Vinnan - 01.03.1948, Side 6
/"
AF ALÞJÓÐAVETTVANGI
v._________________________/
Ný þraelalög í Grikklandi
7. des. síðastliðinn gaf gríska Lasistastjórnin út
ný lög, er banna verkföll. Svo mikið lá við að
koma lögum þessum á, að þau voru samþykkt á
næturfundi í þinginu, enda átti verkfall banka-
manna að hefjast daginn eftir. Hafnarverkamenn
í Pireus höfðu þá líka sett fram kröfu um hækkuð
laun.
í þessum nýju lögum er það skoðað verkfall,
ef þrír eða fleiri menn leggja niður vinnu. Allir
sem þátt taka í verkfalli, skulu mæta fyrir sér-
stökum dómstóli. Refsingin, sem ákveðin er fyrir
þátttöku í venjulegu verkfalli, eru sex mánaða
þrælkunarvinna, en ævilöng þrælknn fyrir þá, er
forustu liafa í verkfalli. ,,Þó“, segir í lögunum,
„ef verkfallið getur heimfærzt undir skemmdar-
verk, varðar það dauðarefsingn fyrir forsprakk-
ana“. Lífstíðar þrælkunarvinna eða danðarefsing
fyrir að skipuleggja verkföll mun vera met í of-
sóknum gegn samtökum verkamanna.
Þeir, sem þekkja til starfsaðferða gríska aftur-
haldsins, munu ekki vera í vafa um, að hvert verk-
fall verður dæmt sem skemmdarverk og hver
leiðtogi verkamanna skoðaður senr skipuleggjari
skemmdarverka, svo að afturhaldið telji sig hafa
lagalegan rétt til að útrýma foringjum verkalýðs-
ins og eyðileggja sarntök hans með öllu. Herferð
grísku fasistanna gegn verkalýðssamtökunum
byrjaði með því að myrða ýmsa helztu leiðtoga
þeirra og fangelsa þúsundir af virkum meðlim-
um þeirra og nii á að Ijúka henni með setningu
þessara nýjustu þrælalaga.
Lögin hafa vakið sterka mótmælaöldu um allt
landið. Mótmæli hafa komið frá flestum verka-
lýðsfélögum í landinu, og meira að segja gervi-
stjóriiin, sem ríkisstjórnin skipaði yfir landssam-
band verkalýðsfélaganna, hefur fundið sig knúða
til að bera fram mótmæli.
Ástandið í Kína
í blaðaviðtali, er Liu Ning-i, einn af leiðtogunr
kínverska verkalýðsins og meðlimur í miðstjórn
Alþjóðasambandsins, átti nýlega, sagði hann með-
al annars:
„20. sept. s.l. handtók leynilögregla Kuomin-
tang 6 verkamenn hjá „Raforkuverinu" í Shang-
hai. Hinir 2000 félagar þeirra hófu þegar verk-
fall í mótmælaskyni og kröfðust, áð þeir væru
látnir lausir. í stað þess að verða við þeirri kröfu
voru fleiri handteknir og samtök þeirra bönnuð.
Ekki aðeins verkamenn voru handteknir, lieldur
hópur kennara og stúdenta víðs vegar um borg-
ina. Það hefur lengi verið opinbert leýndarmál,
að Kuomintang hefur samið svartan lista yfir fólk,
sem hefur látið í Ijósi skoðanir, sem ekki falla í
smekk stjórnarvaldanna. Á þeim lista eru nöfn
margra verkamanna. Ógnarstjórnin á svæði Kuo-
mintang fer stöðugt vaxandi, svo að enginn lýð-
ræðissinni er þar lengur öruggur um líf sitt.“
Sem meðlimur í Alþjóðasambandinu, sagði
Liu, finn ég það skyldu rnína að hvetja alla frelsis-
unnandi menn til aðstoðar við kínverska verka-
lýðinn, sem berst heilagri baráttu gegn fasista-
stjórn Chiang Kai-shek.
Aðspurður, hvað kínverski verkalýðurinn gæti
gert undir þessum kringumstæðum, sagði Liu:
„Chiang Kai-shek og handlangarar hans skoða
hina lýðræðissinnuðu kínversku þjóð sem óvini
sína. Eina leiðin er því fyrir hana að sameinast í
harðvítugri baráttu til að hindra hinar glæpsam-
legu fyrirætlanir afturhaldsins.
Meðal annarra misgerða Chiang Kai-shek taldi
Liu eftirfarandi:
1. Chiang hefur þvingað þjóðina tii þátttöku í
borgarastyrjöldinni. Verkamenn eru reknir til
'vígstöðvanna til að berjast við landa sína og
fórna eigin lífi, og verða að skilja fjölskyldur
sínar eftir án nokkurrar fyrirvinnu eða Iífs-
möguleika.
2. Kostnaðurinn við borgarastyrjöldina leggur
allan fjárhag landsins í rústir. Dýrtíðin vex úr
öllu valdi, en launahækkanir eru bannaðar og
verkalýðurinn sveltur heilu hungri,
3. Chiang liefur svipt verkalýðinn frumstæðustu
réttindum, félagafrelsi. mál- og ritfrelsi og rétt-
inum til að ákveða laun sín. Hann hefur látið
fangelsa og myrða þúsundir verkamanna.
4. I þeim tilgangi að fá hernaðarlega aðstoð frá
Bandaríkjunum hefur Chiang látið þeim í té
átta mikilvægar hernaðarbækistöðvar og þar
með selt verkalýðinn í þrældónr til Bandaríkj-
anna. Hann hefur svikið sjálfstæði Kína með
því að leyfa amerísku stórveldissinnunum fót-
festu í landi voru með her, er í mörgum til-
B4
VIN N A N