Vinnan - 01.03.1948, Qupperneq 11
GUÐGEIR J Ó N S S O N :
Danska Alþýðusambandið 50 ára
J. Jensen, aðalstofnandi
og fyrsti formaður danska
A Iþýðusambandsins,
síðar yfirborgarstjóri
í Kaupmannahöfn.
Eg hef verið beðinn að segja lesendnm Vinn-
nnnar nokkuð frá 50 ára afmælishátíð danska
Alþýðusambandsins og för okkar sem vorum full-
trúar Alþýðusambands íslands við hátíðahöldin.
Eftir að miðstjórninni barzt boð um að senda
fulltrúa, einn eða fleiri, ákvað hún, eftir nokkra
athugun, að senda 3 fulltrúa og tilnefndi til farar-
innar Hermann Guðmundsson, forseta sambands-
ins, Kristinn Ág. Eiríksson og undirritaðann.
Við fórunr suður á Keflavíkurflugvöll aðfara-
nótt 26. des., því að flugvélin átti að fara þaðan
með morgninum, úr því varð þó ekki því hún
tafðist vestan hafs vegna bilunar.
Eftir að við höfðum sýnt filskilin skilríki þar
syðra, var okkur vísað til hótelsins og þar dvöld-
um við annan jóladag og fram á nóttina. Við feng-
um mat og herbergi til að sofa í, svo að segja má
að ekki liafi væzt um okkur þarna, en ekki fannst
mér þessi jóladagur hátíðlegur og átti veðrið
sinn þátt í því, vegna frosts og hvassviðris. Það
var frekar kalt þarna í hótelinu og svo fannst
manni einhvern veginn eins og maður væri þegar
farinn af landi burt þó að maður vissi að svo var
ekki í bókstaflegum skilningi. En ekki meira um
það.
Flugvélin kom um nóttina og við stigum upp
í liana, iiún rann af stað og sveif upp fyrir skýin,
upp í glampandi tunglskinið og eftir rösklega 6i/£
klst. frá því að hún lyfti sér af Keflavíkurvellin-
um, rendi hún sér niður á Kastrupvöllinn við
Kaupmannahöfn.
í flugvélinni var viðurgerningur ágætur. I
byrjun faraarinnar var farþegum boðin hressing.
Þeir, sem gerðu sig ánægða með Wisky fengu það,
en við þremenningarnir vorum vandlátari en svo
að við vildunr þann drykk og fengunr við ávaxta-
safa, hið mesta hnossgæti, síðan fengu farþegarnir
lreitan nrat og kaffi.
Á Kastrupvellinum tóku á móti okkur tveir
danskir járnsmiðir, senr unnið höfðu Iiér uppi
nreð Kristni um tínra. Þeir vildu allt fyrir okkur
gera; þeir fylgdu okkur á Paladshótelið, en þar
hafði forstöðunefndin búið okkur samastað. Síð-
an fórum við allir heim nreð öðrunr danska járn-
smiðnum og settumst þar að veizluborði, hinn
bauð okkur heinr til sín til lrádegisverðar daginn
eftir. Allt þetta áttunr við Kristni að Jrakka og
vinsældum hans iijá þessunr dönsku starfsbræðr-
unr.
Við konrum til Kaupmannahafnar laust eftir
hádegi á laugardag. Það var búið að loka öllunr
skrifstofum, en á mánudagsmorgun heimsóttum
við skrifstofur danska Alþýðusambandsins. Þar
hittunr við fljótlega Carl P. jensen, sem var boðs-
gestur hér á Alþýðusambandsþinginu. 1946 og
fylgdi hann okkur til formannsins Eiler Jensen.
Við vorunr boðnir velkomnir og formaðurinn til-
kynnti okkur að við ættunr að búa og borða á
Paladshótelinu á kostnað danska sambandsins.
Eiler Jensen núverandi formað-
ur 'danska Alþýðusambandsins.
VINNAN
39