Stefnir - 01.04.1995, Blaðsíða 13

Stefnir - 01.04.1995, Blaðsíða 13
auka frelsi og sjálfstæði þeirra einstaklinga sem samfélagið byggja. Með því að stuðla að lagalegu, efnahagslegu og fé- lagslegu sjálfstæði kvenna styrkjast jafnt stærstu sem smæstu einingar þjóðfélagsins. Sjálfstæði kvenna leiðir af sér aukin mannréttindi til handa öll- um einstaklingum. Það er mikil- vægt pólitískri og lýðræðislegri þróun, eflir atvinnulíf og stuðlar að farsælu heimilis- og fjöl- skyldulífi. Það miðar að því að böm alist upp í umhverfi þar sem jafnræði ríkir og bæði konur og karlar hafa frelsi og forsendur til að velja lífi sínu farveg. Frelsi kvenna til að velja sér hlutverk, hvort sem er á heinrili eða vinnu- markaði, tryggir að hæfileikar hvers og eins fái að njóta sín sem best. Sjálfstæðar konur bera fulla ábyrgð á því lífsmynstri sem þær kjósa sér og gera um leið kröfu um að fyrir vali þeirra, hvað sem það kann að vera, sé full virðing borin. Forsendur Til að ná þessum markmiðum leggjum við hugmyndina um frelsi einstaklingsins til grand- vallar. Við gerum ráð fyrir að það sé félagslegur munur á kynj- unurn m.a. vegna þess að konur og karlar standa sem kynhópar frammi fyrir mismunandi vænt- ingum, tækifærum og kröfum jafnt á heimili sem út á vinnu- markaðnum. Við bendum á að leið kvenna og karla til einstak- lingsfrelsis þarf því ekki og getur jaftivel ekki verið sú sama. Bar- áttan fyrir sjálfstæði kvenna fel- ur hins vegar ekki í sér þá hug- mynd að karlar séu andstæðingar kvenna. Þvert á móti teljum við sjálfstæði einstaklinganna beggja hag. Við lítum ekki þannig á að sá munur sem er á kynjunum feli í sér að konur séu fremri körlum eða karlar fremri konum. Við lít- um heldur ekki þannig á að þessi munur sé gildishlaðinn á þann veg að konur séu „betri“ en karl- ar vegna þess að þær eru mæður. Við teljum þvert á móti að slíkar hugmyndir um konur hafi orðið til að viðhalda því kynjamisrétti sem birtist t.d. í kynbundnu launamisrétti. Við höfnum m.ö.o. mæðrahyggju, stjórn- málastefnu sem skoðar móður- hlutverkið sem meginhlutverk kvenna og skilgreinir þátttöku þeirra í félagslegu lífi út frá því hlutverki. Við geram ráð fyrir að innan hvors kynhóps sé jafnmikil breidd í hæfileikum og getu, að hvor hópur um sig innihaldi ein- staklinga sem allir hafi sína sér- stöku kosti og galla. Við gerurn það m.ö. o. að lykilatriði að litið sé á konur sem einstaklinga en ekki hóp. Um leið aðgreinum við konur frá körlum sem kynbund- inn hóp. Er þetta mótsögn? Svo er ekki þegar litið er til þess að ríkjandi hugmyndir um stöðu og hlutverk einstaklinganna í ís- lensku þjóðfélagi eru ekki þær sömu hvað varðar konur og karla. Að þessu leyti eru konur og karlar fyrirfram aðgreind í kynhópa og einmitt þess vegna verður enn mikilvægara að líta á konur og karla sem einstaklinga en ekki hóp. Ef menn gera það ekki er alið á þeim kynbundna mismun sem felst í ríkjandi hug- myndum. M.ö.o. til þess að kon- ur og karlar geti vænst þess að njóta sama frelsis sem einstak- lingar verður að taka á þeim kyn- bundna mismun sem nú er á þessum tveimur hópum. Þess vegna er óhjákvæmilegt að fjalla um hvorttveggja í senn, konur 1 3

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.