Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.07.2001, Page 6

Bæjarins besta - 18.07.2001, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001 Svipmynd af Sveini Guðbjartssyni, verkstjóra í Hnífsdal „Ég er Dokkupúki og er hreyk- inn af því“ Sveinn Guðbjartsson, verkstjóri hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. í Hnífsdal, hefur ekki verið að skipta um vinnustað á hverjum degi. Hann á nú að baki meira en þrjátíu ára starf á sama stað og reyndar hefur hann aldrei á ævinni þurft að biðja um vinnu. Sveinn er jákvæður maður að eðlisfari og virðist helst sjá hið góða í öllum hlutum. Þannig segist hann aldrei hafa kynnst nema góðu fólki á rúmlega sextíu ára ævi og lýsir líklega sjálfum sér best með því. Eiginkona Sveins er María Hagalínsdóttir frá Hrauni á Ingjaldssandi. „Ég kynntist henni árið 1960. Við giftum okkur tveimur árum seinna og fluttum í Hnífsdal 1965. Þar er mjög gott að búa.“ Í Hnífsdal var Sveinn „plat- aður“ til að fara í sóknarnefnd og var formaður sóknarnefnd- ar í 20 ár. „Þá var kominn tími til þess leyfa öðrum og yngri mönnum að komast að“, segir hann. Sveinn er fæddur og uppal- inn á Eyrinni á Ísafirði en ættir hans voru í Jökulfjörðum og Djúpi. Hann má því heita eins vestfirskur og orðið getur. „Ég er Dokkupúki, eins og það var kallað, og hreykinn af því. Dokkan á Ísafirði var leik- svæði mitt þegar ég var strákur og þar var ég á vorin þangað til ég fór í sveit. Samfélagið á Eyrinni Hún hefur upp á svo margt að bjóða, hvort sem það er vetur, sumar, vor eða haust. Það er alltaf nóg að gera fyrir krakka ef þeir vilja hafa eitthvað fyrir stafni. Umferðin er auðvitað meiri núna en samt er alltaf hægt að fara niður á hafnar- svæði og veiða. Á veturna var ágætt að hlaupa á ísjökum.“ Eik í boga „Það voru margir skemmti- legir menn sem ég ólst upp með og gaman að fá að kynn- ast þeim, sérstaklega seinna þegar maður var orðinn eldri. Þar á meðal voru Marselíus Bernharðsson, Ólafur Guð- mundsson í Þór og Sveinn braskari, sem var alveg sér- stakur kapítuli. Þetta voru af- bragðsmenn og margar góðar sögur til af þeim. Þá voru Guð- mundur Þorvaldsson og Jói Þorsteins stórkostlegir iðnað- armenn og alveg einstakir að eiga við, alltaf boðnir og búnir að gera allt fyrir mann. Það var gaman að koma niður í Suðurtanga sem púki og biðja um eik í boga. Þeir söguðu fyrir okkur strákana og alltaf voru allir tilbúnir til að hjálpa eða gera eitthvað fyrir okkur. Ég held að þetta hafi breyst í dag. Það er kominn miklu meiri hraði í allt og leiksvæðin orðin önnur. Líka er eins og enginn geri neitt nema hann fái borgað fyrir það.“ Ólíkir menn en miklir Hnífsdælingar Sveinn Guðbjartsson hefur starfað yfir þrjátíu ár hjá Hrað- frystihúsinu í Hnífsdal. „Það er mjög góður vinnustaður enda væri ég ekki þar ef svo væri ekki. Þar hef ég líka kynnst mörgum góðum mönnum. Ég hafði gaman af því að geta eignast að vinum menn eins og Einar Steindórs- son, Ingimar Finnbjörnsson, Jóakimana báða, Hjartarson og Pálsson, Halldór Pálsson, Konráð Jakobsson og fleiri sem ég hef unnið með lengi og haft náin samskipti við. Þetta voru sérstakir menn og óskaplega ólíkir. En allir voru þeir miklir Hnífsdælingar og gerðu allt sem þeir gátu til að gera veg Hnífsdals sem mest- an. Þetta voru jákvæðir menn og það hefur skilað sér. Konráð Jakobsson er merkilegur maður. Ég minnist þess vel þegar ég fór með hon- um og Daníel Sigmundssyni á Strandir á hvítasunnunni árið 1973. Við gengum alveg úr Hrafnsfjarðarbotni yfir í Furufjörð og síðan vestur í Látravík og lentum í mikilli þoku. Það var skemmtileg reynsla að fara með þessum höfðingjum þarna norður og sérkennilegt að þeir skyldu rata og geta sagt manni frá öllum þeim kennileitum sem sáust út úr þokunni. Ég held að fólk ætti að gera meira af því, ef það ætlar að slappa af, að fara eins og eina ferð norður á Strandir og læra að umgang- ast landið.“ Lærði rafvirkjun í Neista Sveinn hefur ekki unnið á mörgum vinnustöðum um dagana – „Ég var í átta ár í Neista hjá Júlíusi Helgasyni. Þar voru einstaklega færir menn og góðir félagar eins og Oddur Friðriksson og Óskar Eggertsson og fleiri mætti nefna.“ Á sínum tíma lærði Sveinn rafvirkjun í Neista. „Ég byrj- aði þar fimmtán ára gamall við reiðhjólaverkstæðið og var svo í búðinni. Þar var ég með Þorgeiri Hjörleifssyni en síðan fór ég að læra. Ég hætti í Neista sumarið 1962 og var eftir það í þrjú ár inn í rafstöð. Það var gott tímabil. Ég var svo sjálfur með verkstæði með Baldri Sæmundssyni í eitt ár áður en ég byrjaði á núverandi vinnustað.“ Sendill hjá Sigga bakara „Vinnustaðir mínir hafa nú ekki verið fleiri. Ég hef alltaf haft nóg að gera og hef heldur aldrei þurft að biðja um vinnu, sem betur fer. Reyndar þurfti ég að sækja formlega um hjá Rafveitunni en það voru sér- stakar ástæður fyrir því. Sem strákur var ég náttúrlega við löndun úr togurunum og svo vann ég eitt sumar sem sendill í bakaríinu hjá Sigga bakara. Þetta voru bara sumarstörf sem ekki koma málinu við. Sendilsstarfið var vegna fjöl- skyldutengsla en við vorum jafngamlir, elsti sonur Sigurð- ar bakara og ég. Við vorum leikbræður allir saman, Þórir kennari, Jón ráðherra og Guð- mundur læknir. Þetta voru geysilega skemmtilegir og flinkir strákar. Það var mikið af góðu fólki þarna niður frá. Nú er oft verið að tala um einelti í skólum. Ég kannast ekki við slíkt frá mínum upp- vexti. Það var hreinlega ekki til, svo að ég viti. Auðvitað hafa alltaf verið til misjafnlega fjörugir strákar og svo var einnig þegar ég var strákur. Ég átti mjög góða skólafé- laga.“ Ættir og afkomendur Móðir Sveins Guðbjarts- sonar er Sigríður Jónsdóttir, fædd á Höfðaströnd í Jökul- fjörðum. „Hún var þar aðeins í tíu daga en þá fór hún í fóstur til elsta bróður síns, Árna í Furufirði, og ólst þar upp. Innan við tvítugt flytur hún hingað á Ísafjörð. Faðir minn var fæddur í Efstadal inni í Djúpi. Hann missti föður sinn þegar hann var þriggja ára og fór þá á flakk með móður sinni um eins árs skeið. Hann var svo alinn upp á Flateyri hjá móð- urbróður sínum, Sveini Krist- jáni Sveinssyni, og var þar þangað til hann fermdist í Holti. Eftir það fór hann á sjó og kom ekki heim nema sem gestur.“ Sveinn Guðbjartsson á þrjá syni sem allir eru löngu upp- komnir og eiga heima í Reykjavík. „Þeir hafa komið sér ágætlega fyrir allir þrír og ég get ekki verið annað stoltur af þeim. Sá elsti var alinn upp að mestu leyti í Grindavík en kom mikið til okkar á sumrin og er sölustjóri hjá B&L. Sá næsti rekur fyrirtæki í Reykja- vík. Þeir selja fiskileitartæki og gengur mjög vel. Sá yngsti er að vinna við Sogið. Við María eigum núna sex barna- börn.“ Engar vélar en eintóm ævintýri Sveinn Guðbjartsson er fjarri því að vera að kvarta yfir lífinu og tilverunni og samferðamönnum á lífsleið- Það var mjög gott að alast upp á Eyrinni. Ég hygg að meðal krakkanna hafi þá verið meira um klíkur eftir bæjar- hlutum en núna. Þeir sem áttu heima fyrir neðan Silfurtorg fóru ekki mikið upp fyrir torg- ið nema þeir ættu sérstakt er- indi. Ég var svo heppinn, eins og ég hef alltaf verið, að kynn- ast þarna mörgu góðu fólki. Í kringum mig var margt af góðum unglingum að alast upp. Til dæmis bjuggu synir Sigurðar Guðmundssonar bakara í næsta húsi og svo komu auðvitað alltaf í Dokk- una synir þeirra manna sem þaðan voru að róa. Þarna myndaðist gott og skemmtilegt samfélag. Við þurftum ekkert að hafa há- skólamenntað fólk til að kenna okkur að leika okkur á þeim tíma. Við lærðum það í Dokkunni. Eyrin var alveg sérstök – og er það enn í dag. 29.PM5 19.4.2017, 09:376

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.