Bæjarins besta - 02.12.2003, Blaðsíða 28
28
Það er fátt líkt með íslensku jólasveinunum okkar og hinum alþjóðlega,
rauðklædda Santa Claus. Íslensku sveinarnir eru af kyni trölla og voru
upphaflega barnafælur, þótt þeir hafi mildast mikið á síðustu áratugum,
en Santa Claus á hins vegar rætur í dýrlingnum Nikulási sem var biskup
í Mýru í Litlu-Asíu (Tyrklandi) á 4. öld. Um líf og störf Nikulásar er fátt vitað
en hann er þó einn af vinsælustu dýrlingum bæði rómversk-kaþólsku
kirkjunnar og þeirrar grísk-kaþólsku. Ýmsar óstaðfestar sagnir eru til um
hann þar sem honum eru eignuð hin ýmsu kraftaverk. Samkvæmt þeim
var hann örlátur mjög, sem er væntanlega rótin að hugmyndinni um
Nikulás sem jólasvein sem gefur börnum gjafir. Þjóðsagnapersónan
Santa Claus barst frá Evrópu til Bandaríkjanna og er eins konar sam-
suða úr heilögum Nikulási og Jesúbarninu. Á 19. öld trúðu börn í
Þýskalandi og víðar því að Jesúbarnið, eða Christkindlein, kæmi og
færði þeim gjafir. Annað nafn bandaríska jólasveinsins, Kris Kringle, mun
vera afbökun á Christkindlein. Jesúbarnið var þá stundum sagt eiga sér
fylgdarmann sem var einhvers konar Nikulásarfígúra, til dæmis Père
Noël í Frakklandi og Pelznickel í Þýskalandi. Í Hollandi fengu börnin
gjafir frá Sinterklaas á Nikulásarmessu, 6. desember. Þegar Evrópubúar
tóku að nema land vestanhafs fluttu þeir þessar sagnir með sér.
Árið 1804 var sögufélag New York stofnað og Nikulás valinn verndar-
dýrlingur þess. Árið 1809 kom út grínsagan „A History of New York“ eftir
Washington Irving sem skrifaði undir dulnefninu Diedrich Knickerbocker.
Sagan gekk út á að hnýta í hollenska fortíð New York-borgar og þar með
hinn hollenska Sinterklaas. Í sögunni var meðal annars talað um
heilagan Nikulás svífandi yfir borginni á vagni. Kvæðið „An Account of a
Visit from St. Nicholas“ kom út 1823 og naut fljótt mikilla vinsælda. Þetta
kvæði er betur þekkt undir upphafsorðum sínum, „’Twas the night before
Christmas,“ og í dag er lestur þess hluti af jólahaldi margra Bandaríkja-
manna. Þar er talað um heilagan Nikulás á fljúgandi sleða dregnum af
hreindýrum. Eftir því sem leið á 19. öldina fór heilagur Nikulás að gegna
æ stærra hlutverki í jólahaldi Bandaríkjamanna og gekk nú undir nafninu
Santa Claus eða Kris Kringle. Oft var hann að sögn klæddur loðfeldi, líkt
og hinn þýskættaði Pelznickel, en stundum átti hann að klæðast litríkum
fötum. Í fyrstu var hann ýmist sagður líkjast litlum álfi eða vera maður í
fullri stærð og varð seinni ímyndin ofan á. Árið 1897 birtist frægt svar
Francis P. Church í dagblaðinu New York Sun við fyrirspurn 8 ára stúlku,
Virginiu O’Hanlon, um tilvist jólasveinsins. Svarið bar yfirskriftina „Yes,
Virginia, there is a Santa Claus.” Hugmyndin um Santa Claus sem
feitlaginn karl í rauðum fötum var orðin útbreidd um aldamótin 1900 og
um 1920 var jólasveinninn í hugum flestra bandarískra barna kátur karl,
hvítskeggjaður og rauðklæddur. Á 4. áratug 20. aldar fór Coca-Cola svo
af stað með hina frægu auglýsingaherferð þar sem jólasveinninn,
teiknaður af Haddon Sundblom, var í aðalhlutverki. Ef til vill hefur sú
herferð orðið til þess að festa ákveðna ímynd jólasveinsins í sessi en víst
er að þessi ímynd hafði verið til um skeið og var ekki uppfinning Coca-
Cola eða Sundbloms þótt hann hafi vissulega túlkað fyrri hugmyndir eftir
eigin höfði. Enginn vafi leikur á að auglýsingar hafa átt sinn þátt í að móta
jólasiði Bandaríkjamanna. Til að mynda er hreindýrið Rúdolf með rauða
trýnið, sem sungið er um í vinsælu jólalagi, afsprengi auglýsinga frá
stórversluninni Montgomery Ward frá 1939. Það ár fékk verslunin Robert
L. May til að semja barnasögu sem dreift var til
viðskiptavina fyrir jólin. Sagan naut fljótt mikilla
vinsælda og 1949 kom út lagið „Rudolph the
Red-Nosed Reindeer,“ sungið af Gene Autry.
Árið 1964 var svo gerð sjónvarpsmynd um
Rúdolf og félaga með brúðum í hlutverkum
þeirra. Líkt og kvæði Moores um
aðfangadagskvöld jóla, er þessi sjónvarpsmynd
jafnstór þáttur í jólahaldi Bandaríkjamanna og
hangikjötið er á Íslandi.
Heimild: www.islandia.is/~juljul/jol/jolasveinarnir.htm
Heilagur Nikulás