Bæjarins besta - 02.12.2003, Page 29
29
Skreytingar á hátíðarborðið
Fallega skreytt matarborð gleður augað og veitir ekki síður vellíðunar-
kennd en velheppnaður matur og ljúffengt vín. Það er líka við hæfi að
leggja smá vinnu í að skapa matnum rétta umgjörð eftir að hafa kannski
eitt heilum degi í að útbúa hann. Til að fá hugmyndir um skreytingar á
jólamatarborð annars vegar og nýársmatarborð hins vegar, var leitað til
Blómaturnsins á Ísafirði og beðið um góð ráð. Júlíana Ernisdóttir, einn
eigenda verslunarinnar, varð góðfúslega við þessari beiðni og útbjó tvö
borð með ýmsum tillögum. Útkoman var einstaklega skemmtileg eins og
sjá má á meðfylgjandi myndum.
Hvað jólaborðið varðar, þá segir Júlíana að dumbrauði og græni liturinn verði alls-
ráðandi á komandi jólum en sá gyllti verði ekki langt undan. Epli eru vinsæl núna í
jólaskreytingar, sérstaklega eplakertin, en Júlíana segir líka sniðugt að taka venju-
legt epli, skera í það rauf og stinga þar í nafnspjaldi ef raða á til borðs. Rauðar rósir
geta einnig verið afskaplega jólalegar og notar Júlíana þær gjarnan einar sér eða
með greni. Lífga má upp á kertastaup á ýmsan hátt, t.d. með smá greni og jólaborða,
en það er líka tilvalið að nota vínglös sem kertastaup. Júlíana segist mikið nota litlar
seríur með batteríi til að skreyta með enda séu möguleikarnir óþrjótandi. Það má
vefja þeim utan um jólaskreytingar, nota þær í blómvendi, setja þær í glæra vasa
eða skálar með t.d. könglum, jólakúlum eða englahári. Í hvítvínsglösin setti Júlíana
litla jólapoka og segir sniðugt að setja í þá litla gjöf fyrir hvern og einn matargest.