Bæjarins besta - 21.11.2001, Side 16
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Sífelldir erfiðleikar með veg og lagnir undir Spilli í Súgandafirði
Vatnsbóla fyrir Súgfirð-
inga leitað á öðrum stað?
Í óveðrinu sem gekk yfir
landið um fyrri helgi urðu
verulegar skemmdir á vegin-
um undir Spillinum í Súg-
andafirði. Hreinsaðist hann á
kafla í burtu í briminu og losn-
aði þá jafnframt um vatns-
leiðslu sem þarna liggur. Lá
hún ber á kafla og þótti með
ólíkindum að hún skyldi ekki
fara í sundur þar sem hún
lamdist í grjótið í fjörunni.
Er nú búið að leggja hana
ofar í veginn en að sögn Sig-
urðar Mar Óskarssonar hjá
Tæknideild Ísafjarðarbæjar
eru menn í sífelldri hættu með
vatnslögnina þar sem hún
liggur fyrir fjallið. Hann telur
að svo verði áfram nema veg-
urinn verði grjótvarinn og
gerður öruggur. Yrði þá hægt
að leggja þar nýja lögn á
öruggum stað en slíkar fram-
kvæmdir væru hins vegar
verulega kostnaðarsamar.
Væri jafnvel hagkvæmara að
kanna fyrst hvort ekki væri
hægt að finna vatn innar í firð-
inum áður en farið yrði út í að
leggja nýja lögn.
Vatnstökusvæðið er í Sund-
dal fyrir ofan Stað og munu
vera um þrjátíu ár síðan vatns-
lögn var lögð þaðan og inn á
Suðureyri. Sigurður segir að
fyrir um þremur árum síðan
hafi verið farið í það að virkja
fleiri lindir þarna uppfrá og
endurbæta inntökin. Leiðslan
liggur niður hjá Stað, fyrir
Spillinn og inn á Suðureyri
og hefur veikasti punkurinn
ávallt verið kaflinn fyrir fjall-
ið. Segir Sigurður að Síminn
hafi gefist upp á að hafa línu
þarna í veginum og er nú að-
eins farsímasambandi út í
Staðardal.
Þar sem þarna er um þjóð-
veg að ræða heyrir hann undir
Vegagerðina og allar fram-
kvæmdir við hann kostaðar
af ríkinu. Kristján Kristjáns-
son, verkfræðingur hjá Vega-
gerðinni á Ísafirði, segist ekki
vita til þess að fyrirhugaðar
séu varanlegar endurbætur á
veginum út í Staðardal né
heldur að hann verði varinn
sérstaklega. Segir hann slíkar
framkvæmdir myndu kosta
tugi milljóna og vera svipaðar
að umfangi og við Ólafsvíkur-
enni á Snæfellsnesi. Ef hins
vegar fjármagn fengist til að
verja veginn, þá væri eflaust
ekki neitt því til fyrirstöðu að
slíkt yrði gert.
Vegurinn undir Spilli eftir óveðrið um daginn.
Héraðsdómur
Ók ölvaður og
velti bifreið
Héraðsdómur Vestfjarða
dæmdi á föstudag, 24 ára
gamlan Flateyring í 30
daga skilorðsbundið fang-
elsi og 60 þúsund króna
sekt fyrir nytjastuld og um-
ferðarlagabrot, með því að
hafa sunnudaginn 10. júní
sl., notað bifreið í heimild-
arleysi og ekið henni undir
áhrifum áfengis um götur
á Flateyri með þeim afleið-
ingum að henni velti bif-
reiðinni og skemmdi hana.
Auk sektarinnar var ákærði
sviptur ökurétti í tólf mán-
uði frá birtingu dómsins.
Ákærði játaði sök fyrir
dómi. Alkóhólmagn í blóð-
sýni sem tekið var úr
ákærða eftir aksturinn
reyndist 1,5 prómill sam-
kvæmt meðaltali tveggja
mælinga, 1,35 að reiknuðu
fráviki. Dóminn kvað upp
Erlingur Sigtrygsson dóm-
stjóri.
Héraðsdómur
Braut gegn
valdstjórninni
Héraðsdómur Vestfjarða
dæmdi á föstudag, 21 árs
Súgfirðing í 45 daga skil-
orðsbundið fangelsi fyrir
brot gegn valdstjórninni,
með því að hafa að morgni
sunnudagsins 9. september
sl., í anddyri lögreglu-
stöðvarinnar á Ísafirði,
slegið lögreglumann þar
sem hann var að gegna
skyldustörfum sínum, með
krepptum hnefa í andlitið
með þeim afleiðingum að
lögreglumaðurinn hlaut
mar og bólgu neðan við
vinstra auga og á vinstra
kinnbeini.
Þá var ákærði dæmdur
til að greiða lögreglumann-
inum 30 þúsund krónur í
bætur með vöxtum frá 9.
september til 8. október
auk þess sem hann var
dæmdur til að greiða allan
sakarkostnað.
Í dómsniðurstöðu segir
að það beri að tiltaka refs-
ingu ákærða nú sem hegn-
ingarauka við eldri dóma.
Árlegur laufabrauðsdagur Styrktarsjóðs Tónlistarskóla Ísafjarðar
Hinn árlegi laufabrauðs-
dagur Styrktarsjóðs Tónlistar-
skóla Ísafjarðar var á laugar-
dag. Þá mættu allir sem hnífi
gátu valdið í sal mötuneytisins
í Menntaskólanum á Ísafirði
og skáru út laufabrauð. Að
venju hófst undirbúningur
kvöldið áður heima hjá Elísa-
betu Agnarsdóttur þar sem
nokkrar valinkunnar konur
mættu til að útbúa deigið.
Þarna fer allt fram eftir föstum
hefðum og hafa sömu konur-
nar séð um þennan þátt í ára-
raðir.
Eftir að deigið hafði verið
kælt um nóttina var það flatt
út niðri í Gamla bakaríi í býtið
á laugardagsmorguninn og
þegar fyrstu kökurnar voru til-
búnar til útskurðar var haldið
með þær upp í sal mötuneyt-
isins. Þar var byrjað að skera
út um kl. 10 og haldið áfram
fram eftir degi en yfirleitt eru
gerðar um þúsund laufa-
brauðskökur og hver og ein
skorin út eftir kúnstarinnar
reglum af bæði börnum og
fullorðnum.
Loks voru kökurnar steiktar
í feiti, þurrkaðar og þeim
pakkað í öskjur sem síðan
verða boðnar til sölu á torg-
sölu Styrktarsjóðs Tónlistar-
skóla Ísafjarðar 8. desember.
Þar hefur vinsælasti söluvarn-
ingurinn jafnan verið laufa-
brauðið góða sem þykir alveg
sérstakt og oftast hafa færri
fengið en vilja.
Börn og fullorðnir skáru út laufa-
brauð eftir kúnstarinnar reglum
Elísabet Agnarsdóttir og Halldóra Magnúsdóttir steikja laufabrauð.
47.PM5 19.4.2017, 09:4816