Gisp! - 01.10.1999, Blaðsíða 138
Danmörk
Danmörk er það Norðurlanda þar sem mynda-
sögubækur eru vinsælastar og myndasagnamark-
aður þar er áþekkur markaðnum á meginlandi
Evrópu. A blómaskeiðinu 1980-90 voru gefnar
út margar myndasagnabækur, innlendar og er-
lendar, bæði fyrir börn og fullorðna. Undir lok
þess áratugar dróst saman útgáfa myndasagna-
bóka handa börnum en jókst handa fullorðnum
og missti þar markaðurinn mikilvægan lesenda-
hóp. Upplög urðu minni og verð hærra og sú
kreppa, sem lengi hafði hrjáð almenna bókaút-
gáfu gekk nú líka yfir myndasagnagerð.
Til þess að sinna eftirspurn eftir myndasögum
handa börnum boðaði stóra útgáfufyrirtækið
Gyldendal til samkeppni um bestu myndasöguna
handa börnum árið 1991. Sigurvegarinn varð
Jonas Wagner með angurblíða sögu um ást og
vináttu í expressívum stíl og mildum litum.Auk
þessa reyndu aðrir höfundar að fylla upp í þá
eyðu sem skapast hafði af offramleiðslu níunda
áratugarins á myndasögum handa fullorðnum.
Takmarkið var að búa til myndasögur fyrir les-
endur á öllum aldri. Danskar myndasögur stefna
mjög að því að ná til slíkra lesenda eins og
Lukku-Láki, Ástríkur og Tinni. Af myndasögum sem
ætlaðar eru slíkum lesendahópi má nefna
Goðheima-sögur Peters Madsens (gamansögur
eftir norrænum goðsögum), Nofret eftir Sussi
Bech (gamansemi og ævintýri í Egyptalandi til
forna), Familien Gnuff eftir Freddy Milton
(spaugileg dýr) og Göingehövdingen eftir Orla
Klausen (út frá dönsku, sagnfræðilegu efni).AIIar
þessar sögur og fleiri til hafa verið þýddar á
erlend mál.
Með þessu hafa danskir myndasagnahöfundar
fundið jafnvægi í efni og sagnalengd milli þess
sem hæfir börnum og fullorðnum og eiga ekki í
erfiðleikum með að bjóða börnum upp á góðar
myndasögur, en það er vandamál víða í heimin-
um. Slíkt lofar góðu um framtíðina.
Carlsen, í eigu Bonniers, er tvímælalaust helsti
útgefandi myndasagnabóka, forlagið gefur út um
sextíu titla á ári. Forlagið miðar við að ná sem
breiðustum lesendahópi og gefur aðallega út
þýddar sögur en einnig nokkrar innlendar.
Serieforlaget/Egmont sér um útgáfu á Norð-
urlöndum á efni frá Disney og gefur líka út
Lukku-Láka og Ástrík.
Meðal smærri forlaga má nefna Bokfabrikken
(sem gefur út Will Eisner, nokkuð af erótísku
efni og hreint ekki svo fáar danskar mynda-
sagnabækur), Arboris (hollenskt útgáfufélag sem
gefur út þýddan vísindaskáldskap í myndasögum)
og Fahrenheit (sem aðallega gefur út
,,neðanjarðar“-efni).
A blaðsölugrindum er Egmont gjörsamlega
ráðandi. Slíkt kemur ekki á óvart þar sem vin-
sælasta myndasögublaðið í Danmörku er Andrés
önd. Eini raunverulegi keppinautur Egmonts er
Interpresse, sem er miklu minna fyrirtæki.
Interpresse er í eigu Bonniers, eins og Semic í
Svíþjóð, og gefur út svipað efni. Mest seldu
myndasögur þess eru Basserne (Beetle Bailey) en
næst á eftir koma bandarískir ofuhetjutitlar.
Danskar myndasögur af þessu tagi eru fáar og
strjálar.
Opinber sjóður, um 425.000 danskar krónur,
var stofnaður 1991, aðallega ætlaður til að gefa
út myndasagnabækur en líka til að styrkja
sýningar og „neðanjarðar“-útgáfur.