Bæjarins besta - 21.02.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 9
varla hvernig svo störfum
hlaðinn maður, þó prestur sé,
geti líka komist yfir að stunda
hlunnindabúskapinn í Borg-
arey. Það er mikið og erfitt
verk að hugsa um hlunnindin
í Borgarey svo vel sé. Og víst
er um það, að þó sr. Baldur og
hans fólk hafi haft einhverjar
tekjur af eynni, þá hafa þau
nú trúlega unnið þar mikið
starf fyrir frekar lág laun og
jafnvel hugsað meira um líf-
ríki eyjunnar en peningana.
Og fyrir þá sem til þekkja, þá
hafa þau nú minnstan gróða
haft af þó hinir og þessir
„skemmtiveiðimenn“ hafi
stundað lundaveiðina í Borg-
arey.
En það sannast víst enn
þann dag í dag, að „margur
heldur auð í annars garði“. En
að þvílík græðgi skuli koma
frá sjálfum guðsmanninum
Valdimar Hreiðarssyni –
ásamt vinaryfirlýsingu gagn-
vart sr. Baldri – er mun meira
en nokkur maður hér um slóðir
átti von á.
En kannski finnast einhvers
staðar einhverjir digrir sjóðir
í hinum sóknunum, svo hægt
sé að gera vel við blessaðan
prestinn sem er á eilífum þön-
um í prestakallinu sínu við að
þjóna sóknarbörnunum og
hlúa að aldavini sínum á hans
efri árum í Vatnsfirði við Djúp.
Merkilegt að sóknarbörnin,
a.m.k. hér í Inn-Djúpi, skuli
aldrei hafa séð honum bregða
fyrir, því ekki var annað að
lesa út úr greininni en að
presturinn væri á þönum um
allt prestakallið.
Reykjanesi í febrúar 2001.
Margrét Karlsdóttir.
Kirkjugestir í Vatnsfirði á jólum árið 2000. Aftari röð frá vinstri: Jóhanna Kristjánsdóttir,
Guðbrandur Baldursson og sr. Baldur Vilhelmsson. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Jóns-
dóttir, Ólafía Salvarsdóttir, Heiðrún Kristjánsdóttir, Kristján Pétursson, Árdís Einarsdóttir,
Páll Áskelsson og Hlíf Hrólfsdóttir. Mynd: Margrét Karlsdóttir.
Það er mun ódýrara
að vera áskrifandi!
Forstöðumaður Gamla apóteksins á Ísafirði
Sigríður Schram ráðin
Sigríður Schram kennari
við Grunnskólann á Ísafirði
hefur verið ráðinn forstöðu-
maður Gamla apóteksins,
kaffi- og menningarhúss
ungs fólks á Vestfjörðum
en eins og greint hefur verið
frá hér í blaðinu, lætur Aldís
Sigurðardóttir af störfum í vor.
Sigríður hefur töluvert unn-
ið að æskulýðsmálum, meðal
annars hjá Þjóðkirkjunni.
„Okkur var bent á að hún væri
upplögð manneskja í starfið“,
segir Sigríður Magnúsdótt-
ir, formaður stjórnar Gamla
apóteksins. „Hún er sögð
mikill listamanneskja og
hefur þar að auki unnið á
kaffihúsi.“
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan
Nær tveir þriðju sam-
þykktu verkfallsboðun
– fyrsta félagið innan FFSÍ sem tekur afstöðu til verkfalls
fallsboðunar. Þátttakan í kosn-
ingunni var 65,5%. Hér er um
að ræða yfirmenn á öllum
vestfirskum fiskiskipum yfir
30 tonnum ef útgerðar-
mennirnir sjálfir eru ekki í
stöðum yfirmanna.
Nær tveir þriðju eða
63,9% þeirra sem greiddu
atkvæði hjá Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu Bylgj-
unni á Vestfjörðum sam-
þykktu að boða til verkfalls.
Atkvæði voru talin á
fimmtudag í síðustu viku.
Gegn verkfalli voru 30,6%
en auðir seðlar voru 5,5%.
Verkfall hefst 15. mars
kl. 24 ef ekki verður samið
fyrir þann tíma. Póstat-
kvæðagreiðsla hefur staðið
yfir í rúman mánuð. Bylgjan
er fyrsta félagið á landinu
innan Farmanna- og fiski-
mannasambands Íslands
sem tekur afstöðu til verk-
KARLREMBUKVÖLD
Á Hótel Ísafirði föstudaginn 23. febrúar kl. 19:30.
Sjávarréttahlaðborð eins og það gerist best. Kútmagar,
höfrungur, Búri, skata, síld, hákarl, harðfiskur, lax, humar,
steinbítur, hrogn og lifur, rækja, bleikja og margt fleira.
Borðapantanir í síma 456 4111
Verð kr. 3.500.-
Fyndnasti maður
á Íslandi
Sveinn Waage
lætur magana
kútveltast af hlátri
Gísli Hjartar flytur
óprenthæfar
vestfirskar þjóðsögur
Pakkauppboð
til styrktar
góðu málefni!
Kúttmagakvöld lions
08.PM5 19.4.2017, 09:229