Vinnan - 01.12.1974, Page 8
ÞING OG ÁLYKTANIR
Starfsgreinasambönd þinga
Frá þingi vorubifreiðastjóra.
I vetur héldu nokkur sérsambönd
ASÍ þing sín, þar sem fjallaS var um hin
ýmsu mál. Þing þessi eru haldin annað
hvort ár og eru mótandi fyrir starf og
stefnu sambandanna. Þar sem nokkuS
er um liðiS síðan þingin voru háð og
ályktana þeirra hefur verið getið í dag-
blöðum og víðar mun VINNAN aðeins
geta helstu atriði varðandi þingin og
málefni þeirra. Björn Jónsson forseti ASÍ
flutti öllum þingunmn kveðjur og árnaði
þeim heilla í starfi. Þá átti INSI áheym-
arfulltrúa á þingum SBM og MSI.
Landssamband vörubifreiðar-
stjóra
Þing Landssambands vörubifreiðastjóra sem
var það ellefta í röðinni, var haldið í Reykja-
vík 16. og 17. nóv. Þingið var sett af for-
manni sambandsins, Einari Ogmundssyni.
Forsetar þingsins voru kjörnir Guðmundur
Snorrason, Akureyri og Guðmann Hannesson,
Reykjavík. Meðal mála sem þingið tók til
meðferðar má nefna: Efnahags- og kjaramál,
landhelgismál, umferðamál, umhverfisvernd
og samgöngumál. Ályktun þingsins um efna-
hags- og kjaramál er á þessa leið:
„11. þing Landssambands vörubifreiðastjóra
fordæmir harðlega hinar harkalegu aðgerðir
ríkisvaldsins gagnvart samningsrétti laun-
þegasamtakanna í landinu.
Það er skoðun þingsins að algjör forsenda
fyrir vinnufriði sé að verkalýðshreyfingin
haldi óskertum rétti til frjálsrar samnings-
gerðar.
Fyrir því mótmælir þingið harðlega lög-
boðinni skerðingu kaupgjaldsvísitölunnar,
sem hefur haft í för með sér að fjöldi laun-
þega hefur engra vísitölubóta notið frá 1.
mars s.l. þrátt fyrir hratt vaxandi dýrtíð. Þar
að auki er Ijóst að stórfelld kaupmáttarrýrn-
un er nú framundan, ef ekkert verður að
gert.
Þingið leggur jafnframt áherslu á ríka
nauðsyn þess að haldið verði uppi fullri at-
vinnu, því enginn kjaraskerðing er svo þung-
bær sem atvinnuleysi.
Vörubílstjórastéttin, sem gegnir mikilvægu
hlutverki í atvinnulífinu, hefur að undan-
förnu mátt þola þungar álögur sem einungis
er unnt að standa undir með því móti að næg
atvinna og óskert launakjör séu til staðar.
Þingið álítur það mjög mikilvægt að engar
meiriháttar efnahagsráðstafanir verði gerðar á
næstunni aðrar en þær sem verkalýðshreyf-
ingin getur sætt sig við.“
I ályktun þingsins um umhverfisvernd
segir:
„11. þing Landssambands vörubifreiðastjóra
skorar eindregið á alia félagsmenn sína
og alla bifreiðaeigendur í landinu að gæta
hófs í umgengni við viðkvæma gróðurbletti
og hafa ávallt í huga að skertur gróður af
völdum umferðar getur áður en varir orsakað
uppblástur lands. Þingið leggur áherslu á að
Landssamband vörubifreiðastjóra heitir Land-
verndarsamtökunum fullum stuðningi við
þeirra merku störf.“
Og í ályktun um 'samgöngumál segir
ennfremur:
„Það er eindregin skoðun þingsins að ekki
megi draga úr vegaframkvæmdum, heldur
auka þær stórlega, enda er bætt vegakerfi
mikilsverður þáttur í auknu umferðaöryggi,
auk hins þjóðhagslega hagnaðar, sem um er
ræða með því að koma á varanlegum vegum
um landið.
Því skorar 11. þing Landssambands vörubif-
reiðastjóra á Alþingi og ríkisstjórn að veita
stórauknu fjármagni til vegaframkvæmda á
næstu árum, svo séð verði fyrir endann á því
mikla þjóðfélagslega vandamáli, sem hið ó-
fullkomna og þar af leiðandi dýra vegakerfi
hefur verið og er þessari þjóð.“
I stjórn sambandsins voru kjömir: Einar
Ogmundsson formaður, varaformaður Guð-
mundur Kristmundsson, aðrir í stjórn eru:
Jónas Guðbjörnsson, Guðmundur Helgason,
Björn Pálsson, Skúli Guðjónsson og Helgi
Jónsson.
Málm -og skipasmiðasam-
band íslands
Þá héft MSI sitt 6. þing í Reykjavík dag-
ana 15.-17. nóvember. Þingið setti Snorri Jóns-
son, formaður sambandsins. Þingið sóttu 72
fulltrúar frá 18 sambandsfélögum. Forsetar
þingsins voru Kristján Guðmundsson og
Kristján Ottósson. Þingið afgreiddi fjölda
mála. Bar þar hæst atvinnu- og kjaramál,
vinnuverndarmál og fræðslumál. Sérstakar
samþykktir voru gerðar um orkumál og Líf-
eyrissjóð málm- og skipasmiða. Miðstjórn
MSI skipa nú: Snorri Jónsson formaður, Guð-
jón Jónsson varaformaður, Sigurgestur Guð-
jónsson ritari, Ásvaldur Andrésson vararitari,
Helgi Arnlaugsson gjaldkeri og meðstjómend-
ur eru Kristján Ottósson og Halldór Haf-
steinsson.
8
VINNAN