Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.02.2001, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 21.02.2001, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 5 smáarstarfsmönnum síðan í des-ember síðastliðnum og erum núna að leita að a.m.k. einum í viðbót.“ Höfðu litla trú á Internetinu „Haustið 1994 stofnuðum við Snerpu. Vegna þess hversu mikið fjármagn þurfti til að koma Internet- þjónustu í gang, ákváðum við að fara í samstarf við Íslenska menntanetið. Það átti þó eftir að fara á annan veg en ætlað var. Á þessum tíma stóð yfir verkefni sem hét Vestfjarða- aðstoðin og margir muna eflaust eftir. Þá áttu að fara 15 milljónir í styrki til ný- sköpunar og sóttum við um 700.000 króna hlut. Menn voru ekki alveg með á nót- unum þegar talað var um Internet, enda skýrðum við mál okkar nánar með því að segja að þetta væri póstþjón- usta um síma og að hægt væri að skoða upplýsinga- banka með þessu. Okkur var neitað um styrkinn. Neitunina fengum við munnlega, en við heimt- uðum að fá hana skriflega. Við vorum nefnilega nokkuð vissir um að menn myndu skammast sín þegar fram liðu stundir fyrir að halda að Internetið væri ekki nýsköp- un eða að það ætti ekki framtíð fyrir sér. Loksins fengum við stuttort en skrif- legt svar frá Guðmundi Malmkvist, þáverandi for- stjóra Byggðastofnunar. Sagði hann við það tækifæri að þetta Internet væri eitt- hvað sem aldrei ætti eftir að ganga og menn væru að henda peningunum út um gluggann ef þeir styrktu svona lagað.“ Höfðum sigur að lokum „Þrátt fyrir þetta héldum við ótrauðir áfram. Sig- hvatur Björgvinsson, þáver- andi viðskiptaráðherra, út- vegaði okkur 500.000 króna styrk. Þeir peningar voru teknir af hinu umdeilda „ráðstöfunarfé ráðherra“. Þessi peningur varð þó til þess að við komumst af stað. Við fjárfestum í mikilli móðurtölvu frá Hewlett Packard sem kostaði 700.000 kall. Við sömdum við Íslenska menntanetið um að setja í vélina nauð- synlegan hugbúnað og sendum hana suður. Síðan liðu sjö mánuðir og ekki kom tölvan. Á endanum þraut þolinmæði okkar og sögðumst við ætla að gera þetta sjálfir. Þá sömdu þeir í einhverju reiðikasti við Pól- inn á Ísafirði um að þeir myndu hýsa búnaðinn sem við höfðum lagt til. Mennta- netið notaði þannig styrkinn okkar til að keppa við okkur. Við urðum því að kaupa nýja móðurtölvu og töpuð- um einnig ríflega styrknum því að Menntanetið greiddi aldrei reikninginn fyrir vélinni heldur einungis 15% í nauðasamningum þegar þar að kom. Við höfðum samt sigur að lokum, ef svo má að orði komast, enda höfðum við nokkuð forskot hvað varðar þekkingu á bransanum. Öllu var pakkað saman í Pólnum, draslið sent suður og Menntanetið að lokum hlutað niður eftir nauða- samninga.“ Gjaldskráin hefur bara lækkað „Þegar gjaldskrá fyrir símtöl var jöfnuð út yfir allt landið var gífurlega mikill vöxtur í netþjónustu á Ís- landi. Vefþjónar og netþjón- ustur spruttu upp eins og gorkúlur í Reykjavík og voru farnar að bjóða ókeypis áskrift og fleira. Við sáum þessa þróun bæði sem ógn- un og tækifæri. Ógnunin fólst í því að Vestfirðingar voru í auknum mæli farnir að versla við menn að sunn- an, en tækifærin fólust í því að við gátum fengið við- skipti alls staðar að. Ég held að við höfum hingað til staðið okkur vel í samkeppninni á landsvísu. Gjaldskrá okkar hefur aldrei hækkað, hún hefur bara lækkað og um 20% okkar viðskiptavina eru utan Vest- fjarða. Við buðum líka ýmsa virðisaukandi þjónustu ýmist á undan öðrum eða þá að aðrir hafa ekki séð sér fært að elta okkur í því. Við vorum t.d. fyrsta netþjónust- an sem bauð upp á vefpóst og veiruskönnun. Núna geta notendur okkar flett upp tengitíma sínum og þannig vitað hvernig þeir nota Net- ið. Menn geta líka stillt svo- kallaða vefsíu hjá sér, en ekkert annað fyrirtæki býður upp á svoleiðis. Þó vill ein stærsta netþjónusta landsins kaupa hana af okkur.“ Einkavæðing er vandmeðfarinn hlutur Björn hefur deilt töluvert á Landssímann í blaða- greinum. Nokkuð hefur þó dregið úr þeim ádeilum hans í seinni tíð. „Menn segja að ég sé orðinn allt of linur. Ástæðan er einfaldlega sú að Síminn er farinn að standa sig betur. Þó er margt sem betur mætti fara og gætu þeir auðveldlega bætt þjónustuna nokkuð, en þeir eru í það minnsta farnir að taka ábendingum núna. Ég vil einnig nota þetta tæki- færi til að benda á að starfs- menn Símans á Ísafirði hafa ávallt verið mjög þægilegir í samskiptum og staðið sig jafn vel og þeim hefur verið leyft af yfirmönnum sínum og jafnvel betur. Við fáum til dæmis mun betri þjónustu við afgreiðslur á nýjum lín- um, bilanaleit og slíkt en kollegar okkar fyrir sunnan. Ég er fylgjandi því að Landssíminn verði einka- væddur, svo lengi sem að engum verði gefið neitt. Hins vegar er ég mjög á móti því að grunnkerfið fari með honum. Mér sýnist að standi til að losa ríkið við allt dótið á mettíma. Svo- leiðis vinnubrögð voru einmitt viðhöfð þegar Ríkis- skip voru seld, eða öllu heldur lögð niður. Klaufa- skapurinn var það mikill að fyrirtækið varð að engu og skipin seld úr landi. Einka- væðing er vandmeðfarinn hlutur og þarf vel að vanda til verksins og fara gætilega ef ekki á að fara illa.“ Lítið mál að skilja grunnkerfið frá „Ég held að menn myndu hugsa sig tvisvar um hvað ætti að vera með í pakkan- um ef ætti að einkavæða Vegagerðina, vatnsveituna eða raforkukerfið. Það er sama hvaða reglur eru lagð- ar undir núna, en í fjar- skiptageiranum eru sjálf- sagðar kröfur dagins í dag, sem menn segjast vera búnir að uppfylla en eru þó ekki, einskis virði eftir 3-4 ár. Þá mun nýr eigandi Landssím- ans væntanlega stefna ríkinu fyrir að hækka þær kröfur til samræmis við þá ríkjandi fjarskiptaumhverfi. Og að öllum líkindum vinna það mál. Það skal enginn láta sér detta í hug að Landssíminn klári breiðbandsvæðinguna um allt land ef hann verður einkavæddur ,,með öllu”. Það fyndna í þessu einka- væðingardæmi er nú samt að síðastliðin tvö ár hefur Landssíminn verið að nota á annan milljarð króna af fé símnotenda til að kaupa upp önnur fyrirtæki á fjarskipta- og tölvumarkaðinum. Þar á meðal eru þrjár Internet- þjónustur. Það er einkavæð- ing með öfugum formerkj- um, enginn segir neitt og Landssíminn er enn að kaupa.“ Höfuðstöðvarnar gætu verið á Ísafirði Það er enginn vandi að skilja grunnkerfið frá enda hafa til margra ára verið í gildi reglur um fjárhagsleg- an aðskilnað þess frá öðrum deildum. Í nýútkominni skýrslu einkavæðingar- nefndar er lagt til að NATO- þræðirnir þrír verði áfram í eigu ríkisins þannig að ég sé enga meinbugi á því að ríkið haldi áfram utan um rekstur ljósleiðarakerfisins ef það getur séð um þessa þrjá leið- ara. Við gætum sett upp höf- uðstöðvar þess fyrirtækis úti á landi, t.d. hér á Ísafirði enda væru viðskiptavinir þess þá önnur fjarskipta- fyrirtæki en ekki allur almenningur. Þetta fyrirtæki myndi eiga allar lagnir sem grafnar eru í jörðu, húseignir símstöðva ásamt tengigrindum en ekki símstöðvarnar sjálfar og sömuleiðis örbylgjuleiðir og möstur og einnig umferðar- stjórnunarbúnað eins og ljósleiðarafjölsíma. Það myndi sjá öðrum fjarskipta- fyrirtækjum fyrir samskipta- leiðum og húsnæði ef óskað væri eftir því, en mætti ein- ungis vera í grunnkerfa- rekstri sjálft. Einnig væri með þessu endanlega tekið fyrir alla tortryggni sam- keppnisaðila um að Síminn sinni sjálfum sér betur en öðrum, bæði í verði og þjónustu.“ Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar leggur til að gerður verði reið- vegur frá Söndum í Dýrafirði að reiðvegi í Skutulsfjarðarbotni Vegagerðin hefur þegar gert tillögu að legu vegarins Umhverfisnefnd Ísafjarð- arbæjar leggur til við bæjar- stjórn, að við gerð aðal- skipulags Ísafjarðarbæjar verði farið að tillögu Vega- gerðarinnar um legu reið- vegar frá skeiðvelli á Sönd- um í Dýrafirði að reiðvegi í Skutulsfjarðarbotni. Jafn- framt leggur nefndin til, að veitt verði framkvæmda- leyfi fyrir fyrsta áfanga verksins, sem yrði kaflinn frá skeiðvellinum á Söndum að Dýrafjarðarbrú. Ýmsir hlutar reiðvegarins eru þeg- ar til staðar, svo sem gömlu vegirnir yfir Gemlufalls- heiði og Breiðadalsheiði. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Kristjánssyni, formanni umhverfisnefndar Ísafjarðarbæjar, sem er jafn- framt verkfræðingur hjá Vegagerðinni á Vestfjörð- um, eru framkvæmdir við reiðvegi fjármagnaðir af Vegasjóði með fjárveiting- um á vegáætlun frá Alþingi. Fé til reiðvega er óskipt á veg- áætlun, þannig að því er ekki skipt milli landshluta og því síður til einstakra reiðvega eins og gert er með fé til þjóð- vega. Fénu er skipt að höfðu sam- ráði við hestamannafélögin eða landssamtök þeirra. Stundum leggja hestamanna- félög eitthvað af mörkum en meginfjármagnið kemur á vegáætlun. Framkvæmdirnar geta verið með ýmsum hætti. Hesta- mannafélögin geta annast þær undir eftirliti Vegagerðarinnar, eigin vinnuflokkar Vegagerð- arinnar geta annast þær eða þá að samið er við einkaaðila beint eða að undangengnu út- boði. Vegagerðin ákveður hins vegar, undantekningarlaust, hvað gert er hverju sinni. Þess er einnig að geta, að ekki verður lagður vegur á óskipulögðu landi nema sam- þykki Skipulagsstofnunar liggi fyrir. Ekki verður heldur veitt frankvæmdaleyfi nema umsögn Náttúruverndar rík- isins sé fyrir hendi. Ekki liggur fyrir hvenær að- alskipulag Ísafjarðarbæjar verður til. Engar tölur eru til um kostnað við verkið og því síður er vitað hvenær því lýkur. Það mun ráðast af fjárveitingum og hver hlutur þeirra fjárveitinga til þessa reiðvegar verður. Ungt hestafólk í áningarstað. Til leigu er 2ja herb. íbúð á besta stað á Eyrinni á Ísa- firði. Upplýsingar í síma 456 3704. Til sölu er Saab 9000, turbo árg. 1988. Selst á kr. 250 þús. Upplýsingar í síma 865 6471. Óska eftir 2ja-3ja herb. íbúð á Ísafirði eða í Hnífs- dal, helst með bílskúr. Uppl. í síma 865 6471. Tapast hefur Nokia 3310 GSM sími á Ísafirði. Uppl. í síma 456 4664. Ég er einmana, flösku- grænn, Nissan Terrano jeppi sem vantar nýjan eig- anda. Ég er árgerð 1997 og er lítið ekinn. Uppl. í síma 581 3474. Til sölu er einbýlishúsið að Engjavegi 24 á Ísafirði. Húsið er 4-5 herb. og 121 m² að stærð. Góður sólpall- ur og gróinn garður. Besti staður í bænum. Áhvílandi er 4,5 milljóna króna hús- bréfalán. Getur losnað strax. Uppl. í símum 456 4737 eða 868 6626 (Silla) og 861 8996 (Guðjón). Kettlingur fæst gefins. Uppl. í síma 456 4284. Nýlegur kerruvagn ósk- ast. Uppl. í síma 456 4288. Til sölu er stofuskápur á kr. 18 þús. Uppl. gefur Böðvar í síma 868 3043. Til sölu eru tvö bil í veiðar- færageymslum við Sindra- götu á Ísafirði (bláu skúrar- nir) Tilboð óskast. Uppl. í síma 861 1442. Til sölu er hjónarúm, 180x200 og lítið Casio hljómborð. Uppl. í síma 456 4338. Til sölu er Toyota Yaris árg. 1999, ekinn aðeins 13 þús. km. Upplýsingar í síma 456 6760. Til leigu er íbúð, tvö herb. og eldhús. Íbúðin er að Urðarvegi 37 og er í góðu standi. Henni geta fylgt innanstokksmunir og áhöld. Upplýsingar í síma 456 3678. Ungt par óskar eftir inn- búi, ódýrt eða gefins. Uppl. í síma 865 6471. Til sölu eða leigu er 4ra herb. íbúð við Túngötu á Ísafirði. Laus nú þegar. Upplýsingar gefa Róbert eða Rún í símum 587 6707 eða 863 4691. Til sölu eða leigu er 3ja herb. íbúð að Engjavegi 17, kjallara. Uppl. í síma 867 0397.- eða 456 5177. Til sölu er þvottavél. Uppl. í síma 456 3637. Fullþjálfaður minka- hundur til sölu. Mjög góð- ur veiðihundur. Upplýs- ingar í síma 863 1291. Nemendur í 10. bekk GÍ ætla í námsmaraþon sem hefst kl. 8, föstudaginn 2. mars og lýkur sólarhring síðar. Hér er um hluta af fjáröflun bekkjarins að ræða fyrir væntanlegt vor- ferðalag. Nemendurnir munu ganga í hús og safna áheitum frá og með 22. febrúar. Vonast þeir til að vel verði tekið á móti þeim. w w w .b b .i s Fréttir og fróðleikur á degi hverjum! 08.PM5 19.4.2017, 09:225

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.