Stefnir - 01.04.1995, Qupperneq 28
AÐ UTAN
ÞANKAR
Er allt upp í loft í
BRESKUM STJÓRNMÁLUM?
eftir B cildur Þórhallsson
Bresku stjórn-
málin hafa að
undaníornu lík-
lega átt meira
sameiginlegt
með ástríðum
og örlögum í
sápuóperum sjónvarpstöðvanna
heldur en hugmyndafræðilegum
ágreiningi í valdatíð Margrétar
Thatchers. Enda hugmynda-
fræðilegur munur á milli helstu
flokka landsins að engu orðinn,
nema helst þó að Verkamanna-
flokkurinn er orðinn hægri sinn-
aðri heldur en íhaldsflokkurinn,
og Ihaldsflokkurinn vinstri sinn-
aðri heldur en Verkamanna-
flokkurinn.
Samruni eóa sundrung?
Sundrung og óeining innan
Verkamannaflokksins sem hélt
honum frá völdum allan síðasta
áratug, hefur í dag verið snúið
yfir á íhaldsflokkinn. Clinton
þeirra Breta, Tony Blair nýkjör-
inn leiðtogi Verkamannaflokks-
ins, hefur sameinað flokkinn
undir merkjum fijálshyggju og
einstaklingshyggju! Og telja má
líklegt að Verkamannaflokkur-
inn verði fyrri til að ffamfylgja
helsta stefnumáli ríkisstjómar-
innar, sem þingmenn stjómar-
innar hafa komið í veg fyrir að
komi til framkvæmda, einka-
væðingu póstþjónustunnar!
Einna helst er að skoskir og
velskir þjóðernissinnar haldi
stjómmálabaráttu á lofti, og að
þingmenn mótmælenda á Norður -
írlandi bjargi íhaldsstjóminni ffá
falli. Ekki má þó gleyma Evr-
ópusambandsandstæðingunum
innan íhaldsflokksins sem hafa
líf stjómarinnar i hendi sér og
ffamtíð allrar Evrópu, að eigin
sögn.
„Þoka á Ermasundi,
Evrópa einangruð“
Evrópuumræðan yljar fólki
um hjartarætumar, að minnsta
kosti sumum. Spumingin er, er
Bretland í Evrópu eða er Bret-
land ekki í Evrópu? Getur Evr-
ópa verið án Bretlands?
Þingmenn og nokkrir ráðherr-
ar íhaldsflokksins keppast hver
við annan að lýsa gæðum og
góðsemi nágranna sinna í Evr-
ópu. En eins og einn af varafor-
mönnum íhaldsflokksins, nú
óbreyttur þingmaður, komst að
orði fyrir skömmu „Það eina sem
Þjóðverjar hafa gert fyrir Evrópu
er að koma tveimur heimsstyrj-
öldum af stað“ og: „Þessir
Frakkar em svo miklar gungur
að þeir lögðu niður vopn og
gáfúst upp í seinni heimsstyrj-
öldinni í stað þess að berjast".
Enn meira hól fengu þó
menntastofnanir meginlandsins
hjá einum ráðherranum. „Þetta
[líklega Evrópusambandið]
byggist allt á sósíalískri velferð-
arstefnu og nemendur fá meira
að segja háskólagráður gefnar,
og ef ekki, þá geta þeir fengið
þær með mútum í suðurríkjun-
um“.
Uppáhaldsumræðuefnið er
samt félagsmálasáttmáli Evrópu-
sambandsins, sem hvorki meira
né minna hefur orsakað efna-
hagskreppu undanfarinna ára,
stóraukið atvinnuleysi, jafnað
rétt kvenna á vinnumarkaðinum,
bannað barnaþrælkun og komið í
veg fyrir sómasamlega og fjöl-
skylduvæna sextíu stunda vinnu-
viku.
Um þetta snýst Evrópusam-
bandsdeilan, eða eins og fyrir-
sögn í einu Lundúnablaðanna
hljóðaði í byrjun aldarinnar:
„Þoka á Ermasundi, Evrópa er
einangruð", sem vel á við í Evr-
ópuumræðunni í dag. Er að
undra að sumir efist á Fróni?
Valdalausir þingmenn í
áhættusamri atvinnu
Ekki er hægt að skilja dag-
blöðin útundan þegar fjallað er
um bresk stjórnmál. Vald
bresku dagblaðanna yfir aumum
og yfirleitt blásaklausum þing-
mönnum þjóðarinnar er nær ó-
takmarkað. Þingheimur og
reyndar þjóðin öll vaknar spennt
hvem morgun til að lesa hvaða
hneykslismáli verði kyngt niður
með morgunmatnum að þessu
sinni. „Hver sagði af sér?“ er
yfirleitt fyrsta spurning dagsins,
og orðið ljóst að fleiri en Al-
þýðuflokkurinn þurfa að losa sig
við ráðherra sina, þó héma meg-
in hafs sé yfírleitt lystisemdum
holdsins um að kenna.
Það em þó ekki einungis slúð-
urblöðin sem halda fólki við efn-
ið. Fyrrverandi ráðherrar og nú-
verandi þingmenn íhaldsflokks-
ins hafa ekki við að gefa út met-
sölubækur um óheilindi, spill-
ingu og „frjálsar ástir“ samherja
og vina. En að sjálfsögðu em
þetta skáldsögur, skáldsögur sem
eiga sér enga stoð í raunvemleik-
anum, því mótmælir enginn,
enda dagsatt! Eins og Edwina
Currie fyrrverandi ráðherra, met-
söluhöfúndur og ein af skömleg-
um þingkonum Ihaldsflokksins
sagði: „Þeim er vorkunn þessum