Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.02.2001, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 21.02.2001, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 13 Ófaglært starfsfólk á heilbrigðisstofnunum á Vestfjörðum semur við ríkið Vestfirski samningurinn einn af þrem- ur hagstæðustu af fjórtán á landinu – höldum því forskoti sem við höfðum, segir Pétur Sigurðsson, forseti ASV Nýgerður samningur Al- þýðusambands Vestfjarða og ríkisins um kaup og kjör ófaglærðs starfsfólks á sjúkrahúsum og heilsu- gæslustöðvum á Vestfjörð- um felur í sér 15% meðal- hækkun á laun en um 21% hækkun á þriggja ára samn- ingstímabili. Á þessu starfs- sviði eru 14 sjálfstæðir kjarasamningar um allt land. Í megindráttum eru þeir svipaðir en vestfirski samningurinn er einn af þremur hagstæðustu samn- ingunum. „Við hér á Vestfjörðum vorum síðastir í þessari samningalotu. Þessir samn- ingar eru eitthvað misjafnir en okkar samningur hefur alltaf verið tiltölulega góður miðað við hina. Jafnan hefur verið tekist á um það hvor væri betri, samningurinn hér eða á Húsavík. Mér sýnist að þetta sé svipað og áður, þannig að við höldum því litla for- skoti sem við höfðum á aðra“, segir Pétur Sigurðsson, forseti ASV. Frá 1995 hefur gilt sameig- inlegur samingur á Vestfjörð- um. Áður voru sjálfstæðir samningar á Ísafirði, í Bolung- arvík, á Patreksfirði og á Hólmavík. Þá voru viðkom- andi sveitarfélög viðsemjend- ur en nú er það ríkissjóður. Starfsfólkið sem á hlut að máli er um 70-80 manns og vinnur einkum við aðhlynningu, ræstingu, þvotta og eldhús- störf. Ársverkin eru þó færri vegna þess að allmargir eru í hlutastörfum. Nýi samningurinn er til þriggja ára og tekur við af samningi sem gerður var árið 1997. „Nú er samningstíminn orðinn miklu lengri en áður var, þegar samið var til eins árs í einu eða jafnvel til nokk- urra mánaða“, segir Pétur. Nýmæli samningum nú er sameiginleg launatafla yfir allt landið en misjafnlega er raðað í hana eftir svæðum. „Ég hef það á tilfinningunni að við séum tiltölulega vel settir hér með innröðun í launatöfluna. Menn hrópa að vísu ekki húrra fyrir þessum samningi enda vitum við ekki hvað opinberir starfsmenn koma til með að semja um. Þetta er eins og alltaf í samningum, að verið er að taka ákveðna áhættu. Meirihluti samninganefndar okkar mat það hins vegar þannig, að ekki yrði lengra komist án þess að búa sig undir átök“, segir forseti Al- þýðusambands Vestfjarða. Samninganefnd ASV, talið frá vinstri: Pétur Sigurðsson, forseti ASV, Helgi Ólafsson, Hólmavík, Sveinsína Sigurgeirsdóttir, Ísafirði, Guðrún Gísladóttir, Patreksfirði, Elísabet Guðbjartsdóttir, Ísafirði (á bakvið), Guðrún Leifsdóttir, Patreksfirði, Hulda Margrét Þorkelsdóttir, Bolungarvík, Guðrún Kristjánsdóttir, Ísafirði, Herdís Gísladóttir, Bolungar- vík, og Bergdís Sveinsdóttir, Ísafirði. Tölvukerfi Menntaskólans á Ísafirði og þjónusta tölvufyrirtækisins Vestmarks ehf. Ljóst að ýmsir hnökrar hafa verið á samskiptunum og þjónustunni – gripið hefur verið til ráðstafana til úrbóta og málin rædd á fundi Bifreið til sölu Til sölu er Nalli árgerð 1982, í góðu standi, ekinn 40 þúsund mílur. Tilboð óskast. Upplýsingar á skrifstofu Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. Stjórnarmenn í tölvuþjón- ustufyrirtækinu Vestmark ehf. á Ísafirði hafa gripið til ráð- stafana vegna megnrar óá- nægju með þjónustu fyrirtæk- isins við Menntaskólann á Ísa- firði. Á þriðjudagsmorgun í síðustu viku var greint frá því á fréttavef Bæjarins besta, samkvæmt frásögnum bæði starfsmanna og nemenda, að þá um morguninn hefðu verið vandræði með tölvupóstkerfi skólans. Ítrekað hefði verið kvartað við Vestmark, bæði þá og fyrr. Þegar þetta var borið undir starfsmenn Vest- marks neituðu þeir því að nokkrar kvartanir hefðu bor- ist. Fullyrt var, að tölvukerfi skólans væri í góðu lagi og hefðu aldrei komið upp nein vandamál frá því að Vestmark tók að sér kerfisleigu fyrir skólann og þjónustu við tölvu- kerfi hans. Þetta vakti hörð viðbrögð í skólanum og hófust lífleg skrif í Netspjall Bæjarins besta. Allmargir kennarar og nemendur Menntaskólans á Ísafirði lýstu í samtölum við blaðið verulegri óánægju með hið nýja tölvukerfi skólans, einkum póstkerfið. Létu ýmsir þung orð falla um vandræðin með kerfið og samskipti sín við Vestmark. Einnig höfðu starfsmenn á bæjarskrifstofum Ísafjarðar- bæjar samband við blaðið og létu í ljós verulega óánægju með nýtt tölvukerfi þar, sem Vestmark hefur komið upp. Aðrir starfsmenn þar telja hins vegar, að þegar verið sé að taka upp nýtt kerfi frá grunni sé eðlilegt að um sé að ræða ýmsa byrjunarörðugleika og ekki sé ástæða til kvartana á þessu stigi. Vegna þessara umkvartana ræddi blaðið við Guðna Geir Jóhannesson, sem er stjórn- armaður og hluthafi í Vest- marki. Óánægjan í Mennta- skólanum kom honum aug- ljóslega mjög á óvart. Hann kvaðst ekki hafa fengið aðrar upplýsingar frá starfsmönnum Vestmarks en að hlutirnir væru í góðu lagi. Í framhaldi af þessu brást Guðni hart við, svo og annar hluthafi og stjórnarmaður hér vestra, Kristján G. Jóhanns- son. Óskuðu þeir eftir því að þeir stjórnarmenn Vestmarks sem eru hér á svæðinu og Til sölu! Til sölu er verslunar-, skrifstofu- og iðnað- arhúsnæði að Suðurgötu 9, norðurendi, Ísafirði. Flatarmál: 506m². Hlutdeild í 1.670m² lóð. Skiptanleg í minni einingar. Nánari upplýsingar gefa Hafsteinn Vil- hjálmsson í síma 456 4666 og Lögfræðiskrif- stofa Björns Jóhannessonar hdl., sími 456 4577. starfsmenn fyrirtækisins kæmu tafarlaust saman og ræddu þetta mál. Sá fundur var haldinn morguninn eftir. Guðni sagði í samtali við blaðið að fundinum loknum, að ljóst væri að ýmsir hnökrar væru og hefðu verið á tölvu- kerfi Menntaskólans og sam- skiptum Vestmarks við not- endur þess í skólanum. Einnig taldi Guðni að einhvers mis- skilnings gætti í þessu máli. Menntaskólinn virtist telja sig hafa verið að kaupa meiri þjónustu en fyrirtækið hefði í raun verið að selja honum. Nú á mánudag var haldinn fundur þar sem fulltrúar Menntaskólans á Ísafirði og Vestmarks ræddu málin í þeim tilgangi að koma þeim á hreint. Guðni sagði nauðsyn- legt að báðum aðilum sé ljóst hvað hafi verið selt og hvað hafi verið keypt. Jafnframt sagði Guðni að lögð verði áhersla á að þjónustan af hálfu Vestmarks verði framvegis í betra horfi en hafi verið. 08.PM5 19.4.2017, 09:2213

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.