Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.11.2001, Page 9

Bæjarins besta - 21.11.2001, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 9 ngarvík þessa umræðu sem fram hefur farið um stöðu smábátanna. Auðvitað má deila um þá hluti en bæjarstjórnin hér hefur staðið afskaplega vel með smábátaeigendum og reynt að hafa áhrif á stjórnvöld til að treysta rekstrargrundvöll smá- bátaútgerða. Við höfum reyndar verið ásakaður fyrir það af stærri útgerðaraðilum að horfa ekki einnig til þeirra hagsmuna. Mitt svar er ein- faldlega það, að meiri hags- munir verði að víkja fyrir minni. Þrátt fyrir það megum við ekki gleyma hlutverki og þýð- ingu þeirra stærri skipa sem hér eru og hafa skapað mikla, góða og örugga atvinnu. Sem betur fer hafa minni fiskvinn- slufyrirtæki starfað hér og dafnað. Eflaust hefur aðhalds- og útsjónarsemi stjórnenda þeirra fyrirtækja ráðið úrslit- um um afkomumöguleika þeirra. En ef við snúum okkur aftur að stöðu og deilum í sjávarút- vegi vil ég lýsa þeirri skoðun minni, að ef sjómenn og út- gerðarmenn ná ekki sátt og ef ekki næst sátt á milli lands- hluta og milli stjórnmála- flokka, þá verður þetta eins og trúarbragðadeila og leysist aldrei. Það eru mikil vonbrigði að bræður skuli þurfa að berj- ast eins og við höfum séð og verið áheyrendur að í mörg ár. Stríð gengur ekki í þessum málaflokki fremur en öðrum. Það sem mér hefur alltaf fund- ist eitra fyrir þessari umræðu er framsal og sala á kvóta. Það er alveg ljóst að fjölmargir hafa fengið þar óeðlilega mik- ið fjármagn sem spillir fyrir því að þeir sem eru starfandi í greininni fái sanngjarna um- ræðu.“ Atvinnuleysi – En hvað sem öllu líður, þá var hér mjög slæmt ástand um tíma. „Já, þegar NASCO fór á höfuðið, þá varð hér alvarlegt atvinnuleysi. Á annað hundr- að manns misstu atvinnu sína. Það er auðvitað alveg ljóst, og menn þekkja það hér af reynslunni, að þegar stórt fyrirtæki eins og NASCO fer á höfuðið, þá tekur það ákveð- inn tíma að koma nýju fyrir- tæki af stað. Menn þurfa að skoða rekstrargrundvöllinn, kanna með hvaða hætti hægt er að fjármagna kaup o.s.frv. Viðræður stóðu þó nokkuð lengi yfir milli núverandi eig- enda Bakkavíkur og Byggða- stofnunar um með hvaða hætti Bakkavík, sem nú er hér starf- andi, gæti orðið eigandi að þrotabúi NASCO. Bæjarstjórn Bolungarvíkur og Verkalýðs- og sjómanna- félag Bolungarvíkur sendu Byggðastofnun bréf þar sem við lýstum því hversu þýð- ingarmikið það væri fyrir at- vinnulíf og búsetu í Bolung- arvík að skjótt yrði brugðið við. Fólk væri farið að leita atvinnu utan byggðarlagsins og mikil hætta á að það kæmi ekki aftur heim til starfa. En við vitum að auður hvers fyrir- tækis er m.a. fagþekking starfsfólksins, reynsla þess og kraftur og því mikils um vert að reynsluríkum starfsmönn- um verði tryggð áframhald- andi störf í byggðarlaginu. Sem betur fór tókust samn- ingar svo sem kunnugt er. Bæjarsjóður og Verkalýðsfé- lagið lögðu fram fimmtán milljónir sem hlutafé og hugsa ég að það hafi haft áhrif á viðræður og samningagerð. Auðvitað voru allir Bolvík- ingar afskaplega svekktir yfir þessu enn eina áfallinu og reyndar var ég hissa á þolin- mæði þeirra sem verst fóru út úr atvinnuleysinu. Við fengum þó ágætan stuðning, ég verð að hæla Páli Péturssyni félags- málaráðherra fyrir það að fylgjast vel með stöðunni í Bolungarvík. Hann vissi af þessum erfiðleikum, kom hérna þrisvar sinnum til Bol- ungarvíkur í kjölfar gjaldþrots NASCO og átti viðræður við forsvarsmenn bæjarfélagsins og félagsmenn Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvík- ur. Farið var í sérstakt at- vinnuátak. Hópur fólks fór að vinna við að smíða leikföng, borð og stóla og fleira og fleira og það tókst alveg ljómandi vel. Þetta var vandaður hópur, fólkið verklagið og skilaði góðu verki. Þá fór nokkur hópur til „náms“ í kvenna- smiðju á Ísafirði en sú starf- semi náði yfir víðara svið en Bolungarvík. Ég held að Svæðisskrifstofan, Vinnu- miðlunin á Ísafirði og Guðrún Stella eigi þar mikinn heiður skilinn hvernig að á þessu var tekið. Hreint vatn er undirstaðan – Spyrja má varðandi þessa aðkomu bæjaryfirvalda og Verkalýðsfélagsins, sem var fólgin í samtals fimmtán millj- ón króna hlutafjárkaupum: Var það raunverulega nægileg upphæð? „Nei, það er alveg rétt. Til að halda stóru fyrirtæki gang- andi er það ekki nægileg upp- hæð, en það sýnir þó þann hug sem að baki býr. Það á öllum að vera ljóst að það er mjög óæskilegt að sveitarfé- lög og verkalýðsfélög séu að standa í atvinnurekstri. En nauðsyn brýtur lög og aðkoma okkar var óhjákvæmileg. Skyldur sveitarfélagsins eru fyrst og fremst að stuðla að góðu þjónustustigi á öllum sviðum, auka menntun og menningu og sjá til þess að skipulagsmál séu sem best. Lóðir þurfa að vera til staðar og hafnaraðstaða svo sem út- gerð krefst hverju sinni. Sam- göngur þurfa að vera góðar árið um kring. Þá þurfa vatns- mál að vera í góði lagi og vatnið bæði nógu mikið og gott. Án þessa mun fólk hrein- lega ekki búa í sveitarfélaginu. Fyrst ég er að tala um þessi mál, þá er alveg óhjákvæmi- legt að koma að þeirri stað- reynd, að rækjuiðnaðurinn er vatnsfrekasti fiskiðnaður sem til er. Við höfum alltaf búið við erfiðleika við öflun vatns hér í Bolungarvík. Staðan hef- ur verið mjög slæm síðustu árin og kannski reyndar aldrei nægilega góð, þannig að við urðum að leita að nýjum leið- um til að auka vatnsflutning bæði til einstaklinga og fyrir- tækja. Það fór fram afskaplega vandaður undirbúningur að ákvarðanatöku. Fyrirtækið Línuhönnun annaðist verk- stjórn og þar var okkar ráðgjafi Hafsteinn Helgason verk- fræðingur. Við áttum mjög góðar viðræður og fundi með forsvarsmönnum bæði NASCO, Bakka og Bakka- víkur um lausnir því að við þurftum að sjálfsögðu að vita um þeirra framtíðaráform, vatnsnotkun og svo framveg- is. Einnig var leitað til Orku- stofnunar um ráðgjöf og möguleika á að bora eftir vatni. Farið var í rennslismæl- ingar í Tunguá og Hlíðardalsá til að kanna möguleika á virkj- un til vatnsöflunar. Niðurstað- an varð sú að við yrðum að ráðast í byggingu nýrrar vatns- veitu. Byggð var lítil stífla við Hólsá og keypt hreinsistöð frá Þýskalandi sem mun vera með fullkomnari hreinsi- stöðvum í heiminum. Þetta er búið að kosta sveit- arfélagið yfir fimmtíu millj- ónir sem er auðvitað gífurlega stór biti fyrir ekki stærra byggðarlag en okkar er. En rækjuverksmiðja og fisk- vinnslustöðvar án vatns ganga ekki. Vatnið er auðvitað grunnurinn að því að mannlíf geti þrifist. Ekki hefur verið neinn ágreiningur um þetta, hvorki innan bæjarstjórnar né á meðal bæjarbúa. Öllum var það ljóst að grípa varð til að- gerða. Það hafa komið fram byrjunarörðugleikar við notk- un þessarar nýju vatnsveitu. Nú er verið að ráðast á þessa barnasjúkdóma þannig að ég hef trú á því og vona, að innan fárra daga verði vatnsmálin komin í eins gott lag og hægt er.“ Skipulagsmálin – Náttúruöflin settu strik í reikninginn í skipulagsmálum í Bolungarvík... „Já. Við höfum verið að vinna að nýju aðalskipulagi fyrir Bolungarvík. Því miður urðum við að stöðva þá vinnu árið 1997. Þá verða Bolvík- ingar fyrir afskaplega miklu áfalli þegar snjóflóð fellur á þrjú hús í Dísarlandi þann 23. febrúar 1997. Umræðan um snjóflóðamál í Bolungarvík var fram að þeim tíma ein- göngu bundin Óshlíð og harmsögunni frá Skálavík sem Bolvíkingar þekkja af- skaplega vel. Það varð strax ljóst, að miðað við gildandi lög og reglugerðir bar okkur að ganga til umræðu um varnir gegn skriðuföllum og snjó- flóðum í Bolungarvík, ekki síst í ljósi hinnar sáru reynslu frá Súðavík og Flateyri. Þetta hefur tekið mikinn tíma og er afskaplega erfitt og sárt mál. Það hefur verið íbú- um í Dísarlandi og Traðar- landi mikið áhyggjuefni enda bæði andlegt og ekki síður efnahagslegt áfall fyrir fólkið sem býr við þessar aðstæður. Þetta er með erfiðari málum sem við höfum komið nálægt. Hins vegar getum við ekki látið tilfinningar ráða. Ríkis- valdið (Ofanflóðasjóður) sem greiðir 90% kostnaðar við varnarvirki ræður þar ferðinni ásamt Veðurstofu Íslands og ber okkur að fara þar að lögum og reglugerðum. Eins og allir muna kom fram fyrst tillaga um gríðar- mikinn skurð ofan við byggð- ina, sem talið var að myndi kosta um einn milljarð króna. Margir óvissuþættir voru nú tengdir þessari hugmynd þannig að bæjarstjórn óskaði eftir að skoðaðar yrðu aðrar leiðir til varnar og var það gert. Fram komu einar sex hugmyndir að varnaraðgerð- um. Bæjarstjórn gerði tillögu um að byggja þvergarð og leiðgarð ofan við húsin í Dís- arlandi og Traðarlandi. En rétt mánuði eftir að við vorum bú- in að taka þessa ákvörðun var reglugerð um snjóflóðavarnir breytt. Gerðar voru strangari kröfur og það var mat Veður- stofu Íslands og stjórnar Of- anflóðasjóðs, að til þess að ná fyllsta öryggi á svæðinu yrði þvergarðurinn að færast neðar en við höfðum ákveðið. Þetta þýddi að garðurinn verður að fara yfir þessi sex glæsilegu hús í Dísarlandi. Þegar búið var að taka ákvörðun um þessar varnir fórum við að vinna að nýju að aðalskipulagi fyrir Bolungar- vík ásamt því að ræða um deiliskipulagið. Það er Elísa- bet Gunnarsdóttir arkitekt á Ísafirði sem stjórnar og vinnur þetta verk í samráði við bæj- aryfirvöld. Nú erum við að horfa til þess að nýtt aðal- skipulag geti hér séð dagsins ljós í upphafi næsta árs. Ég hef á undanförnum vik- um verið að vekja athygli á því svæðisskipulagi sem unn- ið var fyrir höfuðborgarsvæð- ið. Þetta er afskaplega merki- legt svæðisskipulag, vandlega unnið og mjög eðlilegt að höf- uðborgarsvæðið horfi til fram- tíðar. Það er alveg ljóst að það svæði og vissulega Íslending- ar allir eru í samkeppni við önnur lönd um gott og mennt- að fólk og því mjög eðlilegt að svona svæðisskipulag yrði unnið. Það sem kannski vekur helst athygli mína og annarra 47.PM5 19.4.2017, 09:489

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.