Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.02.2001, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 21.02.2001, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 15 Árshátíð Menntaskólans á Ísafirði „Mætingin góð og maturinn enn betri“ Árshátíð Mennta- skólans á Ísafirði var haldin á Hótel Ísafirði á föstudag. Að sögn Skúla Þórðarsonar, forseta Nemendafélags MÍ, tókst hún með ágætum. „Mæting var góð og maturinn enn betri. Rúmlega 120 manns átu og fylgdust með skemmtiatriðum sem þóttu ansi fyndin“, sagði Skúli. Einhver misskilningur varð til þess að mun færri kennarar mættu á árshátíðina en undan- farin ár. Björn Teitsson skólameistari lét sig þó ekki vanta frekar venju og var á hátíðinni ásamt konu sinni, Önnu G. Thorarensen. Að áti loknu héldu nemendur á Sjallann á Ísafirði og dönsuðu langt fram á nótt. Eyfirska hljómsveitin 200.000 naglbítar átti að leika fyrir dansi en komst ekki til Ísafjarðar vegna veðurs. Það dró þó ekki úr dansgleði nemenda sem hristu skankana við tónlist plötusnúðs. 08.PM5 19.4.2017, 09:2215

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.