Vinnan - 01.12.1974, Blaðsíða 4
SAMB ANDSSTJ ORN ASI
Ogilding kjarasamninga fordœmd
Frá sambandsstjórnarfundi A.S.Í.
Reglulegur sambandsstjórnarfundur ASÍ
fyrir árið 1974 var haldinn í Reykjavík 29.
og 30. nóv. s.l. Tveir sambandsstjórnarfundir
höfðu verið haldnir fyrr á árinu. Fundinum
1973 hafði vegna samninganna verið frestað
til 4.-5. apríl, og sérstakur fundur hafði verið
kallaður saman vegna efnahagsráðstafana
stjórnvalda 10. maí.
í sambandsstjórn eiga sæti: Miðstjórn ASÍ
(15 manns), fulltrúar kjörnir af ASÍ-þingi
(18 manns), samkvæmt tilnefningu landssam-
banda 14, eða alls 57 manns. Auk þeirra voru
að þessu sinni boðaðir á fundinn, formenn
svæða- og landssambanda og formenn allra fé-
laga með yfir 500 félaga, ef þeir ekki áttu
sæti fyrir í miðstjórn eða sambandsstjórn,
með málfrelsi og tillögurétti og fullum rétt-
indum um kjaramálin.
Helstu mál á dagskrá fundarins voru: For-
seti, Björn Jónsson, flutti skýrslu miðstjórnar
um starfsemina á árinu 1974 (auk þess var
lögð fram prentuð skýrsla ársins 1973). Gjald-
keri, Einar Ögmundsson, gaf yfirlit um fjár-
hagsstöðu sambandsins og lagði fram fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1975 ásamt tillögu um
skatt fyrir það ár. Var einróma samþykkt að
skatturinn yrði kr. 350,00 á félaga, eða með
gjöldum til MFA, Vinnudeilusjóðs og Lista-
safns ASÍ kr. 420,00. Þá fluttu Stefán Ög-
mundsson og Bolli Thoroddsen skýrslu um
starfsemi MFA og undirbúning stofnunar Fé-
lagsmálaskóla alþýðu. Óskar Hallgrímsson gaf
yfirlit um starf Alþýðuorlofs á árinu. Snorri
Jónsson skýrði frá gangi endurskoðunar á or-
lofslöggjöfinni.
Um öll þessi mál urðu talsverðar umræður.
Meginverkefni fundarins var þó kjaramálin.
Stóðu umræður um þau nær allan laugardag-
inn, en að þeim loknum var samþykkt ályktun
sú um kjaramál, sem birt er hér í blaðinu.
Einnig kaus fundurinn 9-manna nefnd til að
annast samningamálin og er hún þannig skip-
uð:
Björn Jónsson, forseti ASI.
Eðvarð Sigurðsson, form. Verkamannasamb.
Islands.
Snorri Jónsson, form. Málm- og skipasmiða-
sambands Islands.
Björn Þórhallsson, form. Landssamb. fsl.
verslunarmanna.
Benedikt Davíðsson, form. Sambands bygg-
ingamanna.
Björn Bjarnason, form. Landssambands iðn-
verkafólks.
Einar Ögmundsson, form. Landssambands
vörubifreiðarstjóra.
Magnús Geirsson, form. Rafiðnaðarsambands
Islands.
Jón Sigurðsson, form. Sjómannasambands ísl.
Síðan er ákveðið, að allfjölmenn bak-
nefnd verði með í ráðum um allar mikilvægar
ákvarðanir, og mun aðalsamninganefndin og
miðstjórn ákveða hverjir skipi hana, þegar
séð verður hvaða verkalýðsfélög veita nefnd-
inni umboð til að koma fram fyrir þeirra
hönd.
4
VINNAN