Bæjarins besta - 21.11.2001, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Vísnavinir á Vestfjörðum stofna Kvæðamannafélagið Kyrju
„Kát við ornum okkur hér“
K v æ ð a m a n n a f é l a g i ð
KYRJA var stofnað á fjöl-
mennri kvæða- og vísnasam-
komu í Edinborgarhúsinu á
Ísafirði á föstudagskvöld.
Rúmlega 50 manns sóttu
samkomuna og þar af skráðu
40 sig sem stofnfélaga. Bergur
Torfason frá Felli í Dýrafirði
var kosinn formaður en aðrir í
stjórn eru Ólína Þorvarðar-
dóttir skólameistari á Ísafirði,
Valdimar Gíslason á Mýrum í
Dýrafirði, Páll Gunnar Lofts-
son á Ísafirði og Kristín Auður
Elíasdóttir á Þingeyri. Kvæða-
menn af báðum kynjum kváðu
þulur, barnagælur og fjöl-
breytilegar stemmur og félag-
ar í Kvæðamannafélaginu Ið-
unni í Reykjavík tóku gesti í
kennslustund í kvæðalögum.
Að minnsta kosti tólf hagyrð-
ingar víðs vegar úr Ísafjarðar-
sýslum lögðu félaginu til vísur
og kveðlinga á þessum fyrsta
fundi og þykir það lofa góðu
um framhald félagsins.
Kvæðaskemmtunin var
haldin að frumkvæði Menn-
ingarmiðstöðvarinnar Edin-
borgar og áhugamanna í hér-
aðinu um kveðskap og vísna-
gerð. Finnur Magnússon setti
skemmtunina og Halla Sig-
urðardóttir sá um fundarstjórn
en Margrét Gunnarsdóttir var
ritari. Ólína Þorvarðardóttir
kynnti tillögu um stofnun
Kvæðamannafélagsins Kyrju
og sagði nokkuð frá störfum
hins 72ja ára kvæðamannafé-
lags í Reykjavík sem ber nafn
skáldskapargyðjunnar Iðunn-
ar. Var svo félagsstofnunin
samþykkt einum rómi.
Kát við ornum okkur hér,
aldrei þornar gaman.
Kvæðin fornu kyrjum vér
kvölds og morgna saman –
Fjölmenni var á stofnfundi Kvæðamannafélagsins Kyrju á föstudagskvöld.
orti Ólína Þorvarðardóttir um
tilefni kvöldsins. Ekki leið á
löngu áður en félaginu tóku
að berast kveðjur í bundu máli,
þar á meðal frá einum þekkt-
asta hagyrðingi fjórðungsins,
Elísi Kjaran:
Hér skal litla bögu byrja
bara stuðla nokkur orð,
félagsskapur kallast Kyrja
kvæðamanna hér á storð.
Tók þá við hin eiginlega
kvæðaskemmtun. Fyrst steig
fram Ása Ketilsdóttir hús-
freyja á Laugalandi í Naut-
eyrarhreppi hinum forna, en
hún er fædd og uppalin á Ytra-
Fjalli í Aðaldal í S-Þingeyjar-
sýslu. Flutti hún ýmsar þulur,
svo sem nafnaþulu, smala-
þulu, sem hún lærði sem barn
en einnig barnagælur eða
stökur, bæði gamla húsganga
og vísur úr hennar eigin fjöl-
skyldu. Ólína Þorvarðardóttir
spann áfram sama þráð og fór
með talnaþulu og fuglaþulu
úr sinni fjölskyldu og kvað
síðan eigin vísur og annarra
við nokkur vel valin kvæða-
lög. Var þá komið að þætti
Iðunnarfélaga. Mættir voru
kvæðamennirnir Steindór
Andersen formaður Iðunnar
og Sigurður Sigurðarson dýra-
læknir og forystusauður í
starfi Iðunnar, auk Magneu
Halldórsdóttur, margreyndar
kvæðakonu. Fluttu þau marg-
ar stemmur, bæði einsöngs-
og tvísöngslög, og kenndu sal-
argestum nokkrar stemmur að
auki. Skutu þeir félagar Stein-
dór og Sigurður inn ýmsum
athugasemdum og sögum
milli kvæðalaga, svo sem hæf-
ir sönnum kvæða- og sagna-
mönnum. Varð af þessu hin
mesta skemmtun.
Að lokum var vísnaafli
kvöldsins gerður upp og les-
inn. Var það mál manna að
vel hefði aflast þetta fyrsta
kvöld og ekkert brottkast
stundað þar. Lögðu að minn-
sta kosti 12 hagyrðingar
sporða í safnið og voru þar á
meðal þessar vísur:
Upp skal siði aldna vekja
yrkja bragi og kveða stöku,
gamla þulu og rímu rekja
rekka láta halda vöku.
(Bergur Torfason)
Blikar ljós á borðunum,
brennur ljóð á tungu.
Allir leita að orðunum
undir fargi þungu.
(Kristjana S. Vagnsdóttir)
Kvæðakonurnar Ólína Þor-
varðardóttir og Ása Ketils-
dóttir.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
Hafnarstræti 1 – Ísafirði
Símar: 456 3940 & 456 3244
Fax: 456 4547 – Netfang: tryggvi@snerpa.is
Fasteignaviðskipti
Fasteignir
í þessari
auglýsingu
eru aðeins
sýnishorn af
söluskránni.
Allar frekari
upplýsingar eru
veittar á
skrifstofunni að
Hafnarstræti 1
Einbýlishús / raðhús
2ja herb. íbúðir
Bakkavegur 39: 201 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum bílskúr. Áhv. ca. 3,8
m.kr. Verð 12,2 m.kr.
Hlíðarvegur 14: 170,8 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
risi. Húsið er mikið endurnýjað,
ekkert áhvílandi. Tilboð óskast
Hlíðarvegur 26: 259 m² einbýl-
ishús á tveimur hæðum, á neðri
hæð er 70 m² íbúð sem hægt er
að leigja út . Skipti á minni eign
möguleg. Tilboð óskast.
Hlíðarvegur 43: 185,9 m² rað-
hús á þremur hæðum. ásamt bíl-
skúr. Séríbúð á neðstu hæð. Hús-
ið málað að utan ´00 Skipti á
minni eign möguleg.
Verð 9.9 m.kr.
Hlíðarvegur 46: 186 m² enda-
raðhús á þremur hæðum. Fallegt
útsýni. Séríbúð á neðstu hæð.
Skipti á minni eign möguleg
Verð 8,9 m.kr.
Hnífsdalsvegur 10: 120,9 m²
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt grónum garði og eignarlóð
Tilboð óskast
Hrannargata 1: 238,9 m² ein-
býlishús á 2 hæðum ásamt kjall-
ara, háalofti og ræktuðum garði
Tilboð óskast
Hrannargata 8a: 78,1 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
eignarlóð. Húsið er uppgert að
hluta. Verð 4,6 m.kr.
Lyngholt 4: 175,5 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt 36 m²
bílskúr Verð 11,5 m.kr.
Lyngholt 10: 151,3 m² einbýlis-
hús á einni hæð ásamt 55,2 m²
bílskúr Verð 12,9 m.kr.
Mánagata 9: 191,7 m² einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt bíl-
skúr, kjallara og garði. Húsið
er allt að mestu endurnýjað.
Tilboð óskast
Seljalandsvegur 72: 112 m² ein-
býlishús á tveimur hæðum, góður
sólpallur. Verð 8,2 m.kr.
Smiðjugata 11a: 150 m² einbýl-
ishús á tveimur hæðum ásamt
kjallara, risi og bílgeymslu. Hús-
ið allt nýmálað að utan. Skoð-
um öll tilboð. Verð 6,1 m.kr.
Sunnuholt 6: 231 m² glæsilegt
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr. Hægt að hafa 80
m² séríbúð á neðri hæð. Skipti á
minni eign á Eyrinni koma til
greina Verð 15,5 m.kr.
Urðarvegur 27: 190,5 m² ein-
býlishús á 2 hæðum ásamt bíl-
skúr, góðum garði, svölum og
sólpalli. Skipti á minni eign
möguleg. Verð 13,5 m.kr.
4-6 herb. íbúðir
Engjavegur 25: 86,1 m² 3-4ra
herbergja íbúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi. Verð 6 m.kr.
Hafnarstræti 4: 176 m² 4ra herb.
íbúð á 3ju hæð ásamt rislofti og
geymslu í kjallara og 116,8 m²
3ja-4ra herb. íbúð á 2. hæð. Selj-
ast sér eða saman.
Tilboð óskast
Hjallavegur 8: 128,5 m² 4ra
herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýlis-
húsi. Laus fljótlega. Áhv. hag-
stæð lán ca. 2.8 m.kr.
Verð 6,9 m.kr.
Smiðjugata 7: 96,1 m² 4ra
herbergja íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Tilboð óskast
Stórholt 11: 122,9 m² 4ra herb.
íbúð á 3ju hæð til vinstri í
fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu
og bílskúr. Tilboð óskast
Sundstræti 30: 131,9 m² 5 her-
bergja íbúð á miðhæð í þríbýlis-
húsi ásamt bílskúr. Tilboð óskast
Hlíf II: 65,7 m² íbúð á 4ju hæð í
Dvalarheimili aldraðra. Áhv. ca.
5,2 m.kr. Verð 7,3 m.kr.
Pólgata 6: 55 m² risibúð á 3ju
hæð í fjölb.húsi. Verð 3,9 m.kr.
Silfurgata 11: 56,2 m² (75m²
gólfflötur, mikið rými í risi) Björt
og glæsileg íbúð með frábæru
útsýni. Ótrúlega hagstæð í rekstri.
Áhv. ca. 3,4 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á 3.
hæð fyrir miðju ásamt sér
geymslu. Verð 4,5 m.kr.
Sundstræti 34: 93 m² ný íbúð á
2. hæð í nýju fjölbýlishúsi ásamt
31 fm. bílgemslu. Verð 9,1 m.kr.
3ja herb. íbúðir
Aðalstræti 24: 74,6 m² íbúð 2.
hæð. Íbúðin er öll ný og vel
einangruð. Tilboð óskast
Aðalstræti 24: 62 m² íbúð á 2.
hæð. Íbúðin er öll ný og vel
einangruð. Tilboð óskast
Brunngata 12a: 57,4 m² íbúð í
mjög góðu standi á n.h. í tvíbýlis-
húsi ásamt sér geymslu og þvotta-
húsi í kjallara og eignarlóð.
Tilboð óskast
Hlíðarvegur 27: 49,9 m² íbúð á
neðri hæð í tvíbýlishúsi. Áhv. ca.
555 þús.kr. Tilboð óskast
Hlíf II, Torfnesi: 50,4 m² íbúð á
3. hæð í Dvalarhreimili aldraðra.
Áhv. .ca. 3,7 m.kr. Laus strax
Verð 6,3 m.kr.
Seljalandsvegur 58: 52,1 m²
íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi ásamt
helmingi tvöfalds bílskúrs. Áhv.
ca. 600 þ.kr. Tilboð óskast
Sundstræti 22: 68 m² 2ja-3ja
herb. íbúð á jarðhæð í fjórbýlis-
húsi. Verð 4 m.kr.
Túngata 3: 80,7 m² íbúð á 2.
hæð ásamt rislofti.Verð 4,5 m.kr.
Túngata 12: 62 m² íbúð í kjallara
í þríbýlishúsi Verð 3,9 m.kr.
Túngata 20: 54 m² íbúð á 1. hæð
fyrir miðju í nýlega uppgerðu
fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu.
Verð 4,9 m.kr.
Urðarvegur 78: 73 m² íbúð á
3ju hæð f.m. í fjölbýlishúsi ásamt
sér geymslu. Áhv. ca. 2,7 m.kr.
Verð 5 m.kr.
Verslunarhúsnæði
Hrannargata 2: 164,1 m² versl-
unarhúsnæði á 1. hæð og kjallara.
Húsnæðið er tilvalið fyrir rekstur
verslunar og/eða videoleigu.
Verslunarinnréttingar geta fylgt
með. Verð 6,3 m.kr.
Flateyri
Hjallavegur 5: 83,4 m² 3ja
herbergja íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Tilboð óskast
47.PM5 19.4.2017, 09:484