Bæjarins besta - 02.12.2003, Blaðsíða 24
24
Eins og í æsku erum við aftur farin að
skreyta í kringum okkur. Sumar hefðir
þurfa ekki aðrar útskýringar en þær að
það er gaman að þeim. Fyrst erum við
með jólatré sem er grænt plastdót sem
við hlöðum glingri á. Það er síðan leyst
af hólmi með Þorratré, sem er haus-
kúpa af kind, lýst innanfrá með jólaseríu.
Hálfur veturinn er í rauninni ein alls-
herjar hátíðarhöld hjá okkur, eða eins
mikið og við nennum, því formlegu
tilefnin eru næg. Smári á afmæli um það
leiti sem við erum venjulega að koma
okkur út í eyju. Nína á afmæli 25. des-
ember, á íslensku jólunum. Þá koma
áramót og tilhleypingar hjá fénu, þannig
að mannfólkið er ekki eitt um það að
fagna. Svo eru það rússnesku jólin sem
hefjast um leið og þau íslensku klárast
Ljósmyndir: Málverk af Æðey eftir Smára • Turtildúfur og
svanir • Skafrenningur í Æðey • Rússnesk jól og
þrettándabrenna • Kirkja Krists frelsara í Moskvu
og þau teygja sig langleiðina inn í Þorra.
Hann blótum við í nokkrum smáum
skömmtum. Jólaljósin hengjum við upp á
Þorláksmessu og tökum þau ekki niður
fyrr en á Góu, þegar daginn er tekið að
lengja verulega á ný.
Þó að við séum orðin þetta mikið jóla-
fólk, þá förum við samt aðrar leiðir en
fjöldinn í sumum efnum - við sleppum
jólastressinu. Ef okkur bara tekst að gefa
tímanlega út bækur og dagatöl fyrir
jólasöluna í Bókhlöðunni á Ísafirði, þá
erum við á grænni grein. Við einfaldlega
slökkvum á útvarpi og sjónvarpi ef þau
ætla að vera með einhverja síbylju. Og
eins og gefur að skilja, erum við fjarri
innkaupaæðinu. Það sama má segja um
kirkjuferðir. Það er engin kirkja í Æðey
og söknum við þess ekki. Hvorugt okkar
hefur áhuga á því að taka þátt í þeim
tvískinnungshætti að tengja saman jól
og trúarbrögð.
Ætli það sé ekki líka svolítið óvanalegt
hvað við erum afslöppuð með tíma-
setningar. Það er ekkert tiltökumál að
fresta öðrum hvorum jólunum örlítið ef
óveður, rafmagnsleysi, annríki eða leti
setja strik í reikninginn. Slíkri ónákvæmni
á í það minnsta hvorugt okkar að venj-
ast frá því að við vorum með fjölskyldum
okkar. En í Æðey leyfum við tímamörk-
um hátíðanna að sveiflast í allar áttir,
bara ef rétt lykt og réttu símtölin eru
þann 24. desember og ef tappa er skotið
úr freyðivínsflösku á gamlárskvöldi.