Vinnan - 01.03.1948, Page 18
þetta ákvæði hafði verið numið úr lögum þess og
það tók að starfa á fullkomlega lýðræðislegum
grundvelli.
Þar sem félagið var stofnað í byrjun heims-
kreppunnar 1931, setti baráttan gegn atvinnu-
leysinu einkum svip sinn á starfsemi þess fyrstu
árin. Aðalumræðuefnið fund eftir fund var at-
vinnuleysið og hinar rýru tekjur verkamanna.
Voru þá oftlega samþykktar áskoranir til hrepps-
nefndar um atvinnubætur. Þótt þeim áskorunum
væri ekki alltaf vel tekið, má fullyrða, að mikið
hafi áunnizt og atvinnuleysið hefði orðið mikl-
um mun tilfinnanlegra fyrir verkamenn, ef jressi
samtök þeirra hefðu ekki verið til.
Þá liafa einnig verið samþykktar á fundum fé-
lagsins ýmsar raunhæfar tillögur um atvinnu-
aukningu, svo sem í sambandi við jarðrækt, út-
gerð o. fl. með nokkrum árangri. Stundum hafa
tryggingamálin verið rædd og samþykktar tillög-
ur urn þau og félagið átti frumkvæði að stofnun
byggingafélags til þess að bæta úr húsnæðisvanda-
málum alþýðunnar í Borgarnesi. Enda þótt félag-
ið hafi jafnan verið óháð stjórnmálaflokkunum í
landinu, þá hefur það samt ekki leitt hjá sér að
taka afstöðu til og kveðja sér hljóðs um ýmis mál
stjórnmálalegs eðlis, ef þau hafa snert mjög hags-
rnuni verkalýðsstéttarinnar. Þannig voru t. d.
samþykkt mótmæli gegn stofnun ríkislögreglunn-
ar 1932 og 1933, gegn vinnulöggjöfinni 1938,
gengislækkuninni 1939 og gerðardómslögunum
1942.
Auðvitað hafa kaupgjaldsmálin alltaf verið
aðalviðfangsefni félagsins. Verkamannakauptaxt-
ann, þ. e. a. s. grunnkaupið, hefur það hækkað úr
kr. 1,00 upp í kr. 2,80 á klukkustund og aðra
kauptaxta í samræmi við það. Sjaldan hefur fé-
46
VINNAN