréð á uppruna sinn. Var skrautið þá fyrst og fremst í formi úrklippumynda og einfaldra stiga. Segja má að uppeldisfræðingurinn Friedrich Fröbel (1782–1852) hafi fært pappírsskrautið á æðra stig en aðferð hans fólst m.a. í að flétta skraut úr strimlum sem í senn jók hugmyndaauðgi barnanna og reyndi á þolinmæði og aga. Jólastjarna hans sem fléttuð er úr 4 pappírsstrimlum er t.d. enn þann dag í dag mjög vinsælt föndur. Pappírsskrautið hafði borist til Danmerkur frá Þýskalandi þegar í upphafi 19. aldar en elsta þekkta pappírsskrautið þar er mikill Jakobsstigi sem búinn var til fyrir árið 1837. Á 8. áratug 19. aldar komu út leiðbeingar um gerð pappírskrauts í Dan- Jólahjörtu mörku en það vekur athygli að ekkert hjarta er þar að finna. Á sama tíma er farið að gefa út munsturarkir með kramarhúsum og körfum með litríkum munstrum en það er þó ekki fyrr en árið 1924 að slík örk er gefin út með hjörtum. Þá er reyndar talað um þann gamla sið að flétta jólahjörtu en hversu gamall siðurinn er kemur ekki fram. Hversu gamall er þá þessi „gamli” siður” í raun? Benno Blæsild safn- stjóri við Den Gamle By í Árósum hefur tekið saman sögu jólahjartans og komist að þeirri niðurstöðu að í upphafi hafi fléttuð hjörtu ekkert haft með jólatré að gera. Elsta þekkta fléttaða hjartað í Danmörku er frá H.C. Andersen en það er án hanka og hefur því aldrei þjónað sem jólatrésskraut. Og sjálfur minnist hann aldrei á jólahjarta í sögum sínum. Elsta þekkta jólahjartað er frá 1873 en flest bendir til að þá hafi þau verið mjög sjaldgæf enda ekkert um þau að finna í heimildum. Fyrsta ljósmyndin sem vitað er um að sýnir fléttuð jólahjörtu er frá árinu 1901 og svo virðist sem um það leyti sé það að ryðja sér til rúms á dönskum herragörðum á Lálandi og Falstri og hafi borist þaðan til betri borgara landsins sem jólaskraut með það hentuga hlutverk að geyma í sælgæti. Hvaðan sið- urinn að flétta hjörtu kom upphaflega er þó ekki vitað og engar heimildir finnast t.d. um hvar H.C. Andersen lærði tæknina. Þó er vitað til þess að munkar í klaustri nærri Bonn í Þýskalandi höfðu þann sið að pakka ölmusugjöfum inn í fléttuð hjörtu en siðurinn tengdist á engan hátt jólunum. Það að hjörtun verða útbreitt jólaskraut í Danmörku og öðrum Norðurlöndum getur átt sér þá skýringu að þar var til siðs að hengja gjafirna á jólatréð. Sælgæti var sett í körfur og kramar- hús sem jólagjafir handa börnum og öðrum sem minna máttu sín. Og hvað táknar betur gjafmildi og gæsku jólanna en hjartað? Nú er jólahjartað þekkt um allan heim og þá gjarnan sem hið danska jólahjarta. Til Íslands hefur það borist frá Danmörku með dönskum kaupmönnum, blöðum og bókum. Byggt á: Benno Blæsild: Flettede hjerter et særtræk ved den danske jul. Den Gamle By 2002 Að tengja hjörtu við jól er ekki svo ýkja gamall siður. Elsta hjartalagaða jólaskrautið sem vitað er um, er þýskt frá því um 1880. Þá þegar þekktist að skreyta trén með hjartalaga kökum en ekkert segir af fléttuðum hjörtum fyrr en í byrjun 20. aldar. Jóna Símonía Bjarnadóttir, safnvörður á Skjalasafninu Ísafirði, segir frá uppruna jólahjartanna sem eru svo rækilega tengd jólum í okkar huga.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.