Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.11.2001, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 21.11.2001, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 sem hafa verið að líta á svæð- isskipulagið, að á 24 ára tíma- bili, ef ég man rétt, á að fjölga á höfuðborgarsvæðinu um 60 þúsund íbúa. Helmingurinn eða 30 þúsund eiga að koma með do-do aðgerðum, eins og ég kalla það í gamni, og hátt í 30 þúsund af landsbyggðinni og frá útlöndum. Áætlað er að vinna að uppbyggingu mannvirkja, bæði í sam- göngumálum og þjónustu- byggingum, fyrir eina níutíu og fimm milljarða, þannig að við sjáum það strax að þessi sýn hlýtur að hafa mótandi áhrif á hvar fólk velur sér búsetu. Ég er einn af þeim sem telja að við eigum að ganga til svæðisskipulags fyrir lands- fjórðungana, eða að minnsta kosti byggðaáætlunar. Það á að vera til mótvægis við það sem er að gerast á höfuðborg- arsvæðinu. Ekki endilega að við séum að fara í beina sam- keppni við höfuðborgarsvæð- ið hvað þetta varðar. Frekar er æskilegt að byggja á samstarfi milli landsbyggðar og höfuð- borgarsvæðisins þannig að fjárfestingar sem til eru nýtist og ekki þurfi að fara í aðrar ónauðsynlegar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Í dag er það hlutverk sveitarfélag- anna að vinna að svæðisskipu- lagi.Þetta er mikil vinna og kostnaðarsöm, sem kostar milljónatugi þannig að ég hika ekkert við að halda því fram að það þurfi að ræða þessa verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga um gerð svæðisskipulags. Byggða- stofnun þarf einnig að koma sterklega að gerð svæðis- skipulags eða byggðaáætl- unar. Vera má að orðið svæðis- skipulag sé of mikið í munni, en beinar aðgerðir þurfa hér að koma til. Ungt fólk í dag, sem hefur góða menntun og góða yfirsýn, hlýtur að hugsa sig afskaplega vel um þegar það velur sér búsetu, fjöl- skyldu sinni atvinnuöryggi og börnunum menntun og svo framvegis. Ég tel að okkar svar við þessu hljóti að vera það að vinna róttæka byggða- áætlun. Ef stjórnvöld vilja hafna þessari neikvæðu íbúa- þróun þarf til að koma sam- eiginlegt átak sveitarfélag- anna og ríkisvaldsins og ekki síður verkalýðsfélaga og at- vinnurekanda til varnar bygg- ðum landsins. Við verðum hreinlega að snúa saman bök- um og nýta öll þau mannvirki einstaklinga, fyrirtækja og stofnana sem eru þegar til staðar á landsbyggðinni. Ég vona að það fari áfram um- ræða um þessa mikilvægu að- gerð. Við urðum hér fyrir afskap- lega miklu sjokki, ef má nota það orð, þegar við sáum að það hafði fækkað hér um 49 íbúa fyrstu níu mánuði ársins, sem er tæplega 5 prósent af íbúatölu. Þetta er auðvitað skelfileg sýn. Þetta verður að stöðva og ná einhverjum sóknartækifærum en það held ég að gerist ekki alveg í einni svipan. Og þá er komið að því sem við vorum að ræða hér í upphafi, að þessi mikla óvissa í atvinnumálum er alveg með öllu óviðunandi. Bæði lítil og stór sjávarútvegsfyrirtæki geta ekki gert nein framtíðar- plön því óvissan er svo mikil í fiskveiðimálum og breyting- ar frá ári til árs. Þetta er staða sem er með öllu óþolandi og óverjandi.“ Hvað er til ráða? – Óþolandi, segirðu, en hvað er til ráða hér í Bolung- arvík? „Við verðum að muna, að hér í Bolungarvík erum við með afskaplega gott þjónustu- stig. Við erum með góðan skóla, traustan grunnskóla, tónlistarskóla, leikskóla og heilsdagsskóla. Heilbrigðis- þjónustan er hér sérlega góð og eitt verkefni, Heilsubæjar- verkefnið, sem hefur staðið hér yfir á þriðja ár, hefur vakið mikla athygli, ekki bara hér í Bolungarvík heldur og út fyrir landsteinana. Ég hygg að þetta verkefni eigi eftir að vera til fyrirmyndar fyrir heilbrigðis- þjónustuna í landinu. Hér eru menn hvattir til þess að breyta lífsvenjum og stunda heilbrigt líferni, útivist og hollustu í hvívetna. Ég tel því að þjón- ustustig, fræðsla og menning séu með þeim hætti að menn þurfi ekki að flýja bæinn vegna lélegerar þjónustu, lé- legs félagslífs eða fárra menn- ingarviðburða. Við komum þá aftur að óvissunni í atvinnumálum sem er auðvitað alveg óþol- andi. Fiskvinnslustörfin eru láglaunastörf. Þau laun verður að bæta með einhverjum hætti. Ég hef stundum velt því fyrir mér og hef vakið athygli á því áður, að mæta vandanum með mismunandi skattheimtu bæði á fyrirtæki og einstaklinga á landsbyggð- inni. Ég veit um mikla ann- marka á þessari breytingu, meðal annars vegna þess að fólk sækir atvinnu út fyrir sitt lögheimili og svo framvegis, en eitthvað verður að taka til ráða. En við hljótum að sækja fram ef vel á að fara. Við verð- um auðvitað að halda í það sem hér er og láta það vaxa. Við verðum að sækja á um meiri afla til Vestfjarða og ekki síður að hann sé unninn hér í heimabyggð. Og þá vil ég koma að því, að það er ekki nóg að horfa eingöngu á sjáv- arútveg og fiskiðnað. Við þurf- um að efla landbúnað á Vest- fjörðum. Þá ber okkur að horfa til þess að gefa fólki tækifæri á að breyta um atvinnu og efla menntun sína. Hér á ég ekki aðeins við ungt fólk, heldur líka eldra fólk, mið- aldra fólk, sem þarf að breyta um störf. Ég er alveg sann- færður um að það er afskap- lega þarft og gott starf sem verið er að vinna á Ísafirði undir handleiðslu Smára Har- aldssonar í Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samvinnu við Há- skólann á Akureyri, þar sem fólki er gefinn kostur á að afla sér aukinnar menntunar með fjarnámi.“ Fjárhagur bæjarfélagsins – Hvað er að segja um fjár- hag sveitarfélagsins í ljósi fólksfækkunarinnar? „Það er alveg ljóst að við fækkun íbúa lækka tekjur bæj- arsjóðs allverulega. Þessi nei- kvæða íbúaþróun sem hefur verið hér í Bolungarvík eins og mjög víða á landinu er al- veg skelfileg. Árið 1982 voru hér 1297 íbúar í Bolungarvík. Nú erum við miðað við þessar nýju fréttir 949 manns, þannig að á tæplega 20 árum hefur fækkað hér um nokkuð á fjórða hundrað íbúa. Því færri sem að íbúarnir eru, því dýrara verður að halda uppi þjónustu á hvern íbúa og því má segja að skuldirnar hækka í hlutfalli á íbúa. Við höfum verið ásakaðir þó nokkuð fyrir það að hafa rokið í að byggja hér félags- legar íbúðir langt umfram þörf. Þetta er rangt. Þetta er rangt vegna þess að þegar hér var gert átak í því að byggja félagslegar íbúðir var staðan sú í Bolungarvík, að ungt fólk var á biðlista eftir húsnæði. Það vantaði íbúðir fyrir kenn- ara og heilsugæslufólk, hús- næði vantaði fyrir starfsfólk atvinnufyrirtækja. Það sjá það allir í hendi sér, að atvinnu- fyrirtæki í Bolungarvík, sem tóku þátt í að byggja og kaupa íbúðir fyrir starfsfólk sitt, hefðu aldrei farið að gera það ef að hér hefðu verið nægar íbúðir. Við vorum því alveg tilneyddir að byggja til að halda fólki hér í byggð. Enda varð á þessu tímabili íbúa- aukning hjá okkur sem ekki hefði orðið án íbúðaaukning- ar. En síðan kemur þetta áfall í kjölfar gjaldþrots EG-fyrir- tækjanna, að íbúum fer að fækka. Þeir fara fyrstir sem geta komið niður á bæjarskrif- stofu og sagt takk fyrir, nú erum við farnir, við viljum fá okkar peninga og þið gerið svo vel að taka við íbúðunum. Þetta er stóra vandamálið sem við höfum verið að glíma við. Bolungarvík var fyrsta sveit- arfélagið sem áttaði sig á þessu. Við áttum fund með Húsnæðisstofnun ríkisins fyr- ir fimm eða sex árum. Þá ósk- aði ég eftir því að litið yrði á þennan vanda á vitrænan hátt. Við fengum Harald Líndal Haraldsson hagfræðing í lið með okkur og gerðum fyrstu skýrslu á Íslandi um vanda og stöðu félagslega íbúðakerfis- ins. Ég var þá í stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og kynnti þessa skýrslu fyrir stjórn sambandsins sem varð til þess að áhugi vaknaði fyrir því að vinna skýrsla fyrir allt landið. Nú hafa verið gerðar einar fimm skýrslur um stöð- una, vandamálið er þekkt og stjórnvöld þurfa aðeins að bretta upp ermarnar, taka ákvörðun og leysa vandamál- ið á landsvísu eins og krafa okkar Vestfirðinga hefur ávallt verið.“ Peningarnir fyrir Orkubúið – Nú er búið að selja hlut Bolungarvíkur í Orkubúi Vest- fjarða fyrir dágóða upphæð. Hvað á að gera við þessa pen- inga? „Það er rétt, ég skrifaði und- ir samning fyrir hönd bæjar- stjórnar núna 1. nóvember. Okkar hlutur er 338 milljónir og 560 þúsund svo það sé nákvæmt. Og þá er auðvitað eðlilegt að menn spyrji hvern- ig eigi að verja þessum pen- ingum. Frá því að þessi hug- mynd kom upp, að selja Orku- bú Vestfjarða, höfum við ávallt sett það fram að ekki verði blandað saman vanda félags- lega íbúðakerfisins og sölu Orkubúsins vegna fjárhags- vanda sveitarfélaganna. Sam- komulag tókst um að þetta verði leyst á landsvísu. Við áttum samkvæmt kröfu Eftir- litsnefndar með fjárhag sveit- arfélaga að greiða niður skuld- ir um 134 milljónir. Þegar við hér heima fórum yfir okkar stöðu töldum við skynsamlegt að greiða heldur meira niður af skuldum bæjarsjóðs, eða um 150 milljónir, og um það er orðið fullt samkomulag. Við erum búnir að setja fram nákvæma skrá yfir þær skuldir sem við ætlum að greiða niður. Þá greiðum við til Íbúðalánarsjóðs 12 millj- ónir sem voru álitin vera van- skil hjá Bolungarvíkurkaup- stað. Ég vil ekki kalla þetta vanskil heldur ágreining um sölusamning tveggja íbúða sem Húsnæðisstofnun ríkis- ins hafði gengið frá sölu á og verið er að deila um vaxta- meðferð á. Þetta er mál sem bæjarsjóður og Íbúðalána- sjóður eru að gera upp sín á milli og ég á von á því að þessi tala lækki eitthvað. Þá var ákveðið að leggja inn á sérstakan biðreikning tæplega 62 milljónir sem við mundum njóta vaxta af. Verði ekki búið að leysa vanda félagslega íbúðakerfisins á landsvísu fyr- ir árslok 2002, þá getum við óskað eftir umræðu um breyt- ingu á þessu samkomulagi, þannig að þessir peningar verða þá til ráðstöfunar fyrir sveitarfélagið vegna félags- legra íbúða í sveitarfélaginu. – En þá verða töluverðir peningar eftir... Já, við munum að sjálf- sögðu reyna að fá sem mesta ávöxtun á þeim fjármunum því ekki er viturlegt að greiða niður öll lán hjá bæjarsjóði vegna þess að við höfum náð hagstæðu vaxtastigi hjá lána- stofnunum. Þau lán greiðum við síðan niður samkvæmt ákvæðum viðkomandi skuldabréfa. Þessi sala eign- arhluta bæjarsjóðs í Orkubúi Vestfjarða bætir gífurlega mikið stöðu okkar. Hluta þess fjár sem við höfum verið að greiða í vexti getum við nú nýtt til fjárfestinga þannig að aðkoma næstu bæjarstjórnar verður afskaplega góð. Með þessari aðgerð erum við næst- um því að gera bæjarsjóð svo að segja skuldlausan. Hér er ég að tala um bæjarsjóð en ekki samstæðureikning.“ – Er salan á eignarhlutnum í Orkubúi Vestfjarða ekki svolítið viðkvæmt mál? „Jú, jú, það er alveg hárrétt. Miklar breytingar eru fram- undan á orkulögum og um- svifum orkugeirans í landinu. Því var alveg orðin fyllsta ástæða til þess að breyta Orku- búi Vestfjarða í hlutafélag. Ég er nú einn af þeim sem hafa alltaf haldið því fram, að það séu misvitur stjórnvöld sem nýta sér ekki þá reynslu og þekkingu sem hefur skapast hér á Vestfjörðum. Orkubúi Vestfjarða hefur tekist afskap- lega vel að byggja upp góða þjónustu og raforkuöryggi. Starfsmennirnir þekkja veik- leika og styrkleika raforku- kerfa, vita og þekkja vel til virkjanakosta og þar fram eftir götunum. Ég tel að ríkisvald- ið, ef að það vill standa að því að styrkja byggð á Vestfjörð- um, eigi að stuðla að sóknar- tækifærum á Vestfjörðum með því nýta starfsmenn Orkubús- ins og þeirra þekkingu með því að efla alla starfsemina hér. Það á að útvíkka þjónust- una og er ekki fráleitt að hugsa sér að Orkubú Vestfjarða þjóni hinu nýja Norðvesturkjör- dæmi og ef til vill stærra svæði. Þetta er sú sýn sem ég hef. Þeir sem að voru á móti sölu Orkubúsins verða að sætta sig við að sala hefur farið fram. Við eigum öll að vera sam- herjar í því að herja á ríkis- valdið um aukin umsvif. Ég hef verið spurður að því hvers vegna ég hafi tekið þátt sölu Orkubúsins þar sem ég var nú einn af stofnendum þess. Svar 47.PM5 19.4.2017, 09:4810

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.