Vinnan - 01.04.1992, Blaðsíða 7
Björn Grétar
Sveinsson, for-
maóur Verka-
mannasam-
bandsins:
„Fólki finnst þetto
andskoti ryrt"
„Eg var að koma úr frystihúsinu þar
sem ég settist niður með fólki og spjall-
aði við það eins og ég geri oft. Það verð-
ur að segjast eins og er að fólki finnst
tilboð atvinnurekenda andskoti rýrt, svo
ekki sé meira sagt.” Þetta segir Björn
Grétar Sveinsson, formaður Verka-
mannasambandsins, kominn heim á
Höfn er árangurslausa samningalotu í
Reykjavík.
Bjöm Grétar segir tilboð atvinnurek-
enda ekki hafa verið fullnægjandi eitt og
sér og enn síður hafi verið hægt að
ganga til samninga þar sem ríkisstjómin
vildi ekki gefa meira eftir. „Með því að
liggja yfir tilboði ríkisstjórnarinnar var
hægt að reikna það upp í 150 milljónir,
en við þurfum miklu meira. Nú er líka
að koma í ljós að þessi flati niðurskurður
á sjúkrahúsum er hrein geggjun. Það er
eina orðið yfir þetta.”
Hina „nýju aðferðarfræði“ kallar hann
svonefndan veikindabækling þar sem
vegið er að réttindum verkafólks með
þröngri túlkun á samningum.
Verkamannasambandið vildi að VSI drægi
þetta til baka en ekki var'léð máls á því.
„Við munum taka okkur þann tíma
sem við þurfum,” segir Bjöm Grétar enda
stendur hugur félagsmanna aðildarfélaga
Verkamannasambandsins ekki til þess að
skrifa undir samkomulag á þeim nótum
sem talað var um síðustu helgi.
Viöbrögð forystumanna
7
Gubmundur
Gunnarsson,
varaformaður
Rafiónadarsam-
bands Islands:
„Óraunsæi spillir
fyrir somningum"
„Við vildum semja á þessum grund-
velli, enda teljum við aðalatriðið að
koma atvinnulífinu aftur af stað og fá
vexti niður,” segir Guðmundur Gunnars-
son, varaformaður Rafiðnaðarsambands
Islands. Guðmundur segir óraunsæi að
búast við meiri kjarabótum en það sem
undanfarið hefur verið til umræðu á
samningafundum. „Eftir að álverið datt
upp fyrir og vinna dróst saman í haust
og vetur varð ljóst að sá samningur sem
við stóðum frammi fyrir yrði óhjá-
kvæmilega á lágu nótunum.”
Guðmundur segir ástæðuna fyrir því
að ekki var einhugur í samfloti verka-
lýðsfélaganna vera fyrst og fremst þá að
„ákveðnir aðilar innan hreyfingarinnar
gáfu stórar yfirlýsingar í haust og virðast
ekki hafa áhuga til að draga þær tilbaka,
þó að aðstæður séu allar aðrar en þær
voru. Menn innan ASI og BSRB héldu
að það yrði mikil vinna og gott atvinnu-
ástand þegar þeir lögðu fram hugmyndir
sínar um miklar kauphækkanir, en þetta
var óraunsætt mat.”
Þá gefur Guðmundur ekki mikið fyrir
þau rök að 2-3 daga verkfall dugi til að
atvinnurekendur komi meira til móts við
verkalýðshreyfinguna. „Eins og ástandið
er núna þyrfti verkfall að standa yfir í 2-
3 vikur til að hafa áhrif og mögulegur
árangur af því verkfalli er ekki slíkur að
hægt sé að réttlæta það.”
Ingibjörg R.
Guómundsdóttir,
formaður Lands-
sambands versl-
unarmanna:
//
Stöbugleiki long
mikilvægostur"
Verslunarmenn vildu fallast á þá
hugmynd sem var á borðum samninga-
nefnda um síðustu helgi. „Vitanlega var
tilboðið á lágum nótum, en við töldum
það verja þá sem minnst hafa og um leið
tryggja stöðugleika,” segir Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir, formaður Landssam-
bands verslunarmanna, og telur stöðug-
leika í atvinnulífinu „lang mikilvægasta“
atriðið.
Um eða yfir 70 prósent afgreiðslu-
kvenna eru með 80 þúsund krónur eða
minna í mánaðarlaun. Ingibjörg telur að
miðað við núverandi aðstæður verði
ekki meira gert en að verja hag þeirra
sem minnst bera úr býtum. Hún horfir
einnig til þess að líklegt er að kjara-
samningar munu slá á atvinnuleysið, en
það er alvarlegt vandamál hjá verslunar-
mönnum. „En auðvitað yrði maður ekki
ánægður með svona samning, þetta er
hreinn vamarsamningur.”
Ingibjörg sér ekki að verkfallsaðgerð-
ir myndu skila árangri við þessar að-
stæður. „Það er mín hjartans sannfæring
að aðgerðir myndu ekki skila réttlætan-
legum árangri.” Að hennar áliti hefði
ríkisvaldið mátt koma meira inn í samn-
ingana með aðgerðir sem miðuðu að því
að draga úr áföllum láglaunafólks. Þó
telur Ingibjörg nokkuð hafa náðst með
þaki á lækniskostnað fyrir bamafólk.
fá eigendur ökutækja þjónustu sem
alltaf hefur vantað á einn stað: Þvottastöð, hjólbarðasala,
smurstöð, Ijósaskoðun, hemlaprófun, viðgerðarverkstæði,
verslun og ráðgjöf.
Allt á sama stað og undir einu þaki.