Stefnir - 01.04.1995, Qupperneq 14

Stefnir - 01.04.1995, Qupperneq 14
SJALFSTÆÐAR K O N U R sem einstaklinga og konur sem félagslegan kynhóp. Til að undirstrika áherslu okk- ar á mikilvægi þess að fjalla um konur sem einstaklinga þá höfn- um við þeim stjórnmálalegu áherslum sem skilgreina konur út frá hópum eins og fjölskyldu eða stétt. M.ö.o. þá höfnum við hóphyggju, sem einkennt hefur vinstrisinnaða hugmyndafræði, en heijum til vegs einstaklings- hygggju hægristefnunnar. Þar sem tilhneigingu til tjölskyldu- hyggju, þess að skilgreina konur út frá hlutverkum þeirra sem mæður, húsmæður og eiginkon- ur, gætir í sjálfstæðisstefnunni (sjá t.d. Landsfundarályktun 1993, bls.13-14) og einnig þeim þræði hennar sem fijálshyggjan er (sjá t.d. von Hayek, 1960, bls. 138) viljum við íjalla sérstaklega um þær hættur sem við teljum íjölskylduhyggju hafa í fór með sér fyrir sjálfstæði kvenna. Einstaklingur og fjölskylda Fjölskylduhyggja viðheldur þeirri fjölskyldumynd sem telst hefðbundin og felur í sér ákveðn- ar hugmyndir um hlutverk og stöðu þeirra sem ijölskylduna mynda. Fjölskylduhyggja rökstyður hefðbundna verkaskiptingu kynj- anna með því að konur séu bún- ar ákveðnum eiginleikum, svo sem nærgætni, næmni, tillits- semi og góðmennsku, sem geri þær betur til þess fallnar en karl- menn að sinna þeim störfum er að heimili og börnum snúa. Með fjölskylduhyggju að leiðar- Ijósi hefur konum og körlum því verið beint inn á ákveðnar braut- ir sem hafa verið taldar æskileg- ar út frá þjóðfélagslegum hags- munum, en hafa um leið skert valfrelsi kvenna og karla varð- andi lífsstíl, starfsframa og barn- eignir. Fjölskylduhyggjan hefur þannig dregið úr frumkvæði kvenna og sjálfsmati og gert það að verkum að þær eru síður tald- ar samkeppnishæfar um störf á frjálsum markaði, þar sem fram- boð og eftirspurn ræður. Það sama gerist inn á heimilinu, þar sem vinna þeirra innan Qöl- skyldunnar er ekki metin sem verðmætaskapandi og kona sem aflar engra tekna verður bæði fjárhagslega og félagslega háð maka sínum. Sökum þessa virk- ar íjölskylduhyggjan hamlandi á sjálfstæði kvenna - bæði utan sem innan heimilisins. Þessu viljum við snúa við og efla með því fjölskylduna i nútímasamfé- lagi. Niðurlag Af þessum ástæðum leggjum við til að frelsi einstaklingsins verði grundvöllur skilgreiningar og umfjöllunar þjóðfélagsins um konur jafnt sem karla. Með þessu er ekki vegið að fjölskyld- unni sem hornsteini samfélags- ins, þvert á móti er hér leitast við að styrkja innviði hennar með sjálfstæði allra þeirra fullorðnu einstaklinga sem hana mynda. Við erum mótfallnar því að stjórnvöld hlutist til um hag ein- staklinganna á einkasviði sam- félagsins með beinum hætti og teljum því afar mikilvægt að konur séu ekki skilgreindar út frá einkasviðinu, fjölskyldunni, eigi þær að njóta sama frelsis og axla sömu ábyrgð og karlar. Sjálfstæðisstefnan, sem brjóst- vörn einstaklingsfrelsis, hlýtur að taka fullt tillit til þessara við- horfa við mótun þess þjóðfélags sem við sjálfstæðismenn viljum byggja. Samantektf.lt. Sjálfstœðra kvenna Jóhanna Villijálmsdóttir 1 4

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.