Stefnir - 01.04.1995, Page 10

Stefnir - 01.04.1995, Page 10
staða forsætisráðherra sé á margan hátt gerólík borgarstjórastarfinu. „Embætti borgarstjóra er mikil valdastaða,“ segir hann. „Borgar- stjóri er að taka beinar ákvarðanir á fjölmörgum sviðum ffá morgni til kvölds. Forsætisráðherra heíur minni bein völd varðandi afgreiðslu einstakra mála, en á móti kemur að hann getur almennt haft miklu meiri áhrif á gang mála í þjóðfélaginu. Þegar ég var borgarstjóri leit ég svo á, að ég væri nokkurs konar um- boðsmaður borgarbúa, hefði hlotið til þess víðtækt persónulegt umboð og gæti því ekki vísað því valdi og ábyrgð til annarra. Það virðist mér hins vegar núverandi borgarstjóri ætla að gera, til dæmis með því að ráða sérstakan umboðsmann borg- arbúa, fækka viðtalstimum fyrir al- j menning og flytja vald sitt út í kerf- j ið. Þannig býst ég við að núver- andi borgarstjóri verði mun valda- minni en margir þeir, sem hafa gegnt embættinu á undan henni. Það er hennar val. Það má því segja að embætti borgarstjóra mótist að j töluverðu leyti af því hver gegnir j því á hveijum tíma. Það sem störf j forsætisráðherra og borgarstjóra j eiga hins vegar sameiginlegt er að j þetta em auðvitað annasöm störf, ; þar sem mikið reynir á lagni í mannlegum samskiptum og þolin- mæði gagnvart öðrum.“ Hann bætir við að það sé miklu meiri pólitískur atgangur í þingstör- funum heldur en í starfi borgar- stjómar. „Borgarstjómin kemur mun sjaldnar saman og fundir þar ern í fastari skorðum. Þetta er hins vegar með ýmsu móti í þinginu; þar koma dagar þar sem forsætisráð- herra þarf lítið að koma við sögu og fagráðherrar standa alfarið fyrir máli ríkisstjómarinnar, en svo koma lengri tímabil þar sem forsætisráð- herra þarf að vera mikið á staðnum j og vera viðbúinn að taka virkan þátt í umræðum. Raunar er það svo, að j þingstörfin em mikill tímaþjófur fyrir ráðherrana, eins og fyrir- komulagið er hér á landi. Hér er til dæmis ekki óalgengt i umræðum á S T E F N I R Alþingi, að þingmenn krefjist þess að ráðherrar svari spurningum, sem jafnvel hefur verið svarað áður, og neiti að öðrum kosti að halda áfram þingstörfum. Oft er á- stæðan fyrir þessu sú, að viðkom- andi þingmenn hafa ekki verið í salnum þegar svörin komu upphaf- lega fram. Þetta yrði hvergi liðið annars staðar í veröldinni. Annað atriði, sem ég vil nefha, er að það kemur oft fyrir við fyrstu umræðu um lagafrumvörp, að þingmenn spyq'a ráðherra i þaula um einstök efnisatriði máls. Slíkar umræður eiga auðvitað fremur að fara ffam í nefndum þingsins og ráðherrar eiga að hafa það hlutverk við fyrstu um- ræðu, að gera grein fyrir þeirri meg- instefhu, sem í ffumvarpinu felst. Þrátt fyrir þetta og ýmsa aðra galla á þingstörfunum hefur mér líkað á- gætlega að sitja á Alþingi. Ég var reyndar í þeirri sérkennilegu stöðu að taka við embætti forsætisráð- herra áður en ég settist fyrst á þing, og til að byrja með var mér núið þessu reynsluleysi nokkuð um nas- ir, til dæmis þegar ég setti fram gagnrýni mína á vinnubrögðin á Alþingi. Ég tel mig nú hins vegar hafa kynnst störfiim þingsins nokk- uð betur og vona þess vegna að þetta reynsluleysi sé ekki að þvæl- astfyrirmérlengur.“ Meiri samstaða í þingflokki okkar en Itjá andstœóing- unum „Samstarfið innan þingflokks sjálfstæðismanna á kjörtímabilinu hefur komið mér á óvart. Ég hafði sjálfur stundum gagnrýnt þing- flokkinn fyrir samstöðuleysi og ómarkviss vinnubrögð, en á þessu tímabili hefur hann í öllum aðalat- riðum verið mjög samstæður og eindrægni mikil meðal þingmanna. Auðvitað eru til einstaklingsbund- in dæmi um annað, en það er ekki um að ræða neinn samblástur eða fylkingar innan þingflokksins eins og stundum þekktist á árum fyrr. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er raunar lang samstæðasti þing- flokkurinn, sem starfar í Alþingishúsinu um þessar mundir. Hann hefur stutt stefnu ríkisstjóm- arinnar mjög fast og menn hafa síður borið ágreining sinn á torg en áður. Þetta á sér meðal annars þá skýringu, að formennska Geirs Haarde hefui' verið afar farsæl og sanngjöm." Davið segir að Sjálfstæðisflokk- urinn sé vissulega stór flokkur sem rúmi margvíslega hagsmuni og sjónarmið. Hins vegar nái menn sáttum innan hans um meginstefnu- mál án þess að hlífast við því að taka á þeim. „Af þessum sökum hefur flokknum tekist ákaflega vel að vera samnefnari borgaralegra sjónaimiða hér á landi og í því hefur styrkur hans einmitt fólgist. Og þótt innan Sj ál fstæði sflokksins starfi fulltrúar ólíkra hagsmuna, þá hefur flokknum tekist að ná málamiðlun milli þeirra, enda hafa þeir gengið út frá sömu borgaralegu gmndvallar- viðhorfimum. Þessi breidd innan Sjálfstæðisflokksins hefur stundum verið túlkuð sem veikleiki hans af pólitískum andstæðingum, en ég er því ósammála. Það er auðvitað eng- inn vandi að stýra litlum flokki, kannski með 200 virka flokksmenn, og taka upp einstrengingslega stefnu í einstökum málum. Það á- stand getur sjálfsagt verið þægilegt fyrir flokksformenn á stundum. Þeir geta þá sagst stýra hreinræktuðum flokki með hreinræktaða stefnu. Ég vildi hins vegar ekld fyrir mitt leyti skipta. Hvaða afl hefur ein- strengingslegur smáflokkur? Hvemig getur hann komið mark- i o

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.