Fréttablaðið - 19.02.2021, Blaðsíða 19
Kynlíf hækkar magn ham-ingjuhormóna í líkamanum en við full næg ingu losna
meðal annars gleði- og vellíðunar-
hormónin oxytoc in og endorf ín
úr læðingi. Aukin framleiðsla
líkamans á þessum hormónum
hefur góð áhrif á svefn, áhyggjur,
kvíða, streitu og þunglyndi.
Þörf á aukinni umræðu um
kynheilbrigði kvenna
Það er svo sannarlega heilsu-
bætandi að stunda reglulega kynlíf
og því skiptir kynheilbrigði miklu
máli. Kynheilsa kvenna getur haft
mikil áhrif á líðan og sjálfstraust
og ef viðvarandi óþægindi eru til
staðar á kynfærasvæði getur það
haft áhrif á ánægju í kynlífi og
upplifun konunnar sem kynveru.
Leggangaþurrkur getur haft ýmis
óþægindi í för með sér og m.a.
dregið úr ánægjunni við að stunda
kynlíf og þannig haft áhrif á lífs-
gæði kvenna og jafnvel myndað
togstreitu í samböndum. Það er
því miður algengt að konur leiti
sér ekki aðstoðar vegna þurrks í
leggöngum eða kynni sér hvaða
lausnir eru í boði. Ástæðan fyrir
því getur verið feimni við að ræða
þetta málefni af því það tengist
kynlífi en einnig að konur geri
sér ekki grein fyrir hversu algengt
þetta vandamál er og upplifi sig
einar um þennan vanda. Mikil
þörf er á aukinni umræðu um
þetta málefni meðal kvenna á
öllum aldri því þurrkur í leggöng-
um tengist ekki eingöngu konum á
breytingaskeiðsaldri.
Þurrkur í leggöngun algengt
vandamál hjá konum
Flest allar konur upplifa þurrk í
leggöngum einhvern tíma á lífs-
leiðinni.
Með hækkandi aldri þynnist
slímhúð í leggöngum og hún
framleiðir minni raka. Miklar
hormónabreytingar eiga sér stað
í líkama kvenna þegar þær ganga
í gegnum breytingaskeiðið, við
það minnkar framleiðslan á
kvenhormóninu estrógen sem
stjórnar framleiðslu á náttúrulegu
sleipiefni líkamans sem venjulega
heldur leggöngunum rökum og
við það þornar slímhúðin. Þó að
þurrkur í kynfærum sé algengur
um og eftir tíðahvörf geta konur
á öllum aldri upplifað þurrk í
slímhúð því estrógen lækkar ekki
einungis við tíðahvörf heldur
getur það einnig gerst á meðgöngu,
eftir fæðingu og þegar kona er
með barn á brjósti. Einnig getur
þurrkur í leggöngum orsakast af
f leiri ástæðum, til dæmis vegna
notkunar lyfja sem hafa áhrif á
hormónabúskapinn eða vegna
mikillar notkunar á sápu, inn-
leggjum eða tíðatöppum.
Einkennin mismunandi
Þegar slímhimnan í leggöngunum
þynnist og þornar getur örveru-
flóran einnig raskast. Slím-
himnan verður viðkvæm fyrir
ertandi efnum og árásum sýkla úr
umhverfinu og líkurnar á því að fá
sýkingar aukast.
n Kláði, sviði eða eymsli í leg-
göngum eða við leggangaopið
n Óþægindi eða verkir við sam-
farir og stundum litlar blæð-
ingar
n Brunatilfinning
n Tíðari þvaglát
n Tíðari þvagfærasýkingar
Sleipiefni Astroglide gera
gott kynlíf enn betra
Vönduð sleipiefni mýkja
slímhúð í leggöngum og minnka
núning, sem leiðir til minni
óþæginda við samfarir og getur
því reynst konum með þurrk í
leggöngum afar vel. Sleipiefni eru
ekki eingöngu hugsuð sem lausn
við þurrki í leggöngum heldur
geta þau gert gott kynlíf enn
betra. Þegar valin eru sleipiefni er
mikilvægt að nota alltaf sleipi-
efni sem eru vatnsblönduð eða
vatnsuppleysanleg, aðeins súr
(pH-jafnvægi) í samræmi við aðra
líkamsvessa. Sýrustigið gerir það
að verkum að það hindrar vöxt
óæskilegra baktería og kemur í veg
fyrir sveppasýkingu í leggöngum.
Aldrei skal nota olíublandaðar
vörur eða matarolíur sem sleipi-
efni því slík efni geta auðveldlega
sært viðkvæma slímhúð legganga
og truflað eðlilega bakteríuflóru
þeirra. Einnig skaða slíkar blöndur
smokka og hettur, þ.a.l. skerðast
áhrif þeirra sem getnaðarvarna.
Hvað segja notendur sleipiefna?
70% kvenna segjast fá meiri ánægu
út úr kynlífi þegar þær nota sleipi-
efni. 65% notenda segja kynlíf
verða þægilegra með sleipiefnum.
Sjaldgæft er að einstaklingar upp-
lifi aukaverkanir samhliða notkun
sleipiefna.
Notkun smokka og sleipi-
efna
Astroglide sleipiefnin eru vatns-
blönduð og vatnsuppleysanleg og
henta vel með smokkanotkun og
gera kynlífið öruggt og ánægju-
legt.
Astroglide Original
Eykur ánægju við kynlíf, er ekki
aðeins sleipiefni heldur stuðlar
einnig að heilbrigði slímhúðar.
n Vatnsblandað
n Vatnsuppleysanlegt
n Hentar vel með smokkanotkun
n Frábært með kynlífsleikföngum
Astroglide Gel
Rakagefandi sleipiefni
n Þykkari lausn
n Vatnsblandað
n Vatnsuppleysanlegt
n Hentar vel með smokkanotkun
Astroglide Ultra Sensitive Skin
Allt náttúrulegt, endist lengi.
n Vatnsblandað
n Vatnsuppleysanlegt
n Má nota með latexsmokkum
n Mjúkt og þægilegt
n Langtímaverkun
Astroglie Premium
Silicon baserað sleipiefni
n Silkimjúkt gel
n Rétt viðnám
n Frábær ending
Engin skaðleg aukaefni
n Án Glycerin
n Án rotvarnarefna
n Án parabens
Flest allar konur
upplifa þurrk í
leggöngum einhvern
tíma á lífsleiðinni.
Þurrkur í leggöngum
þarf ekki að vera vanda-
mál því það eru svo
sannarlega til lausnir.
Astroglide sleipiefnin geta
aukið ánægju kynlífs
Fjöldi rann sókna hafa sýnt fram á heilsu sam lega kosti þess að stunda kyn líf reglulega. Að njóta
kynlífs felur í sér að upplifa nánd og ástúð og getur styrkt náin tengsl við makann.
Það er heilsubætandi að stunda reglulegt kynlíf og því skiptir kynheilbrigði miklu máli. MYNDIR/AÐSENDAR
Astroglide er ekki aðeins sleipiefni heldur stuðlar það einnig að heilbrigði
slímhúðar og eykur ánægju við kynlíf. Inniheldur engin skaðleg aukaefni.
KYNNINGARBLAÐ 3F Ö S T U DAG U R 1 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 UNAÐSVÖRUR