Bæjarins besta - 11.04.2001, Blaðsíða 16
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Íþróttamaður Bolungarvíkur 2000
Birgir golfari
útnefndur
Birgir Olgeirsson, 16 ára
gamall golfleikari, var á laug-
ardag útnefndur Íþróttamaður
Bolungarvíkur árið 2000 í
samsæti í Finnabæ. Ólafur
Kristjánsson bæjarstjóri af-
henti honum veglegan bikar
þessu til staðfestingar. Þar
voru einnig nokkrir aðrir bol-
vískir íþróttamenn heiðraðir
fyrir árangur sinn á síðasta
ári. Svala Sif Sigurgeirsdóttir
fékk viðurkenningu fyrir
frammistöðu í sundi, þau
Kristín Grímsdóttir, Bjarni
Pétur Jónsson, Gunnar Már
Elíasson, Óttar Bjarnason og
Stefán Karlsson fyrir árangur
í knattspyrnu og Guðmundur
Daðason fyrir árangur við
skákborðið.
Á síðasta ári keppti Birgir
Olgeirsson á sautján golfmót-
um og lækkaði forgjöf sína
verulega. Hann tók í fyrsta
sinn þátt í unglingalandsmóti
Golfsambandsins og stóð sig
þar með prýði. Í sumar bætti
hann vallarmetið á golfvell-
inum í Bolungarvík en þá var
hann ekki orðinn sextán ára
gamall.
Á meðfylgjandi mynd sem
tekin var í Finnabæ er Birgir
ásamt öðrum golfara, afa sín-
um og nafna, Birgi Valdimars-
syni húsnæðisfulltrúa á Ísa-
firði. Birgir eldri hefur um ára-
bil verið einn af virkustu fé-
lögunum í Golfklúbbi Ísa-
fjarðar, bæði í félagsstarfinu
og úti á vellinum.
Nafnarnir og langfeðgarnir eiga sama áhugamálið.
Ísafjörður
Ekkert
flug á
föstudag
Flugfélag Íslands hefur
ákveðið að fljúga til allra
sinna ákvörðunarstaða á
föstudaginn langa nema
til Ísafjarðar.
Þetta er í fyrsta skipti
sem félagið heldur uppi
áætlunarflugi þennan dag
og eru undirtektir mjög
góðar en nú hafa nokkur
hundruð farþegar bókað
sig í flug þennan dag.
Ástæða þess að ekki
verður flogið til Ísafjarð-
ar er sú að Flugmála-
stjórn gat ekki veitt þjón-
ustu á flugvellinum þar
sem ekki fengust starfs-
menn til að vinna þennan
dag.
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ og Íslensk erfðagreining
Viljayfirlýsing um frek-
ara samstarf staðfest
– auk undirritunar samnings um flutning upplýsinga í gagnagrunn
Samningur milli Heilbrigð-
isstofnunarinnar Ísafjarðarbæ
og Íslenskrar erfðagreiningar
ehf. (ÍE) um flutning gagna úr
sjúkraskrám í gagnagrunn á
heilbrigðissviði var undirrit-
aður á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Ísafirði á fimmtudag síðustu
viku. Samningurinn er hlið-
stæður öðrum samningum
sem ÍE hefur gert við heil-
brigðisstofnanir víða um land.
Til frekari tíðinda má telja, að
jafnframt var undirrituð ítarleg
viljayfirlýsing um frekara
samstarf en áðurnefndur
samningur tekur til.
Áður sama dag var haldinn
fræðslufundur um hugmyndir
sem hafa verið í vinnslu milli
Heilbrigðisstofnunarinnar og
Ísafjarðarbæjar um aukin
verkefni á heilbrigðissviði. Sú
vinna hófst þegar Íslensk
erfðagreining lét í ljós vilja
um samstarf í kjölfar við-
ræðna við Heilbrigðisstofn-
unina. Á þeim fundi voru und-
irritaðar viljayfirlýsingar milli
Heilbrigðisstofnunarinnar
Ísafjarðarbæ og Taugagrein-
ingar hf. annars vegar og Skýrr
hf. hins vegar.
Frá þessum samningum og
yfirlýsingum og aðdraganda
þeirra er greint nánar á bls. 3.
Þröstur Óskarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ, og Kristján Erlendsson frá Íslenskri
erfðagreiningu við undirritun viljayfirlýsingar um samstarf.
15.PM5 19.4.2017, 09:2716