Vinnan


Vinnan - 01.06.1988, Side 3

Vinnan - 01.06.1988, Side 3
 mjr nt.uu formannafundar ASÍ 30. maí ..Formannafundur ASÍ fordæmir ósvífna árás ríkisstjórnarinnar á samníngsrétt verkalýðs- félaganna og þá kjaraskerðingu sem henni fylgir. Ríkisstjórnin hefur bundið alla samninga til 10. apríl á næsta ári. Prátt fyrir að ríkisstjórnin viðurkenni að í raun mætti rekja vanda efna- hagslífsins til óráðsiu og skipulagsleysis, var kjaraskerðing og lög á laun það eina sem hún var reiðubúin til að ræða við verkalýðshreyfing- una. Pá mótmælir formannafundurinn þeim ósannindum í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um bráðabirgðalögin, að þau verji lægstu laun og dragi úr launamun. Ríkisstjórnin hefur afnumið réttinn til frjálsra samninga í nærri ár. Með síendurteknum laga- boðum um kjaraskerðingar og afnám samnings- réttar er verkalýðshreyfingin svipt aðstöðu til þess að sinna á eðlilegan hátt því meginhlut- verki sínu að semja um kaup og kjör. Þannig er grafið undan trausti félagsmanna á samninga- gerð og þar með trausti þeirra á verkalýðsfélög- unum. Slíkar aðgerðir eru þvð alvarleg atlaga að félagafrelsinu. Frjáls samningsréttur er ein af hornsteinum þess lýðræðiskerfis sem við búum við. For- mannafundurinn krefst þess að ríkisstjórnin afturkalli lagasetninguna svo fólk endurheimti frjálsa samningsgerð. Fundurinn skorar á verka- lýðsfélögin um land allt að búa sig undir að fylgja þeirri kröfu eftir ef ríkisstjórnin lætur ekki segjast." var ekki ASI sem neitaði við- rœðum. Það var ríkisstjórnin. Hún vill ekki rœða óráðsíu efnahagslífsins. Hún hefur engar forsendur fram að fœra sem gera umrœður um rauð strik möguleg og hún veitekki í einstökum atriðum til hvers hún œtlast gagnvart þeim samningum sem ólokið er. Því verður ekki annað séð en ríkisstjórnin sé ASÍ sammála um að best fari á að samn- ingagerð verði haldið áfram þar sem hún fer núfram og að um rauð strik verði rœtt sam- kvœmtákvœðum kjarasamn- inga þegar þar að kemur. Hnútukast hans í garð ASÍ af þessu tilefni virðist því í litlu samrœmi við það sem fram kom á fundum ríkis- stjórnarinnar og fulltrúa ASÍ. Tilhœfulausar ásakanir Þor- steins um að ASÍ vilji ekki verja kaupmátteru lítilmann- leg tilraun til þess að ýta frá sér umrœðu um þau raun- verulegu vandamál sem að steðja. “ Ásmundur benti síðan fund- armönnum á að innan ASÍ, miðstjórnar þess og meðal for- manna sambanda. hefði verið full samstaða á öllum fundum um þessi mál, þótt annað hefði mátt skilja á fréttaflutningi. Sterk öfl vilja sundrungu ,,t>að eru sterk öíl sem vilja koma á sundrungu. Það er mikilvægt að þeim verði ekki ágengt, að þau hafi ekki erindi sem erfiði. Á verkalýðshreyf- ingin að standa frammi fyrir því að þegar árangur kjara- samninga verður of mikill. að mati atvinnurekenda. þá eru þeir skertir með lagasetningu? Þá missir öll samningsgerð gildi sitt. Það er verkefni þessa fundar að ákveða viðbrögð við kjaraskerðingunni. Þá rifjaði Ásmundur upp reynsluna frá 1982 og 1983. en stærsta kjaraskerðing síðari ára var í maí 1983 er kaup- máttur var skertur um 25% og kjarasamningar bannaðir. Hann fjallaði siðan um Al- þjóðavinnumálastofnunina og fyrirhugaða kæru ASÍ til hennar og rakti síðan nokkra möguleika á aðgerðum á næst- unni. Að lokum kynnti Ás- mundur drög að ályktun fund- arins. Þá tók Sigfinnur Karls- son, formaður Alþýðusam- bands Austurlands og fisk- vinnsludeildar Verka- mannasambandsins og sagði að verkafólk hefði verið platað til að gera Akureyrar- samninginn. Hann sagði að m.a. hefði verið haft samband við fulltrúa ríkisstjórnarinnar við þá samningagerð og eng- inn hefði átt von á þessari kjaraskerðingu. Karvel Pálmason, vara- formaður Verkamanna- sambandsins, sagði að verka- lýðshreyfingin hefði sjaldan staðið frammi jafnmiklum erfiðleikum og nú. „Nú er gengið lengra í að vega að hreyfingunni en áður. Hér er verið að banna starfssemi verkalýðsfélaga í 11 mánuði. Ég sem jafnaðarmaður átti ekki von á því að þurfa að upp- lifa þetta árið 1988." Karvel rakti einnig að nokkru viðræður við fúlllrúa ríkisstjórnarinnar og þá niður- stöðu viðræðna fyrri dag þeirra viðræðna, að það væri ekki kaupið sem væri að sliga þjóð- félagið. Þar vær-u aðrir hlutir á ferðinni. „Það var því engin ástæða til að setja lög sem banna samn- inga stéttarfélaga, scrstaklcga þegar allir geta farið fram hjá lögunum. Daginn eftir að lögin voru scú buðu atvinnurck- cndur betur og cnginn sagði ncitt." Þá minntist Karvel á álykt- anir landssambanda og auka- þings VMSÍ og sagði að það hefðu vcrið ráðhcrrar og þing- menn scm ekki vildu neitt annað en lög, engar viðræður um aðgerðir. Um samstöðu verkalýðshreyfingarinnar sagði Karlvel: Undirbúum aðgerðir „Ég heyri ekki betur en að menn séu sammála því að una ekki hvernig gengið er á rétt stéltarfélaga. Ég er þeirrar skoðunar að hér sé aðeins byrjun á aðgerðum. Það kunni að koma meira lil er haustar að. Mín skoðun er sú að heppi- lcgast sé að undirbúa jarðveg- inn þangað til annað og jafnvel verra dynur á á hausti kom- anda. Sigurður Óskarsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Rangæings og Alþýðusam- bands Suðurlands. sagðist nú sem i'yrr fordæma afskipti ríkisvaldsins af samningsrétt- inum. Hann hvatti fundar- menn til að vera undirbúna að- gcrðum þegar lag væri. Benedikt Davíðsson. for- maður Sambands Bygginga- manna, taldi mikilvægt að vclja tíma aðgerða vcrkalýðs- hrcyfingarinnar vandlega. „Okkur gctur lckisl að þrinda af okkur þessum ólögum, „sagði Bcncdikt, „en cg er svartsýnn á aö það skili árangri að boða til aðgcrða hér og nú.“ 12 manna nefnd Þóra Hjaltadóttir. for- maður Alþýðusambands Norð- urlands, kynnti tillögu cr mið- sljórn ASN samþykkti að leggja l'yrir formannafundinn, um kosningu 12 manna nefnd- ar cr undirbúa ætti hcilsleypta cfnahagsslcfnu ASÍ og skipu- e. Di énski fmmleiðslumeistarinn Steen Ludrigsen hetur gefíð Erónkexinu nýtt og betm bmgð \Vi súkkulaðihjúpuiinn er besta sendingin fiá dönum síðan við fengum handritin heim FRÓN FRÓN HF. KEXVERKSMIÐJA SKÚLAGÖTU 28 SIMI 11400 VINNAN — JÚNÍ 1988 — 3

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.