Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.02.2001, Qupperneq 4

Bæjarins besta - 21.02.2001, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 Það voru helst dellukarlar eins og ég sem keyptu tölvur – segir Björn Davíðsson hjá Tölvuþjónustunni Snerpu á ÍsafirðiBjörn Davíðsson erþekktur fyrir brautryðjanda- starf sitt á sviði tölvumála á Ísafirði. Hann stofnaði tölvuþjónustuna Snerpu fyrir nokkrum árum ásamt Jóni Arnari Gestssyni og hefur fyrirtækið vaxið gífurlega síðan. Hann hefur deilt nokkuð á Landssímann þó mönnum þyki hann hafa linast í því í seinni tíð. Hann fékkst til að segja brot úr sögu Snerpu og hvað sé helst á döfinni. „Það gengur bara vel í Snerpu í augnablikinu. Við erum núna að auka töluvert við okkur í svokallaðri vefforritun. Menn kynnu að halda að það væri það sama og heimasíðugerð, en svo er alls ekki. Það er nær að segja að þetta sé gerð forrita á Netinu.“ Bestu nemendurnir fá atvinnutilboð „Oftast er það þannig að menn panta verkefni hjá okkur og biðja um eitthvað ákveðið. Í flestum tilfellum er búið að selja vöruna áður en hún er tilbúin og er meira en nóg að gera í þessari vefforitun í augnablikinu. Núna er staðan þannig að okkur vantar mannskap til að vinna þessi verk. Þess vegna höfum við ákveðið að halda námskeið í vefforritun sem við niðurgreiðum. Við ætlum bara að taka átta manns sem við veljum inn á námskeiðið og rukka hvern um 6.000 krónur, en venjulega myndi námskeið- ið kosta um 60.000 krónur. Þeir sem standa sig best fá síðan atvinnutilboð frá okkur. Í þessum tölvuheimi er það þannig, að sumir spjara sig en aðrir ekki. Sumir ná þessu strax, en aðrir aldrei, sama hversu mikla vinnu þeir leggja á sig.“ Auglýsa lítið „Núna erum við með eitt mjög stórt verkefni í gangi í vefforritun. Við erum að smíða eins konar verslunar- miðstöð á Netinu sem er ólík venjulegri netverslun á margan hátt. Þetta verkefni er unnið fyrir aðila í Kaliforníu í Bandaríkjunum og er mjög stórt. Þessi aðili hefur mikla trú á okkur og líst mjög vel á það sem við höfum verið að gera. Víð erum líka að smíða verk- bókhaldskerfi fyrir aðila í Reykjavík og svo erum við að kynna á næstunni hóp- vinnukerfið INform sem við höfum verið að vinna að í samstarfi við Iðntæknistofn- un. Sömuleiðis er komið að því að við markaðssetjum „sjópóstinn” okkar sem heit- ir INmobil en út á hann fengum við vænan styrk og klapp á bakið frá Rannís.“ – Hvernig auglýsa menn í þessum bransa það sem þeir eru að gera? „Menn auglýsa sig í raun lítið. Fyrirtæki merkja alltaf þau verkefni sem þeir vinna og skapa sér þannig nafn. Þessi aðili í Bandaríkjunum rakst á verkefni eftir okkur á Netinu sem honum leist mjög vel á og hafði því sam- band við okkur.“ Vinsælt áhuga- mannanet Fyrirtækið Snerpa á sér nokkuð merkilega sögu. „Upphaflega setti ég upp tölvu heima hjá mér sem var hluti af nokkurs konar áhugamannaneti sem var kallað Fidonet. Þetta var töluvert fyrir daga Internets- ins eins og við þekkjum það í dag. Fidonet virkaði þann- ig að menn fengu aðgang í gegnum mótald og gátu náð sér í frían hugbúnað og fengið fréttir um tölvutengd mál. Einnig gátu menn sent skilaboð á milli tölva. Þaðan er nafnið komið en tölvan gekk undir nafninu Snerpa. Fidonet var nokkuð vin- sælt og voru um tíma sjö eða átta aðilar á Íslandi með slíkt net. Aðallega voru þetta einstaklingar sem voru að þessu, en Stöð 2 notaði þetta svo þýðendur gætu sent texta á milli. Menn gátu hringt sig saman og skipst á ýmsu efni. Þetta var oftast gert á nóttunni þegar álag á símalínur var lítið. Reksturinn á þessu neti var gífurlega kostnaðar- samur. Bæði þurfti að kaupa sér hugbúnað og alls kyns tæki, en þar að auki var símakostnaður mikill. Þá kostaði mínútan miklu meira en hún gerir í dag og Cantat- 3 sæstrengurinn var ekki kominn. Allt fór í gegnum gervihnött og var sambandið heldur slitrótt. Stundum slitnaði sambandið þegar ég var að ná mér í efni og þurfti ég þá að byrja upp á nýtt.“ Kennararnir tregir nemendur „Ég vann sem setjari í H- prenti á þessum tíma og hafði því alltaf aðgang að tiltölulega nýjum tölvubún- aði. Ég var þá einn fárra sem átti PC-tölvu, en þá var ekk- ert algengt að menn ættu slíka gripi. Það voru helst svona dellukallar eins og ég sem keyptu tölvur. Þegar tölvunotkun al- mennings jókst var ég oft beðinn um að redda ýmsum hlutum. Þá fékk ég hug- mynd um að stofna tölvu- fyrirtæki því engin þjónusta var þá fyrir tölvueigendur á Ísafirði. Fyrst gerðist ég um- boðsmaður fyrir Íslenska menntanetið og hjálpaði þá kennurum að nýta sér tölvu- póst og annað. Þá komst ég að því að sumir kennararnir voru ekkert sérstaklega góðir nemendur, í það minn- sta þurfti ég að fara nokkuð margar ferðir til þeirra. Sjálfur græddi ég heil- mikið á þessari kennslu, því ég var sífellt að kynnast nýjum og nýjum möguleik- um Netsins. Þá ákvað ég að ef ég myndi stofna tölvufyr- irtæki, yrði það Internet- þjónusta.“ Mikill fram- kvæmdamaður „Mig langaði ekki að fara út í þetta einn og fann í fyrstu engan heppilegan meðeiganda. Tölvufyrir- tækið Hugsjón sem starfaði á Ísafirði hafði farið á haus- inn með einhverjum látum og voru menn nokkuð hræddir við þennan tölvu- bransa. Ég kynntist Jóni Arnari sem er meðeigandi minn í Snerpu. Þá var hann meðal annars að vinna við að ganga í fyrirtæki og selja bókhaldskerfi. Honum leist vel á þessa hugmynd mína og vildi helst byrja strax, enda hefur hann alltaf verið, er enn og mun sennilega alltaf vera mikill fram- kvæmdamaður. Við erum enn bara tveir ásamt konunum okkar sem eigum Snerpu en erum að velta því fyrir okkur núna að auka hlutafé og bjóða þá fleirum að vera með. Við sjáum einfaldlega það mikið sem hægt er að gera. Við höfum t.d. bætt við tveimur TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL Hafnarstræti 1 – Ísafirði Símar: 456 3940 & 456 3244 Fasteignaviðskipti TRYGGVI GUÐ UNDSSON HDL Hafnarstr ti 1 – Ísafirði Símar: 456 3940 & 456 3244 Fax: 456 4547 – Netfang: tryggvi@snerpa.is Einbýlishús / raðhús Fasteignir í þessari auglýsingu eru aðeins sýnishorn af söluskránni. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni að Hafnarstræti 1 4-6 herb. íbúðir Hjallavegur 4: 242 m² ein- býlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Fallegt út- sýni. Skipti á minni eign möguleg Tilboð óskast Hlíðarvegur 25: 152,6 m² einbýlishús á tveimur hæð- um. Húsið er mikið uppgert. Áhv. ca. 6,4 m.kr. Verð 10,2 m.kr. Hlíðarvegur 37: 185,9 m² raðhús á þremur hæðum ásamt bílskúr og einstakl- ingsíbúð. Skipti á minni eign koma til greina. Verð 10,2 m.kr. Hnífsdalsvegur 10: 120,9 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt grónum garði og eignarlóð Tilboð óskast Miðtún 45: 188,9 m² rað- hús á tveimur hæðum ásamt 31,3 m² bílskúr. Tilboð óskast Smiðjugata 1 og 1a: glæsi- legt 145,2m² uppgert ein- býlishús á tveimur hæðum og kjallara ásamt 33,6 m² viðbyggingu og glæsil. garði. Tilboð óskast Stakkanes 4: 144 m² rað- hús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Skipti möguleg á íbúð á Eyrinni. Áhv. ca. 3,5 m.kr. Verð 9,5 m.kr. Stakkanes 16: 226,2 m² raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Tilboð óskast Tangagata 21: 85,4 m² lítið einbýlishús, hæð, ris og kjallari. Skoðum öll tilboð en verð er aðeins 4,8 m.kr. Urðarvegur 64: 214 m² raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Tilboð óskast Fjarðarstræti 14: 133,4 m² 4ra herbergja íbúð á e.h. í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr, háalofti og hluta kjallara. Tilboð óskast Fjarðarstræti 14: 163 m² falleg 4ra herbergja íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi ásamt geymsluskúr og hluta kjal- lara. Áhv. ca. 1,5 m.kr. Verð 6,2 m.kr. Pólgata 5a: 127,7 m² 5 her- bergja íbúð á efri hæð í þríbýlishúsi ásamt helmingi kjallara. Íbúðin er skemmti- leg og vel staðsett. Verð aðeins 4,5 m.kr. Smiðjugata 7: 96,1 m² 4ra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi. Tilboð óskast Stórholt 13: 123 m² 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr. Íbúðin er mikið uppgerð. Verð 7,8 m.kr. 3ja herb. íbúðir Fjarðarstræti 29: 78 m² séríbúð í tvíbýlishúsi ásamt nýlegum geymsluskúr. Verð 3 m.kr. Grundargata 4: 55,3 m² íbúð á 1. h. í fjölb.húsi ásamt sér geymslu Verð 3,6 m.kr. Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 3ju hæð fyrir miðju í fjöl- býlishúsi ásamt sér geymslu. Áhv. ca. 2 m.kr. Verð 5,3 m.kr. Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á 3ju hæð til hægri í fjölbýl- ishúsi ásamt sér geymslu. Skoða öll tilboð. Möguleiki að taka bíl uppí. Áhv. ca. 3 m.kr. Verð 5,5 m.kr. 2ja herb. íbúðir Grundargata 6: 49,2 m² íbúð á 2. hæð til hægri í fjölbýlishúsi. Tilboð óskast Sundstræti 24: 69 m² skemmtileg og rúmgóð íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi. Verð 4,5 m.kr. Túngata 12: 62 m² íbúð í kjallara í þríbýlishúsi. Verð 3,9 m.kr. Túngata 18: 53,4 m² íbúð á jarðhæð í nýlega uppgerðu fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu. Verð 3,8 m.kr Túngata 18: 53,4 m² íbúð á 1. hæð í nýlega uppgerðu fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu. Verð 4,9 m.kr. Bolungarvík Vitastígur 25b: 101 m² fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi. Sér inngang- ur. Tilboð óskast Suðureyri Eyrargata 6: nýendur- byggt, glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt kjallara. Verð 9,8 m.kr. Atvinnuhúsnæði Sindragata 12: Nýlegt 426 ferm. atvinnuhúsnæði á góðum stað. Stór lóð með bundnu slitlagi og góðu að- gengi fyrir stóra flutninga- bíla. Verð 22 m.kr. 08.PM5 19.4.2017, 09:224

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.