Bæjarins besta - 18.07.2001, Síða 12
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Mikil umferð
Ekið á
fellihýsi
aftan í bíl
Aðeins eitt umferðar-
óhapp sem heitið getur
varð í umdæmi lögregl-
unnar á Ísafirði um helgina,
þrátt fyrir geysimikla um-
ferð. Um kvöldmatarleytið
á sunnudagskvöld gær-
kvöldi var ekið aftan á felli-
hýsi sem bíll var með í
drætti rétt við Höfða við
norðanverðan Dýrafjörð.
Kona í fremri bílnum
kenndi eymsla í baki og
var flutt á sjúkrahús til
rannsóknar.
Bandarísku sendiherrahjónin skoðuðu sig um á Ísafirði
Heimsóttu fólk og fyrirtæki
í einstakri veðurblíðu
Sendiherra Bandaríkjanna
á Íslandi, Barbara J. Griffiths,
og eiginmaður hennar, David
Schoonover, voru í síðustu
viku á ferð um Vestfirði. Á
fimmtudag skoðuðu þau sig
um á Ísafirði. Óhætt er að
segja að veðrið hafi leikið við
gestina hér vestra.
Hádegisverð snæddu sendi-
herrahjónin ásamt fulltrúum
Ísafjarðarbæjar og Ólafi
Helga Kjartanssyni sýslu-
manni og Kristni H. Gunnars-
syni alþingismanni. Síðan var
farið á Sjóminjasafnið og Þró-
unarsetur Vestfjarða og Morr-
inn skemmti hópnum. Eftir
það var farið í fyrirtækin 3X-
Stál, Mjólkursamlagið og
Sindraberg. Um kvöldið
snæddu sendiherrahjónin á
Hótel Ísafirði með Micaelu
Kristin-Kali sem er frá Banda-
ríkjunum en búsett á Ísafirði.
Garðsláttur
Í Neðstakaupstað á Ísafirði: Heimir G. Hansson safnvörður, Ragnheiður Hákonardóttir
bæjarfulltrúi, sendiherrahjónin og Halldór Halldórsson bæjarstjóri.
Að sögn lögreglunnar á
Ísafirði þurfti lítil afskipti
að hafa af gestum á Sælu-
helgi á Suðureyri, en þar
var langmest um að vera í
Ísafjarðarbæ um helgina.
Önundur Jónsson yfirlög-
regluþjónn telur að heldur
meira hafi þó þurft að
stússast í kringum þessa
„þjóðhátíð Súgfirðinga“ en
í fyrra.
„Það voru engin stórmál
en afskipti okkar snertu
einstaka fólk sem kann sér
ekki hóf í áfengisneyslu.
Líka þurftum við að hafa
afskipti af nokkrum krökk-
um sem voru með áfengi.“
Um hálfsjöleytið á
sunnudagsmorguninn rak
lögreglan fjórtán manns
upp úr sundlauginni á
Suðureyri. Önundur segir
það afar slæma lensku hjá
fólki að þurfa að fara í
sundlaugar þegar það er
orðið drukkið og það gildi
víðar hér vestra en á Suður-
eyri.
Róleg sæluhelgi
Gleðifólki
þurfti þó að
smala upp
úr sund-
lauginni
Á fögrum sumardögum berst
þungur gnýr garðsláttuvélanna um
þorp og bæi og minnir á
maðkaflugnasuð í sólskini í bland við
fjarlægan dyn flugvéla. Sumir vökva
grasflatir svo betur spretti en aðrir
slá flatir og virðast þær athafnir
stangast á. En margir hafa þá
nokkuð að iðja.
Meðal sláttumanna í Bolungarvík er
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri en
garðurinn hans og Lillýjar konu
hans er einn af þeim gróðursælustu
og fallegustu þar í bæ. Svo mikil er
gróðursældin að garðurinn sést
eiginlega ekki fyrir trjám. En á milli
trjáa og runna í garðinum er gras
sem bæði þarf að vökva og slá.
Ólafur eltir sláttuvélina í
veðurblíðunni og vökvar um leið
svörðinn með nokkrum svitadropum
af enni sér.
Síðan réttir hann úr sér andartak og
bæði hann og sláttuvélin kasta
mæðinni áður en þau halda áfram.
29.PM5 19.4.2017, 09:3712