Bæjarins besta - 11.04.2001, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 3
Laugardagur
14. apríl
Opið til kl. 03
Jazz í Krúsinni
Uppselt
Húsið opnar kl. 19:30 fyrir matargesti
og kl. 24:00 fyrir dansgesti.
Baldur og Margrét
skemmta á balli eftir jazzinn!
Jazz í Krúsinni
á páskadag
Laus sæti
Gömlu, góðu jazzgeggjararnir
Villi Valli, Baldur Geirmunds,
Gunnar Hólm, Maggi Reynir, Kalli
Geirmunds og Óli Kristjáns
Miða- og borðapantanir
í síma 456 3985
Boðið verður
upp á létt
hlaðborð og
dansleik með
Baldri og
Margréti á eftir
Viljayfirlýsingar undirritaðar í síðustu viku um samstarf milli Heilbrigðisstofnunarinnar
Ísafjarðarbæ og Íslenskrar erfðagreiningar, Skýrr og Taugagreiningar
Stefnt að þróun nýjunga á sviði raf-
rænna samskipta í heilbrigðiskerfinu
– fólk og fyrirtæki í Ísafjarðarbæ taki þátt í samstarfsverkefnum
Samningur milli Heilbrigð-
isstofnunarinnar Ísafjarðarbæ
og Íslenskrar erfðagreiningar
ehf. (ÍE) um flutning gagna úr
sjúkraskrám í gagnagrunn á
heilbrigðissviði var undirrit-
aður á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Ísafirði á fimmtudag síðustu
viku, eins og fram kemur hér
á baksíðunni. Samningurinn
er hliðstæður öðrum samning-
um sem ÍE hefur gert við heil-
brigðisstofnanir víða um land
og telst naumast mjög frétt-
næmt að enn einn slíkur skuli
gerður.
Fréttnæmt verður aftur á
móti að teljast, að auk samn-
ingsins var undirrituð vilja-
yfirlýsing um samstarfs- og
þróunarverkefni ÍE og Heil-
brigðisstofnunarinnar Ísa-
fjarðarbæ, langt umfram það
sem samningurinn tekur til.
Slíkt er einsdæmi á þessu
sviði í samskiptum ÍE við ís-
lenskar heilbrigðisstofnanir.
Í hinni sameiginlegu yfir-
lýsingu segir m.a.:
„Hjá Heilbrigðisstofnun-
inni Ísafjarðarbæ er fyrir hendi
yfirgripsmikil sérfræðiþekk-
ing og reynsla á mjög mörgum
sviðum, auk þess sem aðstæð-
ur allar og stærð stofnunar-
innar eru með þeim hætti, að
mjög ákjósanlegt er að eiga
samstarf við stofnunina um
þróun ýmissa nýmæla á sviði
rafrænna samskipta sjúklinga
og heilbrigðisstarfsmanna.
Það er Heilbrigðisstofnuninni
Ísafjarðarbæ engu að síður
mikilvægt að nýta þá sérþekk-
ingu og áhuga, sem innan
stofnunarinnar býr, til að
tryggja viðgang starfseminnar
og framtíð, m.a. með því að
ná samstarfi við aðila sem geta
unnið með Heilbrigðisstofn-
uninni Ísafjarðarbæ til að
styrkja faglegt og rekstrarlegt
umhverfi stofnunarinnar og
stuðla að öflugri þróun.
Framantaldir þættir eiga að
vera yfirskrift á öllum þeim
þróunar- og samstarfsverkefn-
um sem Heilbrigðisstofnunin
Ísafjarðarbæ og ÍE ákveða að
vinna að í sameiningu. Eins
og fram kemur í umfjöllun
um einstök verkefni eða verk-
efnahluta þarf að gera sérstak-
ar verk- og fjárhagsáætlanir
fyrir hvert þeirra, auk þess
sem í ákveðnum tilvikum þarf
að gæta að lagaramma verk-
efna og leita leyfa siðanefnda
og Persónuverndar. Þess
vegna þarf að setja sum verk-
efnin upp sem sérstök vísinda-
eða þróunarverkefni og setja
þau fram eftir þeim reglum
sem um slík verkefni gilda.“
Að undirbúningi þessa máls
hefur verið unnið síðustu
mánuði, eftir að fram kom
gagnkvæmur vilji um slíka
samvinnu og eindreginn vilji
Ísafjarðarbæjar til þess að
stuðla að slíku með öllum ráð-
um. Ólafur Sigurðsson, sjóðs-
stjóri Talentu-Líftækni hjá
Íslandsbanka-FBA, var feng-
inn til að samræma undirbún-
ingsvinnuna og ráðgjafarfyr-
irtækið PriceWaterhouse-
Coopers (PWC) var fengið til
að gera úttekt á þeim mögu-
leikum sem eru til sameigin-
legra verkefna ýmissa aðila
hér vestra. Auk ÍE var leitað
eftir vilja hjá öðrum fyrirtækj-
um syðra til samvinnu við
Heilbrigðisstofnunina Ísa-
fjarðarbæ.
Á fundi á Ísafirði á fimmtu-
dagsmorgun í síðustu viku
voru saman komnir fulltrúar
frá Heilbrigðisstofnuninni
Ísafjarðarbæ, Íslenskri erfða-
greiningu, Ísafjarðarbæ, fyrir-
tækjunum Skýrr, Taugagrein-
ingu, Landspítala-háskóla-
sjúkrahúsi og Framtíðartækni,
svo og fyrirtækjunum Snerpu,
Vestmarki, Símanum á Ísa-
firði, VST á Ísafirði, Teikni-
stofunni kol & salt, Póls og
3X-Stáli. Þar kynnti Ólafur
Sigurðsson ýmsa möguleika
á samstarfi og samvinnu-
verkefnum og fór yfir þætti úr
úttekt PWC. Úttektin mun
hins vegar ekki liggja fyrir
fullfrágengin fyrr en eftir
páska. Á þessum fundi voru
síðan undirritaðar viljayfirlýs-
ingar um samstarf milli
Taugagreiningar og Skýrr
annars vegar og Heilbrigðis-
stofnunarinnar Ísafjarðarbæ
hins vegar, í sama anda og
áðurnefnd yfirlýsing milli ÍE
og Heilbrigðisstofnunarinnar
Ísafjarðarbæ.
Þeim sem unnið hafa að
undirbúningi þessarar sam-
vinnu virðist blasa við, að fjöl-
margir möguleikar séu fyrir
hendi og raunar ekki nærri
allir ljósir enn. Ætlunin er að
fara rólega af stað og vanda
allan undirbúning og flana
ekki að neinu með ótímabær-
um yfirlýsingum, heldur leit-
ast við að koma verkefnum af
stað eftir því sem hægt verður.
Enda þótt nokkur ísfirsk fyr-
irtæki hafi verið með í undir-
búningnum í fyrstu atrennu
er ekkert sem segir, að ekki
gætu fleiri komið þar að.
Í sameiginlegri yfirlýsingu
ÍE og Heilbrigðisstofnunar-
innar Ísafjarðarbæ segir m.a.:
„ÍE og Heilbrigðisstofnunin
Ísafjarðarbæ munu vinna
saman að þróun ákveðinna
hluta sjúkraskrárhugbúnaðar.
Þar sem þróun rafræns sjúkra-
skrárkerfis er samvinnuverk-
efni á mörgum heilbrigðis-
stofnunum verður leitast við
að finna sameiginlegan
ramma fyrir verkefnið. Það
auðveldar bæði Heilbrigðis-
stofnuninni Ísafjarðarbæ, svo
og ÍE og hugbúnaðarframleið-
endum, að samræma vinnu
við verkefnið.
Sett verður upp þróunar-
teymi vegna verkefnisins, sem
skipað verður fulltrúum Heil-
brigðisstofnunarinnar Ísa-
fjarðarbæ og fulltrúa ÍE. Þró-
unarteymið gerir verk- og
kostnaðaráætlun varðandi þá
verkþætti sem snúa að þátt-
töku Heilbrigðisstofnunarinn-
ar Ísafjarðarbæ í framan-
greindu verkefni...“
Sem hluti af þróun rafrænn-
ar sjúkraskrár er eftirfarandi
þróunarverkefni m.a. nefnt:
„Hugbúnaðarþróun tengd
netlækningum: Verkefni sem
byggir á hugbúnaðarþróun
fyrir netlækningar/hjúkrun
getur m.a. falist í því, að valinn
yrði hópur sjúklinga og þeim
hópi boðin heimaþjónusta
hjúkrunar gegnum netið. Við
undirbúning slíks verkefnis
þarf að skilgreina einstaka
verkþætti og gera úttekt á
verkferlum, gera könnun til-
tækra samræmdra upplýs-
ingakerfa til fjarþjónustu, að-
stoða við val á hugbúnaði fyrir
valinn hóp sjúklinga og að-
stoða við aðlögun verkferla
og þátttöku starfsfólks í breyt-
ingum. Haft yrði að leiðarljósi
að finna auðveldustu og bestu
lausnirnar miðað við aðstæður
á staðnum og jafnframt haft í
huga að slíkur búnaður og
lausnir geti nýst annars staðar
á landinu...
Gerð fræðsluefnis: Með
aukinni net- og tölvuvæðingu
verður nærtækt að nota slíkan
búnað til upplýsingar fyrir
sjúklinga og allan almenning
um sjúkdóma og heilsu. Mik-
ill áhugi er á slíku og nægir
þar að benda á netfræðslufyr-
irtæki um læknisfræði í ýms-
um löndum sem dæmi. Heil-
brigðisstofnunin Ísafjarðarbæ
og ÍE hafa áhuga á að vinna
saman að þróun fræðsluefnis
til miðlunar á tölvum og yrði
þá sérstaklega miðað við þá
sjúkdóma sem eru hluti af
erfðarannsóknum ÍE. Slíkt
efni mætti vinna í samvinnu
við Landlæknisembættið og
fleiri aðila.“
Gögnum varðandi þetta mál
eru gerð ítarlegri skil á bb.is.
Páskavaka Ísafjarðarprófastsdæmis á laugardag
Tileinkuð ungu fólki
Páskavaka Ísafjarðarpró-
fastsdæmis verður haldin
laugardaginn 14. apríl í
Ísafjarðarkirkju kl. 20:30.
Páskavakan er tileinkuð
ungu fólki og fjölskyldum
þeirra.
Dagskráin er fjölbreytt og
má þar nefna einsöng lítillar
söngstjörnu úr Önundar-
firði, Önnu Þuríðar Sigurð-
ardóttur, frumfluttan leik-
þátt með söngvum eftir
Soffíu Vagnsdóttur, saxó-
fónkvartett undir stjórn Les-
aw Szyszko og svo mun
baritonsöngvarinn góð-
kunni Ólafur Kjartan Sig-
urðarson syngja tvö lög við
undirleik Tómasar Guðna
Eggertssonar píanóleikara.
Þá verður fjöldasöngur og
biblíulestur.
Fjölskyldur eru hvattar til
að koma með unglingana sína
og eiga notalega stund í
Guðshúsi við söng-, leik-
og tónlistarflutning á að-
fangadegi páska.
Frá æfingu á leikþætti Soffíu Vagnsdóttur, „Rís upp á ný
og eigðu betra líf“.
Ertu orðin(n) áskrifandi!
Áskriftarsíminn er 456 4560
15.PM5 19.4.2017, 09:273