Stefnir - 01.04.1995, Blaðsíða 7

Stefnir - 01.04.1995, Blaðsíða 7
S T E F N R VIÐ VERÐUM AÐ VARÐVEITA ÁRANGURINN AF STARFI STJORNARINNAR segir Davíð Oddsson, forsœtisráðherra, í samtali við Stefni m þessar mund- ir eru tæp fjög- ur ár frá því Davíð Oddsson var kjörinn formaður Sjálfstæð- isflokksins. Skömmu síðar leiddi hann tlokkinn í alþingiskosning- um og settist að þeim loknum í stól forsætisráðherra. Nú í vor lýkur kjörtímabili ríkisstjórnar- innar, sem á margan hátt hefur verið viðburðaríkt. Af því tilefni þótti við hæfi að heyra viðhorf Davíðs varðandi stjórnmálaá- standið, árangur ríkisstjórnar- innar og helstu verkefni ís- lenskra stjórnmála á næstu misserum. Davíð ræðir hér með- al annars um samstarfið við AI- þýðuflokkinn, umræðurnar um Evrópubandalagið og þá upp- Iausn, sem nú ríkir á vinstri væng stjórnmálanna. Nýtt hugarfar gagnvart opinberum afskiptum „Eg er þeirrar skoðunar, að í heild hafi kjörtímabil ríkisstjómar- innar verið að mörgu leyti farsæll tími,“ sagði Davíð þegar hann var spurður um árangurinn af starfi rík- isstjómarinnar. „Það segi ég ekki vegna þess að allt hafi gengið í haginn og stjóm landsins hafi verið létt verk, því þannig hefur það ekki verið. Þvert á móti höfhm við verið með stomiinn í fangið mest allt tímabilið og við slíkar aðstæður reynir mjög á það, hvort ríkisstjóm er starfhæf og tilbúin að setja lang- tímamarkmið í öndvegi í stað þess að hrapa að skammtímalausnum. Hér á landi hefur sú vonda venja lengi verið ríkjandi, að menn eru sífellt að leysa vandamálin frá degi til dags. A þessu kjörtímabili hefur hins vegar tekist betur en oft áður, að leggja gmnn að lausn mála til lengri tíma. Að því leyti má segja, að með myndun þessarar ríkis- stjómar hafi hafist nýtt tímabil í landsstjóminni" „ Hér á landi hefur sú voitda venja lengi veriö ríkjandi, að menn eru sífelltað leysa vandamálin frá degi til dags. “ Davíð telur að tímabilið frá falli Viðreisnarstjómarinnar 1971 hafi að mestu einkennst af skammtíma- lausnum. Benda megi á ótal dæmi um, að menn hafi verið að ýta vandamálunum á undan sér og fresta lausn þeima frá einum mán- uði til annars, án þess að nokkurn tímann væri reynt að ráðast að rót- urn vandans. „A þessu kjörtímabili hefur hins vegar tekist að halda jafnvægi, ekki bara í efhahagsmál- um, heldur líka á hinu pólitíska sviði, og um leið að móta nýtt hug- arfar gagnvart afskiptum hins op- inbera af atvinnulífmu. Það hefur lengi verið almenn skoðun, að betta væri að beita almemium að- gerðum en sértækum til að bæta skilyrði atvinnulífsins. Raunar hafa flestir stjórnmálamemi sagst vera hlynntir almennum aðgerðum, en þegar á heflir reynt hafa margir þeirra líka verið sólgnir í sértækar aðgerðir. Þessi ríkisstjóm hefur hins vegar umiið að því að skapa almenn rekstrarskilyrði hér á landi, sem væra sambærileg við aðstæð- ur í þeirn löndum, sem við beram okkur helst saman við. Það hefur tekist þannig, að fýrirtæki hér á landi búa nú við betri samkeppnis- skilyrði en lengi hefur verið. Út- fluUiingsatvinnuvegimir búa nú til dæmis við sanngjama skráningu rarmgengis og því hefur ekki verið náð með skammtímalausnum sem leiða til kollsteypu á fáeinum mán- uðum eins og oft áður. Það hefur líka tekist að gera upp stórkostleg- ar skuldir í sjóðakerfmu og banka- kerfinu, þótt það hafi kostað miklar fórnir. Þannig hefur þetta uppgjör sjóðakerfisins til dæmis leitt til aukins halla á rekstri ríkissjóðs, þar sem menn eru nú að færa til gjalda uppsafnaðan fortíðaivanda, og það veldur því að samanburður á halla- tölum í dag og fýrir nokkram árum er ekki sanngjam. Um leið má hins vegar segja, að borðið er orðið hreint; bankarnir hafa komist fýrir sína kiæppu betur en margir bankar í nágrannalöndunum, vaxtakjörin í landinu hafa bamað og færst nær því sem gerist erlendis. Fyrir al- menning er svo mikilvægast, að þessar breytingar hafa leitt til þess að útflutningur hefur aiúdst og við- skiptajöfnuður batnað. Við höfum því undanfarin þrjú ár getað borgað niður erlendar skuldir þjóðarbús- 7

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.