Bæjarins besta - 18.07.2001, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001 3
Atvinna
Starfsfólk óskast til afgreiðslustarfa nú
þegar, eða eftir samkomulagi. Vinnutími
f.h., e.h. eða allan daginn. Möguleiki á
sveigjanlegum vinnutíma.
Upplýsingar gefa María, Rósa eða Ruth.
HSV tók þátt í Landsmóti Ungmennafélags Íslands í fyrsta sinn
Lenti í fimmta sæti af 27
Héraðssamband Vestfirð-
inga (HSV) mætti á Landsmót
austur á Fljótsdalshéraði með
vaska sveit íþróttafólks til
keppni í margskonar íþróttum,
hefðbundnum og óhefð-
bundnum. Árangurinn varð
glæsilegri en nokkur mun hafa
búist við. HSV varð í fimmta
sæti af 27 héraðssamböndum
og hlaut þrenn gullverðlaun,
tvenn silfurverðlaun og 6
bronsverðlaun og setti þrjú
landsmótsmet. Í ljósi þess að
HSV sem aðeins nær yfir
Ísafjarðarbæ tók þátt í mótinu
í fyrsta sinn verður árangurinn
að teljast frábær.
HSV sendi 87 einstaklinga
austur í Egilsstaði og óku
margir með rútu í þrettán tíma
en aðrir fóru á einkabílum eða
fljúgandi. Stemmningin í
hópnum var frábær og íþrótta-
fólk ólíkra íþróttagreina stóð
saman sem ein heild. Þeir sem
unnu til verðlauna voru eftir-
farandi einstaklingar og hóp-
ar:
Heiðar Ingi Marinósson
hlaut gull í 50 m skriðsundi á
tímanum 24.32 og bætti hann
landsmótsmetið tvisvar í
þeirri grein en landsmóts-
metið var 24.86. Hann fékk
einnig gullverðlaun í 100 m
skriðsundi á tímanum 53.75
og bætti einnig landsmótsmet-
ið sem var 54.15. Heiðar hlaut
silfurverðlaun í 100 m bak-
sundi á tímanum 1:07.23.
Hann var einnig í boðsunds-
sveit HSV ásamt Pétri Erni
Birgissyni, Þór Sveinssyni og
Braga Sveinssyni sem hlaut
gullverðlaun í 4x100 m skrið-
sundi og bronsverðlaun í
4x100 m fjórsundi.
Þór Sveinsson hlaut brons-
verðlaun í 50 m skriðsundi og
einnig í 100 m skriðsundi.
Linda G. Lyngmo hlaut silfur-
verðlaun í 200 m fjórsundi.
Bragi Þorsteinsson hlaut silf-
urverðlaun í 200 m bringu-
sundi.
Boðsundsveit kvenna vann
til bronsverðlauna í 4x100 m
skriðsundi en sveitina skipuðu
þær Kristjana Pálsdóttir,
Sandra K. Lyngmo, Anna
María Guðmundsdóttir og
Rakel Ósk Jensdóttir.
Körfuboltalið karla hlaut
bronsverðlaunin eftir mjög
skemmtilega keppni. Liðið
háði harða baráttu við UMSK,
sem skipað var leikmönnum
Hamars í Hveragerði, um sæti
í úrslitaleiknum en þeir tapaði
þar naumlega. Kvennalið
HSV í knattspyrnu fékk
bronsverðlaun.
Íþróttamenn HSV unnu
einnig til stiga fyrir knatt-
spyrnu karla, blak kvenna,
skotfimi, hestadóma, pönnu-
kökubakstur, spjótkast, 400
metra hlaup, 800 metra hlaup,
1500 metra hlaup, 5000 metra
hlaup, 4x100 metra boðhlaup
karla og kvenna og golf.
Undirbúningsnefnd HSV
þakkar keppendum og öllum
þeim aðstoðuðu við undir-
búning og framkvæmd ferðar-
innar fyrir samstarfið og
frábæran árangur.
Heiðar Ingi Marinósson.
Telur rétt að setja löggjöf
um réttindi starfsmanna
– slík löggjöf ætti ekki síður að ná til hins almenna vinnumarkaðar
Umræða um flutning stofnana eða starfa milli landshluta
stofnunar milli landshluta
jafngildi því að starf sé lagt
niður en þá er um biðlaunarétt
að ræða. Það var sjónarmið
iðnaðarráðuneytisins og Rík-
islögmanns að ekki sé um
niðurlagningu starfs að ræða
en SÍB hélt hinu gagnstæða
fram. Þessi lagalegi ágrein-
ingur er óleystur og mun rísa
að nýju þegar næsta stofnun
verður flutt, hvort heldur það
verður í heilu lagi eða að
hluta.“
Kristinn H. Gunnarsson.
ný starfsemi hins opinbera
verði fyrst og fremst utan
höfuðborgarsvæðisins og
ákveðin verkefni stofnana
verði flutt út á land. Ekki
verður sagt að vel hafi gengið
að fylgja þessu eftir. Eru til
þess ýmsar ástæður, þar á
meðal ofangreind sjónarmið
starfsmanna. Ég velti því fyrir
mér hvort ekki sé rétt að setja
sérstaka löggjöf um réttindi
starfsmanna við flutning
stofnunar eða starfs milli
landshluta. Ég hef trú á því að
ef slíkar reglur liggja fyrir
muni nást betri árangur en
verið hefur. Slík löggjöf ætti
að mínu mati að ná til almenna
vinnumarkaðarins enda vand-
séð að opinberir starfsmenn
eigi að fá sérstaka
meðhöndlun og njóta réttinda
sem ekki eru til staðar í öðrum
starfsgreinum. Sérstaklega er
eftirtektarvert hvað
starfsöryggi launafólks í
sjávarútvegi er lítið og má þar
nefna að í fiskvinnslu er hægt
að taka fólk af launaskrá
fyrirvaralítið vegna
hráefnisskorts. Ætla má að
verulegt samband sé milli
lítils atvinnuöryggis og veikr-
ar stöðu byggðar“, segir
Kristinn H. Gunnarsson.
Um málefni starfsmanna
Byggðastofnunar í Reykjavík
sérstaklega og starfslok þeirra
segir Kristinn:
„Starfsmönnum Byggða-
stofnunar í Reykjavík var
boðin áframhaldandi vinna
hjá stofnuninni, en þeir af-
þökkuðu það að einum undan-
skildum. Í framhaldinu var
deilt um biðlaunarétt og
höfðaði Samband íslenskra
bankamanna mál til þess að
fylgja kröfum starfsmanna
eftir. Samkomulag tókst þó
að lokum þegar stjórn
Byggðastofnunar ákvað að
leggja niður stöður átta starfs-
manna, enda lá fyrir að stofn-
unin yrði endurskipulögð að
nokkru. Við það myndaðist
biðlaunaréttar sem starfsmenn
njóta fái þeir ekki annað starf
á næstu 12 mánuðum. Hefji
þeir annað starf á tímabilinu
sem er lægra launað en það
sem þeir gegndu hjá Byggða-
stofnun er greiddur mismunur
launanna í 12 mánuði. Stofn-
unin aðstoðar þessa starfs-
menn við að fá annað starf og
eru góðar horfur um að það
takist. Við það verður kostn-
aður Byggðastofnunar af
biðlaunaréttinum ekki mikill.
Aðrir starfsmenn en þessir
átta höfðu ýmist fengið sér
annað starf og látið af störfum
eða við þá hafði verið gerður
starfslokasamningur. Niður-
staðan er að tekist hefur sam-
komulag við alla sem störfuðu
í Reykjavík sem er mikið
fagnaðarefni og greiddi veru-
lega fyrir því að flutningur
Byggðastofnunar gengi sam-
kvæmt áætlun. Það sem deilt
var um er hvort flutningur
Vegskálinn sem skemmdist
Gert hefur verið
við gatið á þakinu
Sjá mátti upp í heiðan himin í gegnum járnabindinguna
í lofti vegskálans.
Gert hefur verið við gat á
þaki vegskálans við Hvann-
gjá ytri á Óshlíð. Eins og
hér kom fram lenti steinn á
þaki skálans aðfaranótt 30.
maí og braut á það gat þó að
járnabindingin hafi haldið.
Tilkynning barst lögregl-
unni á Ísafirði um að stórt
steypustykki lægi á vegin-
um.
Menn frá verktakafyrir-
tækinu Ágústi og Flosa hóf-
ust handa í byrjun síðustu
viku við að brjóta í burtu
skemmda og sprungna
steypu. Sagði Ólafur Geirs-
son, sem vann að verkinu
við þriðja mann, að þessu
hefði fylgt nokkurt múrbrot
og vesen og puð. Síðan var
slegið upp og steypt í gatið.
Blásarar blésu í vitlausa átt
Mengun yfir mörk
„Reynslan af flutningi
stofnana bendir til þess að fáir
starfsmenn á höfuðborgar-
svæðinu kjósi að flytjast
búferlum út á land þegar
starfið er flutt“, segir Kristinn
H. Gunnarsson, stjórnarfor-
maður Byggðastofnunar, í
formála að nýútkominni árs-
skýrslu stofnunarinnar fyrir
síðasta ár. Hann segir að hins
vegar séu margir tilbúnir að
vinna þessi sömu störf þótt
þau séu utan höfuðborgar-
svæðisins, þar á meðal fólk
sem er búsett á höfuðborgar-
svæðinu.
Kristinn gerir þessi mál að
umræðuefni vegna flutnings
Byggðastofnunar frá Reykja-
vík til Sauðárkróks. Umtals-
verðrar óánægju gætti meðal
starfsfólks vegna þeirrar
ákvörðunar og allir starfs-
menn nema einn afþökkuðu
áframhaldandi starf á nýjum
stað.
„Þetta er ekki ólíkt því sem
gerist þegar störf flytjast milli
staða á landsbyggðinni eða af
landsbyggðinni til höfuð-
borgarsvæðisins“, heldur
Kristinn áfram, „en slíkt hefur
gerst í töluverðum mæli,
sérstaklega í sjávarútvegi með
flutningi kvóta og skipa. Fólk
vill vera þar sem það hefur
komið sér fyrir og tekur
óstinnt upp röskun á sínum
högum sem flutningur á starfi
vissulega er.
Nú er það opinber stefna að
göngin. Vindnemar náðu
ekki að skynja breytinguna
strax og unnu blásarar því á
móti andvaranum í dálitla
stund og fór mengun þá yfir
hættumörk“, sagði Jón
Baldvin Jóhannesson, verk-
stjóri hjá Vegagerðinni.
Rauð ljós kviknuðu við
alla munna ganganna þegar
mengunin varð of mikil.
Blásararnir fóru fljótlega að
blása í rétta átt og ræstu
göngin á skömmum tíma.
Gífurleg bílaumferð var á
vestfirskum vegum um helg-
ina og vilja kunnugir meina
að um Ísafjarðardjúp hafi farið
fleiri bílar en um venjulega
verslunarmannahelgi. Í Vest-
fjarðagöngum fór mengun
upp fyrir hættumörk í skamma
stund. Mikil umferð og hægur
vindur gerðu það að verkum
að blásarar í göngunum höfðu
vart undan.
„Svo breyttist vindáttin og
fór að anda í aðra átt í gegnum
„Frostvandamál“ á Ísafirði
Rótin í hugbúnaði
Það hefur orðið áhorf-
endum Skjás Eins á Ísafirði
og í Hnífsdal til nokkurra
leiðinda að undanförnu að
útsendingin hefur frosið öðru
hverju og haldist þannig
jafnvel í nokkra stund. Að
sögn Björns Davíðssonar hjá
Snerpu á Ísafirði, sem annast
þjónustu við Skjá Einn, er
ástæðan fyrir þessu breyting
á hugbúnaði.
„Við skiptum um hugbúnað
fyrir tveimur vikum en nýi
hugbúnaðurinn á að laga
ósamræmi milli hljóðs og
myndar. Í kjölfar breytinganna
kom upp einhver villa. Við
erum fyrstir til að nota þessa
flutningsleið og það er því
eðlilegt að einhver þróun þurfi
að eiga sér stað“, sagði Björn.
BB
áskrift
borgar
sig
29.PM5 19.4.2017, 09:373