Stefnir - 01.04.1994, Síða 41
sinni. Ef allt gengur fram sem horfir, þá
mun verða á næstunni enn frekari hag-
ræðing í sjávarútvegnum en orðið hefur.
Skipum fækkar og kvóti færist á færri
hendur. Ef ekki hefði komið til sú mikla
lægð í stofnstærðum helstu fisktegunda,
þá hefði leyfður heildarafli á hvert skip
aukist til muna. Allar líkur eru því á að
arðsemi í sjávarútvegnum muni fara ört
vaxandi á næstu árum samfara meiri
fiskgengd.
Mikið hefur reyndar verið gert í sjávar-
útvegnum í hagræðingarskyni á allra
seinustu árum. Sést það best af því, að
þrátt fyrir rúmlega helmings samdrátt í
þorskveiðum þá er staða útgerðar í heild
sinni furðu góð. Sótt hefur verið af
kappi í áður ó- eða vannýttar tegundir,
auk sóknar á fjarlæg mið. Allt ber þetta
reyndar vitni um að mikill dugur er í út-
gerðinni.
Einn meginþáttur kvótakerfisins er að
bestu útgerðirnar haldi áfram en hinir
hætti. Kvótinn safnast til best reknu út-
gerðanna eða þannig á það að vera.
Þetta er sjálfsagt og eðlilegt, öðruvísi
næst ekki sú hagkvæmni sem að er
stefnt.
Þetta megininntak kerfisins, sem að
ofan er iýst, hlýtur með tímanum - eitt
og sér - að leiða til verulegs hagnaðar
hjá útgerðaraðilum. En forsendan fyrir
þessum hagnaði er auðvitað sú, að
stjórnvöld eru búin að skammta aðgang-
inn að fiskimiðunum með úthlutun á af-
gjaldslausum veiðikvóta.
Auðvitað er það mikið fagnaðarefni ef
eðlileg arðsemi verður í þessum höfuð-
atvinnuvegi okkar. Enginn heldur því
fram að útgerðin megi ekki græða.
Einokunarklúbbur útgerðarinnar
En rnálið er bara það, að þetta er lok-
aður klúbbur útgerðarmanna sem fær
notið þessa hagnaðar - enginn fær að-
gang nema að greiða stórfé til þeirra sem
fyrir eru. Þetta er sem sagt einkaleyfis-
klúbbur sem fengið hefur mikilvægustu
auðlind þjóðarinnar frá stjórnvöldum til
ókeypis fénýtingar. Allsstaðar þar sem
hið opinbera afhendir slík einkaieyfi á-
kveðnum hópi rnanna, þykir eðlilegt að
taka fyrir nokkuð gjald. Hingað til hafa
útgerðarmenn ekkert viljað láta af hendi
rakna til allra hinna sem eru þó réttmætir
eigendur að auðlindinni og þar með
hagnaðaruppsprettunni.
Kjarni málsins er því þessi, stjórnun
veiða er nauðsynleg til þess að
tryggja þjóðinni hámarksarðsemi af
fiskistofnunum. Því
varð að takmarka
aðgang að fiskimið-
unurn, um það þarf
ekki að deila. Hins
vegar er það umdeilt
hvernig var staðið að því að skipta
þessum réttindum út. Akveðnum hópi
manna var úthlutaður kvóti, sem sagt
einkaleyfi til að nýta auðlindina. Við
þetta myndast mjög verðmætur réttur
sem eykst eftir því sem hagræðingin.vex-
og þar með hagnaðurinn- í sjávarútvegn-
um. Það myndast einkaleyfisgróði
vegna nýtingar auðlindarinnar, sem allur
fer í vasa útgerðamanna, þrátt fyrir það
að þjóðin öll eigi sjávarauðlindina.
Eru veiðileyfasgjaldsmenn einir á
báti?
Sú skoðun, að þetta ástand sé með öllu
ótækt er miklu útbreiddari og almennari,
en að hægt sé að vísa henni frá sem sér-
visku, sósíalisma eða öfundsýki í garð út-
gerðamanna, en forystumenn útvegs-
manna hafa einmitt haldið því fram að
einhverjar slíkar annarlegar hvatir liggi á
bak við gagnrýni á núverandi kvótakerfi.
þetta er fjarri lagi og reyndar alveg
furðulegt að útgerðamenn skuli halda
þessari málsvörn enn uppi.
Athygli vekur að margir framámenn í
útgerð og fiskvinnslu hafa undanfarið, á
ýmsum vettvangi, lýst svipuðum viðhorf-
um og hér er greint frá. Flestir þeirra hafa
reyndar ekki hátt um þessar skoðanir sínar,
sjálfsagt af tillitssemi við forystu útvegs-
manna.
Sama gildir um sjómenn, þar gætir vax-
andi fylgis við skoðanir greinarhöfundar.
Auðvitað er það alveg rétt að ekki árar nú
vel í sjávarútvegnum. Af þessum orsökum
er því haldið fram af mörgum að gjaldtaka
af útgerðinni sé tímaskekkja. En rétt er
að horfa aðeins fram á veginn og líta til
þeirra sértöku aðstæðna sem nú ríkja.
Verðlag á helstu
sjávarafurðum metið í
erlendri mynt, er nú
u.þ.b. fimmtungi
lægra en langtíma-
meðaltal segir til um.
Verðlag á sjávarafurðum hefur löngum
verið mjög sveiflukennt. Ekkert bendir
til annars en að verðlag muni hækka, fytT
en síðar, í a.m.k. langtímameðaltal sitt. Þá
verður staða útgerðar og fiskvinnslu allt
önnur en nú um stundir. I stað tapreksturs
verður verulegur hagnaður í sjávarútvegn-
um. Ef forsendur til gjaldtöku af útgerð-
inni eru ekki fyrir hendi núna, þá má al-
veg fullyrða að svo verður innan tíðar.
Hlutverk Sjálfstæðisflokksins
Það er að mínu mati mikilvægasta póli-
tíska verkefni Sjálfstæðisflokksins þessa
stundina að leiða þetta mál til lykta, þannig
að allir landsmenn geti við unað.
Fiskistofnarnir við Island eru sameign
íslensku þjóðarinnar. Nýtingu þeirra ber
að haga með þeim hætti sem best tryggir
almenn lífskjör í landinu. Núverandi fyrir-
komulag, endurgjaldslaus einkaréttur örlít-
ils minnihluta er óviðunandi. Það getur
ekki orðið sátt um þetta mál nema útgerðin
greiði eðlilegt og sanngjarnt afgjald, einka-
leyfisgjald, fyrir nýtingarréttinn á fiskimið-
unum við ísland.
©