Vinnan - 01.12.1974, Side 21
IÐJA 40 ARA
Núverandi stjórn Iðju, talið frá
vinstri: Herberg Kristjánsson,
Magnús Guðjónsson, Guðmundur
G. Guðmundsson, Gunnlaugur
Einarsson, Guðmundur Þ. Jónsson,
Runólfur Pétursson, Bjarni Jakobs-
son, María Vilhjálmsdóttir, Ragn-
heiður Sigurðardóttir og Klara
Georgsdóttir. Á myndina vantar
Steina Sævar Þorsteinsson.
Iðja 40 ára
Framh. af bls. 19
staða ráðamannanna hefur óneitanlega
torveldað kjarabaráttu iðnverkafólksins
og framan af tafði hún fyrir því að iðn-
verkafólkið sæti við sama borð og aðrir,
en þó hægt hafi miðað, hefur eitthvað
áunnist með hverjum kj arasamningi
sem gerður hefur verið, þó að þeir á-
fangar verði ekki raktir hér. Ég vil þó
aðeins nefna nokkur atriði, sem ekki
snerta launakjörin beinlínis, og er þá
fyrst að minnast á lögin um atvinnuleys-
istryggingar, sem náðust fram eftir
verkfallið 1955, sem er að mínum dómi,
með þeim breytingum sem síðar hafa
verið gerðar á þeim, einn merkasti á-
fanginn í baráttusögu íslensku verka-
lýðssamtakanna. Þá var tilkoma sjúkra-
og orlofssjóðanna einnig merkur á-
fangi. Hinir almennu lífeyrissjóðir fé-
laganna orka meira tvímælis, meðan
þeir eru ekki verðtryggðir, en baráttan
fyrir verðtryggingu þeirra hlýtur að
verða meðal næstu verkefna félaganna.
Hitt skal þó viðurkennt að þeir hafa, í
því formi sem þeir nú eru, sem almenn-
ir lánasjóðir, hjálpað mörgum til að
koma þaki yfir sig og sína. Ymis fleiri
hagsmuna- og réttindamál mætti nefna,
sem náðst hafa fram fyrir atbeina
verkalýðssamtakanna þó það verði ekki
gert hér.
Því verður ekki neitað, því miður, að
allmikil deyfð virðist vera ríkjandi í
samtökum verkafólksins. Þáttur hins al-
menna félagsmanns í starfi félaganna
er hverfandi lítill, félagsfundir alltof
illa sóttir og þáttur félagsmanna í um-
ræðum og afgreiðslu mála mikils til of
lítill. Þetta sinnuleysi leiðir það óhjá-
kvæmilega af sér að hin raunverulegu
völd í félögunum færast meir en góðu
hófi gegnir inn á skrifstofur félaganna,
sem á engan hátt getur talist æskilegt.
Það er því ósk mín til Iðju, í tilefni 40
ára afmælis hennar, að á þessu verði
sú breyting að meðlimir hennar verði
virkari í starfi félagsins, sæki hetur
fundi og taki virkari þátt í afgreiðslu
mála og stefnumótun félagsins. Ræki
meðlimirnir þessar skyldur sínar við
félagið, mun því vel farnast.“
Björn Bjarnason.
samþykkt á stjórnarfundi ETUC
í Briissel í júlí með 21 atkvæði
gegn 7, og greiddu atkvæSi gegn
aðildinni Vestur-Þýska samband-
ið (DGB), franska sosíal-demó-
kratasambandið (FO) og kristi-
legu samböndin CSC (Belgíu),
CNG (Sviss) og LCGB (Luxem-
bourg).
Með þessari útvíkkun er Evr-
ópusambandið orðið mestu
fjöldasamtök álfunnar með 37
milljónum meðlima, og því afl,
sem taka verður tillit til m. a. af
Efnahagsbandalaginu og stofnun-
um þess og hinum alþjóðlegu fyr-
irtækjum og hringum.
VINNAN
Sjelepin í heimsókn
til NFS
Nú í október var Aleksander
Sjelepin, formaður sovéska al-
þýðusambandsins, væntanlegur í
heimsókn til Stokkhólms á veg-
um NFS, norræna Alþýðusam-
bandsins. Mun hann þar heim-
sækja aðalstöðvar NFS og hitta
að máli fulltrúa frá aðildarsam-
böndum þess.
Sjelepin er með þessu að end-
urgjalda heimsókn sendinefndar
frá NFS til Sovétríkjanna í júlí
s.l. I viðræðum við leiðtoga sov-
éska alþýðusambandsins náðist
samkomulag um aukna samvinnu
á sviði verkalýðsmála, einkum á
sviði starfsumhverfis (arbeids-
miljö), sem verður aðalumræðu-
efni á ráðstefnu „austurs og vest-
urs“, sem halda á í Genf í jan-
úar á næsta ári.
För sendinefndarinnar og kynn-
isferð hennar til Moskvu, Kiev og
Leningrad 1.-6. júlí, fékk mikið
rúm í sovéskum fjölmiðlum.
Henni lauk með sameiginlegri
yfirlýsingu, þar sem áhersla var
lögð á aukna samvinnu sovéska
alþýðusambandsins og NFS, m.
a. með kynnisferðum sérstakra
sendinefnda NFS til Sovétríkj-
anna og með þátttöku sovéskra
fulltrúa á ráðstefnum og nám-
skeiðum NFS.
HörS gagnrýni
Ekki eru allir á eitt sáttir um
aukin samskipti austurs og vest-
urs á sviði verkalýðsmála. Á 12.
þingi Force Ouvriére í Toulouse
í Frakklandi í júní kom fram
hörð gagnrýni á þróun mála á
þessu sviði undanfarið og bland-
aðist upptaka ítalska sambands-
ins CGIL nokkuð inn í þær um-
Framh. á bls. 24
21