Vinnan


Vinnan - 01.04.1992, Page 13

Vinnan - 01.04.1992, Page 13
13 Litlar sem engar líkur eru á að orð- ið verði við þeirri beiðni, enda er lágmarksverðið hér undir því með- alverði á orku sem önnur álver í heiminum greiða. ÍSAL greiðir sérstakt fram- leiðslugjald og nam það liðlega 100 milljónum í fyrra. Frá árinu 1980 hefur ÍSAL greitt yfir 1.700 milljónir í framleiðslugjald framreiknað til dagsins í dag. Stærsti hlutinn eða 77,9% rennur í ríkissjóð, Hafnarfjarðarbær fær 18% og iðnlána- sjóður 4,1%. Kostnaður við eftirlit með álsamningnum er greiddur af fram- leiðslugjaldinu. Þá greiddi ÍSAL að fullu kostnað við höfnina í Straumsvík en höfnin er eign Hafnarfjarðarbæjar. Fjár- festingar ÍSAL hér frá 1989 nema 2,5 milljörðum króna. A síðasta ári greiddi ÍSAL um 1,4 milljarða í laun og launatengd gjöld og samkvæmt lauslegum útreikningum má ætla að um fjögur þúsund íslendingar hafi lífsviðurværi af ÍSAL með beinum eða óbeinum hætti. Mikil umskipti til hins verra hafa orð- ið á afkomu ISAL síðustu tvö árin. Hagnaður 1989 var um 1.750 milljónir króna en var sáralítill 1990. Eiginfjár- hlutfall lækkaði úr 55,84% í 38,85%. Tapið í fyrra nam 1,4 milljörðum og í ár má búast við að tapið verði 1,6 milljarðar ef álverð hækkar ekki. Hér verður ekki reynt að reikna út hagnað af ISAL frá upphafi, en það er á hreinu að þar er um umtalsverðar fjárhæðir að ræða. Enda rekur fyrirtæki á borð við Alusuisse ekki fyrirtæki í góðgerðaskyni. Talið er að rekstur álversins hér sé einna hagkvæm- astur allra álvera sem nú eru starfrækt. Meðallaun starfsmanna ÍSAL árið 1990 voru 2,114 milljónir en þá voru aðeins örfá fyrirtæki utan útgerðarinnar sem greiddu yfir 2,5 milljónir í meðallaun á árinu. Tíu verkalýðsfélög eiga aðild að samningum við ISAL. 0DEXION IMPEX - hillukerfi án boltunar sem hentar m.a. fyrir verksmiðjur, lagera, geymslur og bílskúra. Auðvelt í samsetningu með stífingum og lokun að óskum kaupanda. LANDSSMIÐJAN HF. Sölvhólsgötu 13 - Reykjavík - Sími (91) 20680 - Telefax (91) 19199 Öflug stofnun á athafnasvæði Sparisjóðurinn í Keflavík Sjóóur suöurnesjamanna VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.